Stjarnan - 01.12.1940, Side 1

Stjarnan - 01.12.1940, Side 1
STJARNAN DESEMBER, 1940 LUNDAR, MAN. Gleðileg Jól Fögnuður Guðs barna um komandi há- tíðar og endranær er ekki bygður á neinum jarðneskum hugsjónum velmegunar, upp- hefðar, auðs eða skemtana, heldur á Guðs óbrgiðulu fyrirheitum: “Sjá, eg er með yður alla daga, alt til veraldarinnar enda.” “Ef Guð er með oss hver er þá á móti oss?” Hann sem stöðvaði vindinn og sjáv- arólguna með einu orði, hann, sem hefir alt vald á himni og jörðu hann býður oss: “Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, eg vil gefa yður hvíld.” Jesús gaf líf sitt út fyrir okkur, hann reis upp oss til réttlætingar og situr nú við hægri hönd Guðlegri hátign á hæðum og biður fyrir oss. Sem Guðsbörn og erf- ingjar hans eilífa ríkis getum vér litið með vonargleði fram á ókomna tímann og glaðst óútmálanlegum og dýrðlegum fögn- uði í samfélaginu við hann, sem bráðum kemur til að ummynda líkama vorrar læg- ingar svo hann verði líkur hans dýrðar- líkama. f nafni hans óska eg öllum lesend- um Stjörnunnar sannrar hamingju og gleðilegra hátíða. S. Johnson. Lifandi trú Lærisveinarnir báðu: “Auk þú oss trúna.” Ef þér hefðuð trú eins og' mustarðskörn þá munduð þér geta . . .” Lúk. 17:5-10. Það sem alt er undir komið er, að trúin sé lifandi, ekki hvort hún er stærri eða minni, sterkari eða veikari. Mustarðs- kornið er minst allra frækorna, en sé það lagt í jörðina frjófgast það og vex, og verður eins og stórt tré. Þannig er því varið með lifandi trú þegar henni er komið í framkvæmd. Lifandi trú er starfandi trú. Það voru sjúkir menn og konur alt umhverfis í landinu þessi ár sem Jesús ferðaðist um til að Iækna og kenna. Sjúklingarnir fréttu af honum. Það vaknaði hjá þeim von um að þeim yrði lækningar auðið. Þeir sátu nú ekki kyrrir og hugsunarlausir heldur spurðust fyrir hvar Jesús væri, og hvort hann mundi bráðum vera væntan- legur þeirra leið, eða hvort þeir mundu þurfa að ferðast til að leita hans. Stund- um fóru menn langa leið til að finna hann, en þá var hann ef til vill farinn á bát yfir vatnið, þá biðu þeir komu hans yfir aftur og horfðu eftirvæntingarfullir eftir bátn- um, sem hann mundi koma með. Þetta var lifandi og starfandi trú og hún er aldrei árangurslaus. Jesús hjálpaði þeim ætíð. Það er einungis hin lifandi og starfandi trú, sem getur öðlast og tekið á móti náðargjöfum Guðs. Lifandi trú sigrar allar hindranir. Hún er eins og mustarðskornið, sem sáð er í jörðina, það vex og ryður sér veg gegnum jarðlagið, sem ofan á því er. Þannig sigrar hin lifandi trú alla erfðileika. Hún telur ekki eftir sér hina mestu reynslu til að ná takmarki sínu, hún biður með þolin- mæði og þrautseigju eftir tækifærinu og þegar það býðst þá lætur hún ekkert aftra sér. Blindu mennirnir við Jeríkó, sem hrópuðu til Jesú, hrópuðu þvi hærra og ákafar, þegar menn vildu reyna að aftra þeim. Blóðfallssjúka konan tróð sér gegn- um mannþröngina í þeirri öruggu trú, að gæti hún aðeins snert klæðafald Jesú, þá mundi henni batna. Lifandi trú útréttir báðar hendur eftir

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.