Stjarnan - 01.05.1933, Blaðsíða 13
STJARNAN
//
ar sínar pílagrímsferðir og yfirbótar
verk, gátu þeir ekki öðlast hið eftirþráÖa
hnoss. HunclruS ára þar á eftir hafa
menn ætlað sér aÖ öðlast frelsun og frið
við Guð, án þess að hlýða boðum hans.
En alt í gegnum tímann hljóma orð
frelsarans til vor: “Ef þér elskið mig þá
haldið þér mín boðorð.” Og enn aftur:
“Hví kallið þér mig herra, en gjörið þó
ekki það sem eg býð yður ” Jóh. 14:15.
Lúk. 6:46.
Þótt maður geti ekki frelsast fyrir
verk sín, þá er hitt engu að síður víst, að
sannir Jesú lærisveinar munu gjöra það
sem gott er. Sú frelsun, sem Jesús veit-
ir er ekki frelsi í synd, heldur frá synd.
Innihald fagnaðar erindisins er að sá,
sem stal steli ekki lengur, sá, sem bar róg
hætti að ljúga, sá sem vanhelgaði hvíldar-
daginn gjöri það ekki lengur heldur halcli
hann heilagan.
Hlýðni er heimtuð.
Jóhannes skírari, fyrirrennari Krists
talaði strangt og alvarlega móti syndinni
og brýndi fyrir tilheyrendum sínurn að
verulegt afturhvarf væri nauðsynlegt.
Hrifnir af orðum hans fyrir áhrif Guðs
anda, komu menn af öllum stéttum með
þessa spurningu: “Hvað eigum vér að
gjöra ”
Þegar tollheimtumennirnir sptiröu að
þessu svaraði hann: “Krefjist ekki meira
en yður er boðið.” Þannig heimtaði hann
hlýðni við boðorðið sem segir: “Þú skalt
ekki stela.” Stríðsmönnunum svaraði
hann: “Takið ekki fé af neinum með
valdi eða prettum, heldur látið yður
nægja yðar málagjald.” Þannig benti
hann þeim á 9. og 10. boðoröin.
Jesús frelsar oss fyrst frá voru eigin
ranglæti, svo íklæðir hann oss frelsiskyrtli
sínum sem er réttlæti hans og hlýðni við
Guðs boðorð.
E. S.
Eftir þvi sem næst verður komist voru
15 miljónir manna atvinnulausir í Banda-
ríkjunum við byrjun ársins 1933.
Hvíld
Góð heilsa styður meira að velgengni
og hamingju heimilisins helclur en nokk-
uð annað. Sjúkdómur og clauði gjörir
lífið dimt og dapurt, og vér erum oft
skuld í þvLsjálfir með óvarkárni vorri.
Líkami vor þarfnast hvíldar, skaparinn
hefir búið hann þannig. Líkaminn er
samansettur af óteljandi smá frumlum,
sem allar eru sístarfandi. Þegar vér hvíl-
um, þá flytur blóðið þau efni, sem eru
óþörf eða skaðleg fyrir heiisuna, til þeirra
líffæra, sem hafa það hlutverk að koma
þeim burtu úr líkamanum. Þegar vér
vöknum næsta morgun erum vér hrestir
og endurnærðir, færir um að byrja starf
vort á ný. Ef menn aftur á móti eru
þreyttir en leyfa sér ekki hvílcl, þá safn-
ast úrgangsefnin fyrir i líkamanum, og
hindra frumlurnar frá starfi sínu. Mátt-
leysis- og þreytu tilfinning verður afleið-
ingin.
Þegar vér finnum til þreytu þá er það
náttúran, sem minnir oss á að vér þurf-
um hvíld, vér getum ekki daufheyrst við
áminningum hennar, án þess að veikla
líkama vorn, og stundum tekur langan
tíma til að byggja upp aftur það sem vér
höfum þannig gjört til að brjóta niður
heilsuna. Með því að fylgja vissum regl-
um með heimilisstörfiu, er oft hægt að
koma þeim af á styttri tíma en ella, og
þannig geta menn fengið meiri tíma til
hvíldar bæði fyrir sál og líkama.
.s.
Anna Eleanor Roosevelt, kona hins
nýja forseta Bandaríkjanna, verður nú
að hætta kenslu eftir að hún er komin í
Hvíta Húsið, en hún ætlar ekki að slíta
sambandi við kvennaskólann,' þar sem
hún hefir kent í mörg ár, sem aðstoðar
forstöðukona. Hún er einnig meðeigandi
skólans. Mrs, Roosevelt ætlar líka að
halda áfram að vera ritstjóri blaðsins
“Ungbörn.”