Stjarnan - 01.04.1932, Blaðsíða 13
STJARNAN
61
Grundvöllur réttlætingarinnar
GuÖs orÖ segir í préd. 7:20. “Enginn
réttlátur maÖur er til á jörðinni, er gjört
hafi gott eitt og aldrei syndgaö.” hfvers
vegna talar lögmálið þannig til allra?
Blátt áfram af því að syndin er yfir-
troðsla eins eða fleiri af hinum 10 boð-
orðum siðferðis lögmálsins. “Hver sem
synd drýgir, d^ýgir og lagabrot, og synd-
in er lagabrot.” 1. Jób, 3:4. Sjá Jak.
2:9-12 og Matt. 3:27-28. Fyrst þaÖ eina,
sem lögmálið getur gjört er að fyrirdæma
oss með því, að benda á syndir vorar, þá
leiðir það af sjálfu sér, að enginn veröur
réttlættur af lögmálinu.
Þessu er einnig haldið fram í Róm.
3 :20, “því að fyrir lögmál kemur þekking
syndar.” Að lögmálið er hið eina vitni,
sem ákveður skýrt og greinilega hvað er
synd, er einnig látið í ljósi í Róm. 7:7.
Lögmálið sýnir oss hve hjálparlausir
vér erum, og það kemur oss til að flýja
til Krists. Páll postuli segir að lögmálið
sé “Typtari vor til Krists.” Svo heldur
hann áfram í Róm. 3 :2i-22. “En nú hefir
réttlæti Guðs opinberast án lögmáls ....
það er réttlæti Guðs fvrir trú á Jesúm
Krist öllum þeim til handa sem trúa.”
Svo ef vér trúum, þá erum vér “rétt-
lættir án veröskuldunar af náð hans, fyrir
endurlausnina sem er í Tesú Kristi, er Guð
framsetti sem friðþægingarmeðal fyrir
trúna á blóð hans, til að auglýsa réttlæti
sitt, með því að Guð hafði í umburðar-
lyndi sínu umborið hinar áður drýgðu
syndir.”
Hér eru 4 atriði:
1. Vér öðlumst fyrirgefning syndanna
fyrir Guðs náð, það er óverðskuldaö. Sjá
Efes. 1 :J.
2. Fyrirgefningin fæst einungis fyrir
blóð Krists, því laun syndarinnar er dauði,
og Jesús bar vorar syndir. (1. Pét. 2 :22).
3. Hann réttlætir oss, það er, tilreikn-
ar oss réttlæti í stað syndar.
(Róm. 4:6-8).
4. Þessi réttlæting frá synd hefir tillit
til áður drýgðra synda. (Róm. 3:25.).
E:f vér áður vorurn syndarar af því vér
brutum lögmálið, en höfum nú fengið
fyrirgefningu þessarar synda, þá gefur
það oss engan rétt til að halda áfram að
brjóta lögmálið. Ef skuldheimtumaður
gefur upp skuld, þá getur ekki skuldu-
nauturinn steypt sér í skuldir aftur, og
álitið sig skuldlausan, af því hin fyrri
skuld var gefin upp eða borguð fyrir
hann. Afturhvarf til Guðs og trú á Jesúm
Krist tekur ekki burtu Guðs lögmál, held-
ur synd vora og þar af leiðandi hegningu
hennar.
Ef vér höfum verið réttlættir fyrir
trúna, þá þurfum vér lögmálið til vitnis-
burðar um þetta. Eögmálið vitnar á móti
þeim, sem brýtur það, en með þeim, sem
lifir í samræmi við boö þess. Jesús kom
til að burttaka vorar syndir. Sá sem trúir
á Guðs Son hefir þennan vitnisburð í
sjálfum sér. Sá, sem fyrir trú á Krist
fetar i hans fótspor, og heldur boðorð
föðursins, hann er sá eini, sem með trú
og líferni getur sýnt, að hann hefir tekið
á móti og tileinkað sér kenninguna um
réttlætingu af trúnni.
Þannig sjáurn vér að lögmálið fyrir-
dæmir syndarann, og sýnir honum þörf
hans á réttlætingu, sem hann getur ekki
veitt sér sjálfur, þegar hann hefir öðlast
þessa réttlætingu, þá ber lögmálið vitni
um það. Þetta, að maðurinn réttlætist að-
eins af Guös náð fyrir trúna á Krist, fyrir
hans hlóð, það sýnir að til er óraskanlegt
lögmál, sem heldur manninum og knýr
hann til að leita hins eina, sem getur frels-
að hann frá dauðanum. Gjörum vér þá
lögmálið að engu með trúnni? Fjarri fer
því, heldur staðfestum vér lögmálið.”
Róm. 3:3i. E. S.