Stjarnan - 01.09.1938, Blaðsíða 8
8o
5 TJARNAN
STJARNAN kemur út einu sinni á mán-
uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram.
Útgefendur: The Canadian Union Con-
ference of S. D. A., Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can.
Ekkjan á bæn til Guðs
Þessi eftirfarandi saga er tekin úr bók, sem
heitir “Das Bebet” (“Bæn”) og var gefin út
í Leipzig á Þýzkakndi fyrir mörgum árurn
síðan.
Það var hallæris árið 1847. Guðthræddur
maður einn, sem bjó nálægt Heilbrunn vaknaði
snemma morguns og gat engrar hvíldar notið.
hann heyrði rödd tala til sín segjandi: “Taktu
mjölpoka og farðu af stað með hanrl, það eru
margir matarlausir; Guð mun sýna þér hvert
þú átt að fara.” Maðurinn fór á fætur og lét
mjölpoka á hjólbörur og keyrði burt frá hús-
inu. Hann keyrði gegnurn fyrsta smáþorpið
því honum var ekki gefin nein vísbending um
að staðnæmast við húsin þar, svo keyrði hann
gegnum annað, þriðja og fjórða þorpið.
Þreyttur eftir ferðina kom hann um kvöldið
til Heilbronn.
Alt í einu er hann kom að háu húsi Iheyrði
hann sagt við sig: “Það er hér.”
Á fyrsta lofti leit út fyrir að fólkið væri
vel efnað. S.vo' fór hann upp á hæzta loft og
sagði við sjálfan sig: “Það hlýtur að vera
hér,” Hann ýtti opinni hurð, setti mjölpok-
<ann inn fyrir og sagði: “Guð sendir þér
þetta,” og fór svo leiðar sinnar.
í því heribergi, þegar hann opnaði, var
ekkja á knjánum með 7 húngruð börn í kring-
um sig. Hún bað Guð að senda sér hjálp í
dag.
Hjálpin var send á réttan stað og í réttan
tíma. “Hver hygginn er hann sér þetta, og
tekur eftir Drottins miskunsemdum.” Sálm.
T07 :43-
Ef vort andlega líf á ekki að deyja út þá
verðum vér að ástunda bæn til Guðs. Alveg
eins og líkami vor getur ekki lifað án fæðu,
getur heldur ekki vort andlega líf haldist við
án bænar. Þegar vér segjum að maður lifi
kristilegu lífi, þá meinum vér að hann lifir í
samfélagi við höfund og uppsprettu lífsins.
E. J. Hardy.
Hvaðanæfa
1. janúar 1937 voru 37,098,084 talsímar í
heiminum. Htelmingur þeirra var í Bandaríkj-
unum.
- Menn halda að Japanar hafi fleiri herskip
heldur en Bándaríkin eða Bretar.
Mannfjöldinn í New York er 7,400,000.
Parísariborg hefir hálfu færri íbúa, en þar er
haldið úti 120 fréttablöðum, en í New York
aðeins tuttugu og fjórum.
Þegar Ameríkumenn eru í efa um einhverj-
ar kurteisisreglur eða viðeigandi framkomu í
félagslífinu þá snúa þeir sér til Mrs. Emily
Post, sem á síðastliðnum 15 árum hefir skrif-
að um 5 miljón orð viðvíkjandi kurteisisregl-
um.
William R. Hearst hefir komið á fót stofn-
unum, semi nú veita 27,000 manna atvinnu, þar
af eru 23 dagblöð, eitt vikublað og 9 tímarit
í Bandaríkjunum og 3 tímarit á Englandi.
Hearát er nú 75 ára að aldri.
Myllueigendur á Englandi hafa verið hvatt-
ir.til, af stjórninni, að byrgja sig vel upp með
vistaforða og það tafarlaust; þeir keyptu þvi
53 miljón bushel af hveiti nýlega á þrem
klukkustundum, það eru einhver stærstu inn-
kaup, sem gjörð hafa verið á friðartímum.
Fimm hundruð ára gamalt eintak af ensku
Biblíunni var nýlega gefið fyrstu Presbytera
kirkjunni í Eake Forest, 111. Bókin er fimnr
þumlungar á þykt, og vegur 50 pund.
Strætisvagnafélagið í Philadelphia hefir nú
ákveðið að stærð, en ekki aldur, skuli koma til
greina þegar er að tala um hvort barn fái frítt
far á spörvögnum eðá ekki. Félagið hefir sett
slá í alla vagnana, 35 þumlunga frá gólfi. Barn
sem getur gengið upprétt undir slána þarf ekki
að borga fargjald.
Herkostnaður Evrópu árið 1912 var 3 bilj-
ónir dollara, en árið 1938, 20 árum eftir stríð-
ið mikla, er herkostnaðurinn 8 biljónir.