Fréttablaðið - 04.01.2019, Page 11
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
ára
Rými Ofnasmiðjan | Urðarhvarfi 4 | 203 Kópavogi | s. 511 1100 | www.rymi.is | rymi@rymi.is
Gott
skipulag
á nýju ári
Lager og
Geymslulausnir
Eins og allir vita þá hafa Íslend-ingar lögbundið gang klukkunnar þannig að hádegi á því svæði þar
sem meira en 80% landsmanna búa,
er ekki klukkan tólf á hádegi, heldur
í kringum hálf tvö síðdegis. Eins og
alkunna er þá er þetta vegna þess
að Alþingi ákvað árið 1968 að festa
íslenskan klukkugang við það sem
áður var kallaður íslenskur sumartími
og tekur mið af því hvenær sólin er
hæst á lofti yfir Greenwich í höfuðborg
Bretlands—en hefur bara óbeint með
það að gera hvenær hún er á hápunkti
yfir höfuðborg Íslands.
Þetta tengdist þeirri jákvæðu breyt-
ingu að hringli með klukkuna var hætt
og sami tími festur allt árið um kring.
En þetta þýðir auðvitað að nú eftir
jólafrí, þegar allir hafa snúið sólar-
hringnum í átt til náttúrulegrar til-
hneigingar—þá eru börn og fullorðnir
rifnir upp af sínum lífsnauðsynlega og
endurnærandi svefni í kolniðamyrkri;
þurfa að fara á fætur þegar íslenska
klukkan segir 7:00 þótt það þýði í raun
5:30 ef líkaminn sjálfur væri spurður.
Kvöldsprækir og kvöldþreyttir
Nú þegar rúm hálf öld er liðin síðan
hætt var að miða íslenska klukku við
gang sólarinnar dúkkar öðru hverju
upp umræða um hvort sú ákvörðun
hafi verið heppileg. Um þetta hefur
verið rifist á þingi þar sem ýmsar
skoðanir hafa verið reifaðar, þvert á
alla flokka—nema þá ef vera skyldi að
flokkslínurnar hafi verið milli þeirra
sem eru kvöldsprækir og hinna sem
eru kvöldþreyttir.
Hinir kvöldþreyttu hafa haft vinn-
inginn hingað til og gjarnan náð að
snúa umræðunni í þann fáránlega
farveg að þeir sem vilji að klukkan sé
stillt eftir gangi sólar séu bara svo latir
að fara á fætur á morgnana og vilji sofa
lengur. Svo segja þeir reyndar stundum
að það sé nú ekkert sem banni
mönnum að sofa lengur á morgnana ef
þeir þurfi, þótt það sé auðvitað algjör
þvæla og gildi bara um alþingismenn
en ekki skólabörn og annað vinnandi
fólk.
Snýst hún samt?
Einar Oddur Kristjánsson var einn af
þeim mönnum sem áttuðu sig á því
að pólitísk slagsmál við himintunglin
væru líkleg til þess að tapast. Þegar
lögð var fram tillaga á þingi árið 2000
um að skekkja enn frekar klukkuna á
Íslandi, með því að taka upp sumar-
tíma ofan á sumartíma, þá sagði Einar
Oddur í svari til flokksbróður síns
Vilhjálms Egilssonar: „Ég verð að
viðurkenna að ég hef í gegnum tíðina
verið með efasemdir um að alvara
væri á bak við þennan málflutning en
nú kemur háttvirtur þingmaður og
fullyrðir að hann segi þetta allt í alvöru
og ég hlýt að taka því þannig. En ég
vildi spyrja hann hvort það séu ein-
hverjar efasemdir í heiminum um það
að klukkan fari eftir lengdarbaugum.
Jörðin er örugglega hnöttótt og hún
snýst. Eru nokkrar deilur um þetta
svona almennt í heiminum? Er ekki
nokkurn veginn um þetta sátt? Menn
hafa gengið út frá þessari sólarklukku
svo lengi sem við vitum.“ Og bætti
við: „… en við erum að færa klukkuna í
öfuga átt ef við ætlum að hafa rétta sól-
klukku, við mundum færa hana aftur á
bak en ekki áfram.“
Afdráttarlaus niðurstaða
Þótt það hafi ekki verið ný vísindi árið
2000 að jörðin snúist og að sólin læðist
yfir jörðina frá austri til vesturs þannig
að sums staðar er bjart á meðan annars
staðar er dimmt þá hefur ýmislegt nýtt
komið í ljós sem styrkir mjög rökin
fyrir því að lagfæra klukkuskekkjuna
íslensku. Mikið væri nú gaman ef
stjórnvöld hefðu á einhverjum tíma-
punkti kannað þetta nánar. Og viti
menn. Það hafa þau einmitt gert.
Óttarr Proppé, þáverandi heil-
brigðisráðherra, skipaði í nóvember
2017 starfshóp sérfræðinga til þess
að „kanna ávinning fyrir lýðheilsu og
vellíðan landsmanna af því að leiðrétta
klukkuna hér á landi til samræmis við
gang sólar“. Í hópnum var meðal ann-
ars lektor í læknisfræði og sérfræðingar
í svefnheilsu.
Niðurstaða hópsins, sem var birt í
janúar á síðasta ári, var hnitmiðuð og
afdráttarlaus: „Við mælum með því
að klukkan verði færð aftur um eina
klukkustund og fest þar allt árið um
kring,“ voru niðurstöðuorð hópsins.
Helstu rökin eru meðal annars þau
að í ljós hafi komið að Íslendingar
sofi skemur en aðrar þjóðir, einkum
unglingar. Þetta er að hluta til einmitt
vegna þess hversu vitlaust klukkan er
stillt miðað við gang sólarinnar. Og
hvaða máli skiptir það þótt fólk sofi
of lítið? Jú, það eykur líkur á offitu,
sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum,
þunglyndi og ýmsum geðrænum
vandamálum—auk þess sem það hefur
neikvæð áhrif á námsárangur og ein-
beitingu. Semsagt, það er slæmt.
GMT-2
Sérfræðingarnir benda á að morgun-
birtan sé ákaflega mikilvæg til þess
að stilla af líkamsstarfsemi okkar—og
að þetta sé mikilvægara að vetri hér á
landi en víðast annars staðar. Áhrifin
af klukkuruglinu eru því mögnuð upp:
„Vegna legu landsins á norðurhveli
jarðar verða óheppilegar afleiðingar
þessa misræmis mun meira áberandi
að vetrarlagi en á sumrin,“ segja höf-
undarnir.
Þess vegna mætti alveg eins færa rök
fyrir því að færa klukkuna aftur um tvo
klukkutíma eins og einn. Það er jafn-
mikil skekkja að hafa hádegi klukkan
12.30 og að hafa það klukkan 11.30.
Munurinn væri hins vegar sá að í dag,
4. janúar, væri farið að birta í Reykja-
vík upp úr klukkan átta að morgni,
allar frímínútur barnanna væru í
birtu—og þeir sem ætla að horfa á leik
Toronto Raptors og San Antonio Spurs
í NBA-deildinni gætu byrjað að horfa
klukkan 23 í kvöld, en ekki klukkan
eitt í nótt.
Forsætisráðherra hefur nú mál þetta,
og afdráttarlausa niðurstöðu sérfræð-
inganna, á sínu borði. Öll lýðheilsurök
benda í sömu átt—er eftir einhverju
að bíða?
Leyfum klukkunni að segja satt
Sérfræðingarnir benda á að
morgunbirtan sé ákaflega mikil-
væg til þess að stilla af líkams-
starfsemi okkar—og að þetta sé
mikilvægara að vetri hér á landi
en víðast annars staðar.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F Ö S T U D A G U R 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9
0
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
F
-A
E
4
4
2
1
E
F
-A
D
0
8
2
1
E
F
-A
B
C
C
2
1
E
F
-A
A
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K