Stjarnan - 01.11.1935, Qupperneq 1

Stjarnan - 01.11.1935, Qupperneq 1
STJARNAN NÓV. 1935. LUNDAR, MAN. Hvernig er grundvöllurinn? Þú vinnur stöðugt að því að leggja grund- völlinn, já, á hverri mínútu, hverri stund, á hverjum degi ert ]?ú að leggja grundvöllinn undir lífsferil þinn. Sérhvert orð, sérhver hugsun, sérhvert starf, er partur af grundvell- inum undir yfirbygginguna, sem þú sjálfur og líf þitt byggist á, eftir því sem árin líða hjá. Er undirstaðan hjá þér örugg, traust og sönn? Leggur þú í hana bezta efni og vandaða vinnu? Er hún nógu sterk til að standast ó- vænta áreynslu og erfiðleika? Einu sinni var maður, sem bygði þrílyft veitingahús; það var lagleg bygging og full- nægði kröfum þorpsins og héraðsins. En svo fanst olía í nágrenninu, og þorpið breyttist á stuttum tíma í fjölbygða borg. Þetta heimtaði meiri vinnu og meira húsrúm á veitingahúsinu, svo eigandinn ásetti sér að byggja f jórðu hæð- ina ofan á veitingahúsið. Hann kallaði fyrir sig byggingameistara einn og sagði honum frá áformi sínu. “Lofaðu mér að sjá kjallarann,” sagði bygging ameistarinn. “Kjallarinn er ágætur,” sagði gestgjafinn, alveg hissa. “Það er fjórða hæðin sem eg þarf. Við skulum koma upp á þakið og reikna út hvað með þarf.” “Eg skil hvað þú meinar,” svaraði bygginga meistarinn, “en eg verð fyrst að sjá kjallar- ann.” Svo fóru þeir báðir niður í kjallarann. Byggingameistarinn rannsakaði vel og nákvæœ- lega steinlagninguna og alla undirbygginguna. Að lokum sagði hann: “Það er þýðingarlaust að fara upp á þakið, undirstöðurnar eru ekki nógu sterkar til að bera eina hæð til. Ef þú vilt byggja fjórða loftið þá verður þú að leggja í kostnaðinn að endur- byggja grundvöllinn, grafa dýpra niður og byggja traustari undirstöður. Veitingamaðurinn stóð um stund án þess að mæla orð; hann var niðursokkinn í djúpar hugsanir, er hann leit yfir borgina, sem hafði stækkað svo fljótt, og heimtaði því meira rúm í veitingahúsinu heldur en hann hafði nokkurn tíma búist við. Hann hugsaði fleiri ár aftur í tímann. Hann var einmitt að hugsa um morg- uninn þegar plægður var upp grunnurinn undir veitingahúsið. Hann hafði ráðið vin sinn, gamlan múrara til að steypa undirstöðurnar. Hann stóð þarna með uppdráttinn af hinni fyrirhuguðu byggingu í höndum sér og sagði: “Frank, þetta verður gott og fallegt hús, þú ert ungur en eg er gamall og reyndur, má eg stinga upp á nokkru við þig?” “Vissulega,” svaraði hann. “Frank, eg hefi í mörg ár fengist við að steypa kjallara og undirstöður undir hús. Eg hefi séð þörf á að byggja fleiri hæðir ofan á húsið, en þegar til þess kom, þá var undirstað- an ekki nógu traust til að bera meiri þunga. Eg sting upp á að þú hafir undirstöðurnar tvöfalt sterkari og grafir dýpra niður fyrir þeim, svo þegar þorpið stækkar þá getur þú bygt fleiri hæðir þegar þú vilt.” Ungi maðurinn brosti aðeins að slíkri ráð- leggingu. “Eg er viss um að það verður engin þörf fyrir stærra gestgjafahús hér í næstu 50 árin,” svaraði hann. “Það getur batnað í ári, þorpið getur vaxið og orðið fjölmenn borg,” sagði vinur hans. “Það eru lítil líkindi til þess,” sagði hann hlæjandi. “Hví skyldi eg leggja fram fé til þess að.búa mig undir það, sem aldrei þarf á að halda?” Og hann gjörði það ekki. En nú hafði hið óvænta komið fyrir, þrátt fyrir það að hann hélt að það yrði aldrei. Það kostaði hann nú mörg hundruð dollara að end- urbæta undirstöðuna, svo hann gæti bætt f jórðu hæðinni ofan á bygginguna.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.