Stjarnan - 01.12.1940, Side 6

Stjarnan - 01.12.1940, Side 6
102 STJARNAN um kröfum Guðs, hann getur líka í'relsað til hins ýtrasta alla sem koma til Guðs fyrir hann. “Ef nokkur syndgar þá höfum vér talsmann hjá Föðurnum, Jesúm Krist hinn réttláta.” 1. Jóh. 2:1. “Því Kristur er ekki inngenginn í þann helgidóm, sem með höndum sé gjörður, og sem einungis er eftirmynd hins sanna helgidóms, heldur er hann inngenginn í sjálfan himininn, til þess nú að birtast fyrir Guðs augliti vor vegna.” “Þess vegna getur hann líka ætíð frelsað þá, þar hann æ lifir til að tala þeirra máli.” Hebr. 9:24 og 7:25. Til að öðlast þá náð, sem vér þurfum á degi dómsins, þá verðum vér áður en sá dagur rennur upp, alvarlega að iðrast synda vorra og fyrir lifandi trú á Krist öðlast kraft til að sigra synd og freistingar og trúa því einlæglega, að Jesús dó fyrir vorar syndir og hans blóð hreinsar oss af allri synd. Vér verðum líka að temja oss það hug- arfar og æfa þá breytni, sem er í samræmi við Guðs heilaga lögmál. Aðeins með þessum skilyrðum getur Jesú heilaga líf orðið tilreiknað syndaranum á hinum mikla reikningsskapar degi. Guði sé lof, þetta er mögulegt, þvi Drottinn hefir sjálfur sagt: “Eg, eg einn afmái afbrot þín sjálfs mín vegna og minnist ekki synda þinna.” Jes. 43:25. “Hver sem kannast við mig fyrir mönnum, við hann mun eg einnig kannast fyrir mín- um föður á himnum.” Matt 10:32.33. Satan getur ekki komið frarn ásökunum sínum móti iðrandi syndurum, því Jesús hefir með sínu dýrmæta blóði borgað syndaskuld þeirra. Sá, sem hefir Jesúm fyrir sinn talsmann fær fyrirgefningu allra sinna synda, hann stendur sýknaður. Og þegar Jesús kemur í dýrð sinni, þá er sagt um hann að “hann skal skrýðast hvít- um búningi.” Um þá trúuðu er sagt: “Eg mun fyrirgefa misgjörðir þeirra, og ekki framar minnast synda þeirra.” Jer. 31:34. W. G. Turner. Litli kriátniboðinn Ghnnar litli lá hálfur upp á skrifborði föður síns og teiknaði svartan dreng með þykkar varir og talaði upphátt við sjálfan sig: “Þetta er nú negra drengurinn, en nú ætla eg að fara og hjálpa honum.” Svo teiknaði hann hvítan dreng, sem rétti negra drengnum hendina. “Hvað varst þú að segja?” spurði faðir Gunnars sem kom inn rétt í þessu. “Pabbi, eg ætla að verða kristniböði,” svaraði Gunnar litli. “Kristniboði,” endurtók faðir hans og brosti. “Ætlar þú að verða kristniboði? Eg efast um þú vitir hvað orðið kristni- boði meinar.” “Eg veit það,” svaraði Gunnar, “eg lærði það í Biblíuskólanum í dag.” “Segðu mér þá hvað þú hefir lært,” sagði faðir hans og settist við skrifborðið, en Gunnar svaraði: “Langt, langt í burtu er fólk, sem ekki veit að Guð er svo góður. Þeir eru kall- aðir heiðingjar. Þeir vita ekki að Guð elskar þá, ’þeir halda hann vilji gjöra sér ilt, og þeir eru ósköp hræddir að deyja.” “En ert þii ekki hræddur að deyja?” greip faðir hans fram í. “Nei,” svaraði Gunnar. “Eg veit þó eg deyi þá rís eg upp aftur og kem til Guðs; það sagði kenslukonan mér, þú veizt það víst, pabbi.” Faðirinn kannaðist við hann vissi það, þó hann hefði ekki hugsað um það lengi. Svo hélt Gunnar áfram. “Það eru til menn og konur, sem vilja hjálpa vesalings heiðingjunum, þeir ferð- ast til þeirra og segja þeim hvað Guð er góður og hve innilega hann elskar þá. Þetta ætla eg að gjöra þegar eg verð stór og þá verð eg kristniboði.” Gunnar var svo ákafur að hann veitti því ekki eftirtekt að faðir hans hafði tár í augunum er hann svaraði: “En Gunnar, kristniboðarnir verða að minsta kosti að geta beðið til Guðs, og það getur þú líklega ekki, ekki hefi eg kent þér það, og móðir þín dó áður en þú varst nógu stór, svo hún gæti kent þér það.” “Eg get beðið Guð,” sagði Gunnar. “í dag þegar öll hin börnin voru farin, spurði eg kenslukonuna hvort hún héldi að Guð viídi eg yrði kristniboði. Hún hélt að Guð vildi það, og þegar eg yrði stór þá mundi hann sýna mér hvort það

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.