Fréttablaðið - 04.01.2019, Qupperneq 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Hjaltalín snýr aftur eftir langa þögn. Það eru liðin þrjú ár frá því að hljóm-sveitin gaf síðast út og heil sjö ár frá
síðustu breiðskífu. Í dag breytist
það og sveitin sendir frá sér lag með
myndbandi og tilkynnir um tónleika
í Eldborg, en þeir eru á dagskrá þann
7. september næstkomandi. Það gæti
líka verið plata í bígerð.
Högni, af hverju snúið þið aftur
akkúrat núna, tengist það ártalinu
eitthvað?
„Jú, einmitt – 2019, það eru sjö ár
síðan að síðasta langplata kom út,
þó að það hafi komið út lög í milli-
tíðinni: það er vissulega eitthvert
gullinsnið í tölunni sjö. En annars,
án þess að vera með einhverjar yfir-
lýsingar, þá er mikil saga í þögninni
– það eru þrjú ár síðan að við gáfum
síðast út og það er mikil saga sem
býr í þeirri þögn sem þarna ríkti. Við
viljum dvelja í þeim heimi sem enn
er ósagður og viljum leyfa þögninni
að skapa einhverja tilfinningu og
finna þennan tíma þegar eitthvað
gott getur vaxið – og nú er sá tími
kominn,“ segir Högni.
Högni segir alla meðlimi sveitar-
innar hafa verið ákaflega
skapandi á meðan á þessum
tíma stóð, eins og vitað er –
hann sjálfur verið að ferðast um allar
trissur að boða fagnaðarerindi sitt,
Sigríður Thorlacius og Guðmundur
Óskar gera garðinn frægan á öllum
trúarhátíðum auk þess sem Guð-
mundur er auðvitað bassafantur
borgarinnar, eins og Högni orðar
það. Hjörtur Ingvi vinnur við Þjóð-
leikhúsið og Viktor Orri vann með
Jóhanni Jóhannssyni undir það
síðasta. Nú koma þau öll saman,
sterkari og reyndari.
„Þetta er dásamlegt lag. Sigga
syngur þarna elegíu barónessu sem
horfir yfir líf sitt og reynir að lesa úr
því. Hún gerir þetta með ákveðinni
eftirsjá og melankólíu. Það er mikil
von og kraftur í þessu lagi en ég vil
ekki segja of mikið því að þetta er
á tilfinningasviðinu. Þetta er lag-
stúfur sem hann Hjörtur samdi og
úr honum
sprettur þessi heimur. Þetta er okkar
ævintýraland. Að búa til músík með
Hjaltalín er alltaf svolítið eins og að
stíga inn í ævintýri.“
Þessu fylgir auðvitað myndband
sem er leikstýrt af Andreu Björk
Andrésdóttur.
„Þetta er myndband þar sem per-
formansinn og þokkinn fá að njóta
sín.“
Hjaltalín spilaði á gífurlega vel
heppnuðum tónleikum í Eldborg
árið 2014 og hyggst hljómsveit-
in endurtaka leikinn í haust á þessu
sama sviði.
„Okkur langar til að halda aðra fal-
lega tónleika í Eldborg og vonandi
verðum við búin að finna tíma fyrir
plötuna eða jafnvel gefa hana út þá.
Fyrir mig persónulega er ekkert sem
jafnast á við að syngja þessi sönglög
með hljómsveitinni minni, ég tala nú
ekki um að syngja með henni Siggu.
Og bara að gera þessa orku sem
góð hljómsveit gerir – það er alltaf
mjög erfitt að endurskapa það. Sem
sóló-artisti er það erfitt. Mér finnst
alltaf eitthvað sérstakt gerast þegar
Hjaltalín kemur saman, enda höfum
við gengið í gegnum margt saman.“
stefanthor@frettabladid.is
Ævintýraland
Hjaltalín snýr aftur
Hljómsveitin Hjaltalín hefur verið þögul síðustu þrjú ár en í dag
breytist það. Nýtt lag, Baronesse, og myndband við það koma út í
dag og einnig tilkynnir sveitin stórtónleika. Ævintýrið heldur áfram.
Hjaltalín snýr aftur eftir langa en merkingarþrungna þögn. MYND/KÁRI BJÖRN
AÐ BÚA TIL MÚSÍK
MEÐ HJALTALÍN ER
ALLTAF SVOLÍTIÐ EINS OG AÐ
STÍGA INN Í ÆVINTÝRI.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og g
læsileiki e
ndalaust ú
rval af há
gæða flísu
m
Hjaltalín heldur tónleika
í Hörpunni í haust og fara
miðar í sölu í dag.
4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
F
-B
8
2
4
2
1
E
F
-B
6
E
8
2
1
E
F
-B
5
A
C
2
1
E
F
-B
4
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K