Fréttablaðið - 04.01.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.01.2019, Blaðsíða 14
Man. City - Liverpool 2-1 1-0 Sergio Agüero (40.), 1-1 Roberto Firmino (64.), 2-1 Leroy Sané (72.). Nýjast Enska úrvalsdeildin Fyrsta tapið kom á heimavelli meistaranna Leroy Sané fagnar eftir að hafa skorað sigurmark Manchester City gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær. Lokatölur 2-1, Englandsmeistur- unum í vil. Þetta var fyrsta tap Liverpool í deildinni á tímabilinu en liðið fór ósigrað í gegnum fyrstu 20 leiki sína. Þrátt fyrir tapið í gær er Liverpool með fjögurra stiga forskot á City á toppi deildarinnar og draumurinn um fyrsta Englandsmeistaratitilinn síðan 1990 er enn á lífi. NORDICPHOTOS/GETTY Vináttulandsleikur Noregur 31-25 Ísland (16-14) Mörk Íslands: Gísli Þorgeir Krist- jánsson 4, Ólafur Guðmundsson 4, Rúnar Kárason 3, Ýmir Örn Gíslason 3, Arnór Þór Gunnarsson 3/2, Ómar Ingi Magnússon 2, Guðjón Valur Sigurðsson 2/1, Aron Pálmarsson 2, Ólafur Gústafsson 1, Elvar Örn Jónsson 1. Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 6. FÓTBOLTI Knattspyrnumaður- inn  Theodór Elmar Bjarnason skrifaði í gær  undir samning  við tyrkneska félagið Gazişehir Gaziantep. Theodór Elmar var án samnings eftir að hafa rift samningí sínum við Elzagispor fyrr í vetur. Hann  hefur æft með uppeldis- félagi sínu KR undanfarnar vikur en ekkert verður því úr því að hann leiki með KR í Pepsi-deildinni næsta sumar. Samningur Theódórs Elm- ars  við Gazişehir Gaziantep er 18 mánaða langur. Mun hann því klára yfirstand- andi leiktíð með liðinu, en liðið er í harðri baráttu um að komast upp úr tyrknesku B-deildinni. Theódór Elmar verður svo með samning út næstu leiktíð til viðbótar. Verða því áfram tveir Íslendingar í deildinni, Theódór Elmar og Kári Árnason sem leikur með Gencler- birligi. – kpt Elmar áfram í Tyrklandi  Theodór Elmar hefur leikið 41 lands- leik. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Eftir góða byrjun gegn Noregi í fyrsta leik íslenska karla- landsliðsins á Gjensidige Cup fór að halla undan fæti um miðbik fyrri hálfleiks. Norðmenn breyttu stöð- unni úr 6-7 í 10-7 og eftir það voru Íslendingar í eltingarleik. Staðan í hálfleik var 16-14 Noregi í vil og silfurliðið frá síðasta heimsmeist- aramóti var svo sterkari aðilinn í seinni hálfleik og vann á endanum sex marka sigur, 31-25. Þetta var fyrsta tap Íslands í sjö leikjum. „Við byrjuðum mjög vel og ég var sáttur með leik liðsins. En svo fórum við að skjóta alltof snemma og flýta okkur um of í sókninni. Það kom í bakið á okkur. Við áttum líka í basli með fríköstin hjá þeim. Við réðum ekki nógu vel við [Sander] Sagosen í þeirri stöðu. En að öðru leyti var fyrri hálfleikurinn fínn á móti frá- bæru liði,“ sagði landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson í sam- tali við Fréttablaðið eftir leikinn. „Við byrjuðum seinni hálfleikinn ekki nógu vel. Við fengum mjög klaufalega brottvísun og gerðum okkur seka um tæknimistök. Þetta breyttist fljótt í fimm marka for- skot. Við vorum að elta allan seinni hálfleikinn og það voru þyngsli yfir nokkrum lykilmönnum. Þetta var á köflum þyngslalegt í sókninni.“ Torbjørn Bergerud átti góðan leik í norska markinu og varði alls 16 skot. Björgvin Páll Gústavsson varði ekkert þeirra tólf skota sem hann fékk á sig og Ágúst Elí Björg- vinsson leysti hann af hólmi eftir um 20 mínútur, kláraði leikinn og varði sex skot. „Markvarslan var ekki góð stóran hluta í fyrri hálf- leik. Hún skánaði með innkomu Ágústs og hann kemur ágætlega út úr þessum leik,“ sagði Guðmundur. Ánægður með margt í vörninni Þrátt fyrir að Ísland hafi fengið á sig 31 mark sá landsliðsþjálfarinn jákvæða hluti í íslensku vörninni. „Þeir eru erfiðir við að eiga og mjög sterkir maður á móti manni. Góður hluti marka þeirra komu eftir hraðaupphlaup og í yfirtölu. Mér fannst margt jákvætt við varnarleik okkar,“ sagði Guðmundur og bætti við að litlu atriðin telji mikið gegn jafn sterku liði og Noregi. „Við klúðruðum fullt af dauða- færum sem er ólíkt lykilmönnum, tvö víti fóru í súginn og mér finnst við eiga töluvert inni. Norðmenn refsa fyrir öll mistök og þeir eru bara komnir lengra en við. Við erum ekki jafn góðir og þeir í dag. Það er ljóst.“ Guðmundur kallaði þá Óðin Þór Ríkharðsson og Bjarka Má Elísson til Noregs vegna meiðsla Sigvalda Guðjónssonar og veikinda Stefáns Rafns Sigurmannssonar. Þá er Arnar Freyr Arnarsson enn að jafna sig eftir að hafa nefbrotnað í leik með Kristianstad. Sigvaldi ekki með um helgina „Stefán Rafn er að koma til en það var ákveðið að hann kæmi ekki með út. Við vorum að vonast til að hann væri búinn að jafna sig en svo er ekki. Hann verður heima. Sigvaldi gat því miður ekki tekið þátt í leikn- um og við ætlum að hvíla hann fram yfir helgi. Hann tognaði lítils háttar og í samráði við lækna var ákveðið að hvíla hann,“ sagði Guðmundur. „Arnar Freyr er við æfingar á Íslandi en þó ekki í „kontakt“ á meðan þetta er að gróa. En okkur hefur verið tjáð að þetta eigi að vera gróið fyrir HM.“ Ísland mætir Brasilíu á morgun og Hollandi á sunnudaginn í seinni tveimur leikjum sínum á Gjensidige Cup. Báðir leikirnir hefjast klukkan 14.30 að íslenskum tíma. ingvithor@frettabladid.is Dýr mistök gegn silfurliðinu Ísland tapaði með sex marka mun, 31-25, fyrir Noregi í fyrsta leik sínum á Gjensidige Cup, æfingamóti í Ósló, í gær. Landsliðsþjálfarinn sagði frammistöðuna ekki alslæma en bæta þurfi í á nokkrum sviðum. Gísli Þorgeir Kristjánsson átti fína innkomu í leiknum gegn Noregi í gær og skoraði fjögur mörk úr jafn mörgum skotum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Valur hefur orðið Íslandsmeistari tvö ár í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Valsmenn fá væna summu FÓTBOLTI Íslandsmeistarar Vals fá u.þ.b. 145 milljónir króna í sinn hlut frá UEFA, Evrópska knattspyrnu- sambandinu, fyrir árangur sinn í Evrópukeppni á síðasta tímabili. Valsmenn féllu naumlega úr leik fyrir Noregsmeisturum Rosenborg, 3-2 samanlagt, í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Þeir fóru svo í forkeppni Evrópudeildarinnar þar sem þeir komust í 3. umferð. Stjarnan og FH fá rúmlega 67 milljónir króna hvort félag. Þau komust bæði í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. ÍBV fær rúmar 32 milljónir en liðið féll úr leik í 1. umferð forkeppni Evrópudeild- arinnar. Valur fer aftur í forkeppni Meist- aradeildarinnar á næsta tímabili. Breiðablik, Stjarnan og KR fara í forkeppni Evrópudeildarinnar. – hó 0 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 9 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E F -C 6 F 4 2 1 E F -C 5 B 8 2 1 E F -C 4 7 C 2 1 E F -C 3 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.