Stjarnan - 01.04.1932, Qupperneq 2
5°
STJARNAN
SPURNINGA-KASSINN
Kæri ritstjóri Stjörnunnar !—Eg hefi
í vetur verið að lesa bókina ykkar, “Deil-
an Mikla,” og þótti mér mjög fróðlegt
það, sem eg þar las um hinn jarðneska og
himneska helgidóm, þó að eg sem ófróð-
ur maður í Biblíunni ekki skilji nœrri alt.
Eg ætla því að beina einni sfurningu að
þér: Hver er hinn eiginlegi veruleiki, sem
áhöldin, eða ef til vill réttara húsmun-
irnir í hinum jarðneska lielgidómi benda
á?
Til aÖ skilja hvað húsmunir hins jarð-
neska helgidóms tákna verður maður
fyrst og fremst að skilja hvaS helgidóm-
urinn sjálfur táknar. Þegar Guð gaf
Móses skipun um að reisa tjaldbúðina,
sagði hann: “Og þeir skulu gjöra mér
helgidóm, að eg búi mitt á meðal þeirra.”
2. Mós. 25 :8. Móses varð að gjöra tjald-
búðina 'nákvæmlega eftir þeirri fyrir-
mynd, sem honum hafði verið sýnd á
fjallinu. 2. Mós. 25:40; Heb. 8:5. Með
öðrum orðum Guð sýndi honum fyrir
fram alt viðvíkjandi hinum jarðneska
helgidómi og áhöldum hans. Höfundur
Hebreabréfsins segir um presta hins jarð-
neska helgidóms: “Eru það þeir, sem
veita þjónustu eftir mynd og skugga hins
himneska.” H(eb. 8 :5- Þess vegna er það
að jarðneski helgidómurinn og allur út-
búnaður hans er eins og barnaskóla út-
búnaður til að kenna Guðs börnum hinn
mikla sannleika viðvíkjandi hinni sönnu
tjaldbúð, sem Guð hefir reist á himnum
og þjónustu Krists fyrir iðrandi syndara.
Jarðneski helgidómurinn var táknmynd
Guðs músteris á himnum: “En Drottinn
er í sínu heilaga musteri—öll jörðin veri
hljóð fyrir honum !” Hab. 2 :20.
“En er Kristur var kontinn sem æðsti
prestur hinna komandi gæða, þá gekk
hann inn í gegnum hina stærri og full-
komnari tjaklbúð, sem ekki er með hönd-
um gjörð.” Það var því óhjákvæmilegt
að þessar eftirmyndir þeirra hluta, sem á
himnum eru, yrðu hreinsaðar með slíku,
en fyrir sjálft hið himneska þurftu til að
koma betri fórnir en þessar, þvi að
Kristur gekk ekki inn í helgidóm höndum
gjörðan, eftirmynd hins sanna helgidóms,
heldur inn i sjálfan himininn, til þess nú
að birtast fyrir augliti Guðs oss til heilla.”
Hteb. 9 :it, 23, 24.
“Og musteri Guðs opnaðist, það sem á
himni er, og sáttmálsörk hans birtist í
musteri hans.” Opinb. 11 :i9.
“Og eítir þetta sá eg, og upp var lokið
musteri vitnisburðar-tjaldbúðarinnar á
himni.” Opinb. 15:5. Sjá einnig Sálm.
96:6; 102:20; 150:1.
Á þessu má sjá að helmidómurinn á
himnum er aðseturstaður Quðs; því að
úr helgidómnum kemur hjálp vor. Sálm.
102:20-22. í jarðneska helgidómnum
birtist Guð í innri tjaldbúðinni, sem kall-
aðist “hið allra helgasta.” Þar var sátt-
málsörkin, sem geymdi tíu boðorðin. 5-
Mós. 10:1-5. Eokið á örkinni var nefnt
náðarstóllinn. Á því stóðu tveir dýrð-
legir kerúbar. 2. Mós. 25:18-20. Og uppi
yfir þeim var það að nærvera og dýrð
Guðs birtist. 2. Mós. 25 :22. Örkin og lok
hennar eru þess vegna táknmynd Guðs
hásætis. Eins og lok orkarinnar var nefnt
“náðarstóllinn” (Heb. 9:5), svo er hásæti
Guðs á himnum nefnt “hásæti náðarinn-
ar.” Heb. 4:16. Þvi að hvergi nema þar
getur syndarinn fundið náð og öðlast
fyrirgefningu synda sinna. En eins og
vér munum sjá, getur enginn komið til
Föðursins nema fyrir Krist.
í hinu helga var þrent, nefnilega, skoð-
unarborðið, ljósastikan og reykelsis-
altarið. Skulum vér því næst skoða hvert
fyrir sig. Af húsmunum helgidómsins
kom skoðunarborðið næst í röðinni. Eins
og örkin í hinu allra helgasta var tákn-
mynd Guðs hásætis, svo var skoðunar-
borðið táknmynd Krists hásætis í því
(Framh. á bls. 62)