Stjarnan - 01.05.1933, Blaðsíða 7
STJARNAK
71
í vantrúnni. Hann rannsakaði allar bók-
mentir, sem snertu siðferÖi og trúar-
brögö, til þess að finna hið bezta, og
seinast i bók sinni, sem ekki var gefin út
fyr en eftir lát hans, leggur hann fram
ályktun sína, sem árangur af þessum
rannsóknum sínum. Eg ætla að biðja hr.
Einarsson að lesa kafla á bls. 170 og 171
í bók George Romanes.”
Einarsson tók við bókinni og skoðaði
hana nákvæmlega nokkur augnablik, síð-
an las hann: ‘‘Kristindómurinn tekur
langt fram öllum öðrum trúarbrögðum,
hann framleiðir einnig miklu fullkomnara
hugsunar og fræðikerfi heldur en nokk-
uð annað, sem til er viðvíkjandi því and-
lega og siðferðislega. fivort sem hann er
sannur eða falskur, þá er það eitt víst, að
hvorki heimspeki, vísindi eða skáldskap-
ur hefir framleitt fegurð í hugsunarhætti
eða líferni, sem á nokkurn hátt getur jafn-
ast við kenningar og áhrif kristindómsins.
Framar öllu öðru sem til er á jörð, þá er
hann hinn áhrifamesta sýning á öllu, sem
er fagurt, göfugt og háleitt, öllu því, sem
getur hrifið vort andlega eðli. Hvað hafa
öll vísindi og heimspeki heimsins boðið
hiörtum mannanna, sem jafnast við þessa
einu kenningu kristindómsins: “Guð er
kærleikur ?”
Einarsson stóð sem steini lostinn og
horfði á orðin, sem hann hafði verið að
lesa. Einhver áheyrendanna kallaði upp:
"Lestu það aftur.” Fleiri létu sömu ósk
i ljósi, svo hann las greinina aftur hægt og
hugsandi, nærri því með lotningu, svo
settist hann niður og áheyrendur voru al-
veg hljóðir. Loks segir Djarfur:
“Hefði þetta hrós verið fram borið af
frægum prédikara, þá hefðuð þér getað
dáðst að hve alvarlega hugfanginn hann
var af kristindóminum. En eg verð að
kannast við, að eg er alveg eins forviða
eins og þér, að heyra heimsfræga vantrú-
armenn tala þannig. Ef helztu vantrúar-
menn heimsins láta i ljósi slíkt traust og
álit á Bibilíunni, kristindóminum og
Kristi, hvers vegna skyld þá nokkur yðar
lcngur halda áfram að vera vantrúarmað-
ur? Ef formenn vantrúarmanna álíta
Biblíuna hinn blessunarríkasta kraft, sem
til er í heiminum, þá er tími til kominn að
vér förum að lesa hana og gefa henni
gaum.”
Nú stóð Einarsson upp og sagði: “Eg
verð að kannast við að eg hafði enga hug-
mynd um að þessir menn hefðu talað eða
ritað slíkt. En þótt þessir menn hafi haft
mikil áhrif á sínum tíma, þá eru þeir nú
dánir fyrir 30-50 árum, og margt hefir
komið í ljós á því tímabili, sem gæti breytt
trúarskoðunum hugsandi manna. Eg vildi
gjarnan fá að heyra vitnisburð þeirra
vantrúannanna, sem nú eru uppi.”
Nú klappaði fólkið ákaft til að sýna
aS það óskaði hins sama, svo Djarfur
gekk fram og sagði:
“Samkvæmt óskum yðar skulum vér
næst athuga vitnisburði hinna helztu nú-
lifandi vantrúarmanna.”
I einrúmi.
(Framh. frá bls. 66)
á aðrar raddir, og á þína eigin, svo Guðs
rödd hljómaði æ daufar og daufar fyrir
þér. Útrýmdu orsökinni. Taktu þér tíma
til að vera einn með jesú. Gjör þú upp
reikinginn og vel þér svo pláss, eins og
María við fætur Jesú. Sækstu eftir kyrð
og einveru, því ekkert er dýrðlegra en að
heyra rödd Guðs. Ef þér vitiö þetta, sælir
eruð þér ef þér gjörið það.
Öll Guðs börn, í hvaða stöðu sem þau
eru geta heimfært til sín skipun þá og
fyrirheit, sem Guð gaf j ósúa um það leyti
sem hann var að takast á hendur forstöðu
ísraelsmanna til að leiða þá inn í fyrir-
heitna landið:
“Gæt þess, sem eg hefi boðið þér, að
vera hughraustur og öruggur, óttast ekki
né hræðast, því eg, Drottinn, þinn Guð, er
með þér hvert sem þú fer.”
Jósúa 1 :g.