Stjarnan - 01.11.1935, Side 5

Stjarnan - 01.11.1935, Side 5
STJARNAN 93 látur og hélt þakkarhátíÖ; hann hafÖi ástæÖu til þess. “Kenneth, viltu sækja kol fyrir mig niöur i kjallarann?” Ungi maÖurinn stóÖ upp, tók tómu kolaföt. una og gekk niður stigann. Kisa kom malandi á móti honum, néri sér við legg hans og fór svo aftur inn í kjallarahornið, en kom strax aftur og mjálmaði ámátlega. “Hvað gengur að þér, gamla skinnið, hvernig líður börnunum þínum í dag?” Hann gekk yfir að kassanum þar sem kisa hélt til með fjölskyldu sinni. Þrír ketlingar voru þar í hnypri í einu kassahorninu og þeir litu stórum augum upp á hann. Kisa stökk upp í kassann til þeirra og sleikti þá rækilega, en hætti þó af og til og sleikti hönd Kenneths, sem studdist á kassahliðina. “Skepnur eru hamingjusamar,” hugsaði hann er hann rétti sig upp og gekk yfir að kolahrúgunni. “Þær hafa engar áhyggjur. Þær bera fult traust til vor mannanna, og hugsa ekkert um ókomna tímann. Ef vér mennirnir bærum slíkt traust til hins Almáttuga þá—” “Kenneth, hvar ertu? Eg þarf kolin.” Kenneth fylti kolafötuna og fór upp með hana og sagði: “Kisa hefir fallega ketlinga.” Það glaðnaði yfir Cynthiu. “Þykir þér vænt um þá líka, það gleður mig. Eg nærri þvi gleymi að eg hafi nokkuð að gjöra, þegar eg tek þá upp hingað svo eg sjái til þeirra. Þeir eru svo áhyggjulausir.” Kenneth leit á hana. Skrítið að hún skyldi hugsa það sama og hann, en þessi hugsun virtist ekki hafa nein sérstök áhrif á hana. “Cynthia, eg var einmitt að hugsa um þetta sama, hvað ketlingarnir eru áryggjulausir, og hve vel þeir treysta okkur. Hvers vegna gjöra þeir það?” Hún hugsaði sig um augnablik og sa'gði síð- an: “Eg held það sé af því að þeir eru svo ó- sjálfbjarga að þeir læra að reiða sig á okkur.” Kenneth svaraði ekki strax. Svo sagði hann mjög alvarlega: “Cynthia, heldur þú ekki að afstaða vor gagnvart Guði sé eitthvað svip- uð þessu? Við erum ósjálfbjarga og væntum hjálpar frá honum, eins og þessar skepnur vænta hjálpar frá okkur.” Hún þagði langa stund, svo kom hún og studdi á handlegg hans, og leit brosandi á hann um leið og hún sagði: “Svo þú álítur að við ættum að vera þakklát fyrir skorpusteik, hús til að búa í, kol og við til að halda hita, og fyrir litlu ketlingana, og heilbrigði og æsku, og kær- leika og að við höf um hvort annað ?” “Eg vissi þú mundir sjá það,” svaraði Ken. neth glaður i bragði, “eg vissi—.” Dyrabjall- an hringir. Eg skal fara til dyranna.” “Er það Mr. Pratt?” “Já, herra minn,” svaraði Kenneth og brosti til miðaldra mannsins, sem stóð á tröppunum með böggul á handleggnum. “Með kveðju frá Mr. Gay, herra minn,” sagði maðurinn um leið og hann rétti Kenneth böggulinn. “Eg skil það ekki,” svaraði ungi maðurinn og hristi höfuðið. “Eg er ókunnugur Mr. Gay.” “Hann á heima uppi á hæðinni í stóra stein- húsinu, herra minn.” Maðurinn hneygði sið og fór ofan tröppurnar, út á götuna og gekk sem hraðast í áttina þaðan sem hann kom. Ivenneth fór inn með böggulinn og lokaði dyr_ unum. "Hver var það, Ken? Hvað er þetta?” spurði Cynthia þegar hann fór að opna böggul- inn. “Eg ætla nú að finna það út svo fljótt sem unt er. “Með beztu óskum frá afa, Gay,” las hann á spjaldinu. “Ef þú vilt vera glaður og skemta þér vel á þakklætishátíðinni, þá gef þú eitthvað í burtu.” Cynthia klappaði saman höndunum og sagði: “Kenneth, hann er að gefa okkur for- skrift fyrir hamingju.” Kenneth bar hendina upp að höfði sér hugs. andi: “Forskrift, það er eitthvað sem er i matreiðslubókum, er það ekki?” spurði hann sakleysislega. “Auðvitað, hún segir frá hvernig eigi að búa eitthvað til, brauð eða búðing, eða eitthvað annað. Og þetta er Mr. Gays forskrift, sérðu ekki hvað það á að vera? “Ef þú vilt vera glaður. Það gleður mann að gefa eitthvað í burt, En Ivenneth, hvað getum við gefið ?” Kenneth leit á konu sína og undrun lýsti sér í bláu augunum hans. Var það mögulegt að þetta væri sama konan, sem fyrir stundu síðan hafði óskað að hann hefði gleymt þakk- lætishátíðinni. Hvað kvenfólkið er örgert. “Eg veit,” hélt hún áfram, “við getum gefið skorpusteikina. Mrs. Dennis í húsinu hinum megin við girðinguna, hún er svo fátæk, miklu fátækari en við. Hún á þrjú börn fyrir utan Jake, sem er kryplingur. Eigum við ekki að gjöra það, Kenneth, eg meina að gefa henni skorpusteikina ? Viltu ekki smeygja þér í káp- una og fara strax yfir með hana?”

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.