Stjarnan - 01.04.1932, Side 7
STJARNAN
55
“En í staÖ þess að skýra málið á
þennan hátt, þá komast þeir aðeins í ný
vandræði. Mig skiftir engu frá hverri
hlið þeir líta á það„ spádómurinn er jafn
yfirnáttúrlegur og undraverður hvort
sem hann var skrifaður árið 600 eða 169
fyrir Krist.”
“Eg sé ekki hvernig þú getur haldið
því fram,” greip Einarsson fram í, “því
ef spádómur Daníels var ekki skrifaður
fyr en þessi veraldar-ríki höfðu risið og
fallið, þá getur þú ekki lengur stært þig
af því, að hafa haft spámann, sem sagði
fyrir, að þessi riki mundu hefjast og
líða undir lok.”
“Hér hefir þú rétt að mæla,” svaraði
Davíð Djarfur brosandi, “en vér skulum
líta á máliS frá báðum hliðum. Ef
Daníelsbók var skrifuð 600 fyrir Krist,
þá er það alment viðurkent af vantrúar-
mönnum að spádómurinn sé of undra-
verður til að tileinka hann mannlegu
hyggjuviti. En þér athugið það ekki,
að ef menn taka fyrir satt staðhæfingu
yðar um, að spádómurinn hafi verið rit-
aður árið 169 f. Kr. þá er hann alveg
jafn undraverður og óskiljanlegur, eins
og þó hann hefði verið gefinn árið 600
f. Kr.”
“Eg skil það ekki,” sagði hr. Einars-
son.
“Eg skal skýra það íyrir yður,” svar-
aði ræðumaður. “Ef gjört er ráð fyrir
að spádómurinn hafi verið skrifaður
169 fyrir Krist, þá er þar með sagt að
hin miklu veraldar-ríki voru í fortíð en
ekki í framtíð. Á þann hátt voru líkindi
til, að rithöfundurinn mundi hafa tillit
til sögu hins umliðna tíma og ímynda
sér að framtíðin yrði endurtekning á
fyrri tíma reynslu. Hann hafði verið
vottur þess að 4 veraldar-ríki hófust á
400 árum. En þegar hann spáir um
framtíðina, þá er sá spádómur öldungis
gagnstæður sögu liðna tímans. Enginn
vísindamaður, sem notar öll þau skilríki
sem fyrir hendi eru, mundi leyfa sér
slikt. Þess vegna hlaut sá sem ritaði
Daníelsbók að hafa haft aðra þekkingar
uppsprettu, heldur en þá, sem lá opin
fyrir almenningi.”
“Ef þar á móti Daníelsbók var skrif-
uð 600 f. Kr. þá hafði rithöfundur henn-
ar ekkert dæmi fyrir sér að eitt veraldar-
ríkið tæki við af öðru, því þjóðirnar
fyrir þann tíma, þótt voldugar væru,
mynduðu ekki veraldar ríki.”
“Árið 600 f. Kr. höfðu veraldarríkin
ekki hafist og falliS hvert eftir annað.
Árið 169 f. Kr. höfðu þau risið og fa.ll-
ið. Með því að flytja ártalið þegar
Daníelsbók var rituð, til ársins 169 f.
Kr. þá losast maður við ein vandræðin
til þess að komast í önnur, sem mannleg
vizka er jafn ófær til að greiða úr. En
þetta er ekki alt. Nú skulum vér athuga
spádóm Daníels viðvíkjandi vorum
tíma.” ---------------------
Flóttinn frá Síberíu
(Framh. frá bls. 52)
Menn þessir þurftu að fara á bát
þaðan sem þeir voru að vinna til næsta
viðkomustaðar gufubátanna, en þeir höfðu
vilst í þokunni og höfðu þess vegna lent
við eyjuna. Þeir voru Mennonítar og
þess vegna undanþegnir vopnaburði, en
urðu að framkvæma aðrar skyldur í
þjónustu stjórnarinnar. Þannig atvik-
aðist það að þeir voru hér að vinna í
þarfir föðurlandsins.
Þeir tóku þátt í Guðsþjónustu vorri.
Annar þeirra var prestur og hélt hann
Guðsþjónustur fyrir mennina sem þeir
voru að vinna með. Viö gáfum þeim
lítið hefti af Biblíuskýringum sem við
höfðum, og við skýrðum einnig fyrir
þeim sum grundvallaratriði trúar vorrar.
Þeir kvöddu okkur sem vinir i Kristi.
iNokkrum vikum seinna fréttum við, að
prestur þessi væri að kenna félögum
sínum sannleika þann sem við hefðum
bent honum á, og önnur atriði úr bók
þeirri sem við gáfum honum.
Þannig varð skógarbrennu reykurinn
okkur til uppörfunar, og til þess að
flytja sannleika Biblíunnar til annara.