Stjarnan - 01.04.1936, Síða 5
ST J ARN AN
29
og öðrum jarÖefnum saman viS áburSinn og
hélt þannig áfram meÖ tilraunir sínar.
Hann útvegaði sér bækur um þetta efni,
fyrst hvernig jarðvegurinn væri undirbúinn og
svo hvernig planta skyldi. Hann las um plönt-
ur, sem hann hafÖi aldrei séÖ og útvegaÖi sér
þær meÖ allmikilli fyrirhöfn. Sumar varÖ
hann aÖ planta í vermireit, aÖrar þrifust undir
beru lofti, og sumar gat hann alls ekki átt viÖ,
þær dóu hjá honum.
Svo fékk hann lóÖina bak viÖ næsta hús í
viðbót. Nú fór fólk aÖ koma til aÖ sjá plönt-
urnar hans. Svo var skrifað um þetta í blöö-
unum og menn komu til aÖ kaupa hjá honum
afleggjara, fræ og rætur. ÁÖur en hann var 15
ára gamall komu menn til að ráðgast um viÖ
hann þegar þeir vildu rækta blómagarÖ. Enn-
þá hélt hann áfram aÖ moka fjósin, því hann
þurfti áburðinn fremur heldur en borgunina,
sem hann fékk fyrir verkiÖ.
Svo einu sinni kom ríkur maður og baÖ
hann aÖ búa til blómsturgarð kringum nýja hús-
ið sitt. Hann Ifékk honurn mörg hundruð doll.
ara til þess og ætiaði að láta hann hafa alla
ábyrgð á verkinu. Drengurinn, sem hét Don-
ald, hikaði við í fyrstu, en svo leit hann á
garðinn sinn og sá fegurðina sem hann sjálfur
hafði framleitt. Hann tók að sér að planta
skemtigarð miljónamæringsins, en nú var á-
burðurinn fluttur til hans í heilum vagnhlöss-
um. Þekkingin, sem 'hann hafði aflað sér
gjörði hann færan um að blanda mold og á-
burði saman í réttum hlutföllum. Hann vann
og vann og plantaði. Loks var skemtigarður-
inn fullgjör, það var fegursti bletturinn i bæn.
um. Nú hætti Donald við if jósamoksturinn, því
hann fékk nóga vinnu við að búa út blómabeð
og skemtigarða fyrir fólk.”
“Er hann ennþá garðyrkjumaður ?” spurði
Kenneth.
“Hann kallar sjálfan sig það,” svaraði
Horace og brosti. .“Hann heitir fullu nafni
Donald Quentin Parker; þú hefir ef til vill
séð nafnið hans í blöðunum í gærkvöldi.”
“Er það hann, nýi umsjónarmaður skemti-
garðanna?” spurði Kenneth undrandi. “Er
þetta annars sannleikur, sem þú hefir sagt
mér ?”
“Já, svaraði Horace hlæjandi. “Eg veit það
er satt því Donald Q. Parker er móðurbróðir
minn og hann hefir sagt mér þetta sjálfur.
Hann er eins og þú veizt afbragðs garðyrkju-
fræðingur. Hann hðfir búið út alla skemti-
garðana í borginni, þess vegna er það að þeir
hafa gefið honum þessa stöðu.”
“Hugsa sér það,” mælti Kenneth með ákeið.
“Hér hefi eg verið að aumka sjálfan mig fyrir
þetta lélega og leiðinlega starf sem eg hefi. Eg
hefi lært ágæta lexíu í dag. Nú ætla eg að
fara að nota ímyndunarafl mitt og sjá hvaða
gagn mér getur orðið að starfi mínu. Það er
sem ég ætla að gjöra.” F. N. Mcrriman.
Leiðin til hinna himneska búátaða
“Hvað á eg að gjöra svo eg verði hólpinn?
Þessi spurning fangavarðarins ætti að vera
hverju mannsbarni áhugamál.
Svarið er: “Trú þú á Drottinn Jesúm, og þú
munt verða hólpinn. Þessi trú á Jesúm er
meira en skynsemistrú, eða þekking á því að
Jesús sé Guðs sonur. Illir andar trúa því líka
og skelfast. Þeirra trú gagnar ekkert, og engin
manneskja öðlast sáluhjálp fyrir slíka trú.
Jesús útskýrði þetta fyrir Nikódemusi er
hann sagði: “Enginn getur séð Guðs ríki nema
hann endurfæðist,” og: “Eins og Móse hóf upp
höggorminn á eyðimörkinni, þannig á manns
sonurinn að verða upphafinn, til þess að hver,
sem trúir, hafi í samfélagi við hann eilíít lif.
Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf
son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á hann
trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.” Jóh.
3:14-16.
Drottinn refsaði ísraelsbörnum fyrir ó-
hlýðni þeirra með því að senda eitraða högg-
orma meðal þeirra. Fjöldi fólks dó af högg-
ormabitinu. Svo bauð Guð Móses að búa til
eirorm og setja hann á stöng mitt á meðal hinna
sjúku. “Og það skal vera að hver sem bitinn
er og lítur á hann, skal lífi halda.” Þessi eir-
ormur var táknmynd af Kristi. Allar mann-
eskjur hafa verið særðar til ólífis af höggormi
syndarinnar. “Eaun syndarinnar er dauði.”
Róm. 6:23. Hin eina lífsvon syndarans er að
líta til hins krossfesta frelsara, Jesú Krists.
Sá, sem í trú lítur til Jesú og meðtekur hann
sem sinn persónulega frelsara, verður sam-
stundis hreinsaður af syndum sínum. Hann
mun endurfæðast og líf hans gjörbreytist. Það
sem hann áður elskaði hatar hann nú, og það
sem hann áður hataði elskar hann nú. Sá, sem
hefir verið sólginn í vín og tóbak, hefir tekið