Stjarnan - 01.08.1942, Qupperneq 2
66
STJARNAN
sem í Kristo eru dánir munu fyrst upprisa,
síðan munum vér, sem eftir erum lifandi
verða hrifnir til skýja ásamt þeim til
fundar við Drottinn í loítinu, og munum
vér síðan með Drottni vera alla tíma.”
I. Þess. 4:16-17.
Hann mun korna á sama hátt og hann
fór samkvæmt vitnisburði englanna, sem
birtust lærisveinunum: Ský nam hann frá
augum þeirra. Jóhannes postuli er þessu
sammála er hann segir: “Sjá hann kemur
í skýjunum og hvert auga mun sjá hann
. . . og allar kynkvisiir jarðarinnar munu
fyrir honum skelfast.” Op. 1:7. Endur-
koma Krists skeður ekki í leyni án þess
fjöldinn viti og sjái. Enginn atburður
liðna tímans getur jafnast á við dýrð
ltomu hans. “Því eins og eldingin út-
gengur frá austri og skín alt til vesturs,
eins mun verða tilkoma mannsins sonar.”
Matt. 24:27.
Þessir textar sýna ljóst á hvern hátl
hann kemur og þó eru fjölda margir, sem
halda áfram að vænta hans aðeins á and-
legan hátt, sem anda á leyndum stað, eða
í einhverju sérstöku plássi. Jesús býður
oss: “Vakið . . . svo að hann finni yður
ekki sofandi þegar hann skyndilega kem-
ur.” “Verið þér þvi viðbúnir, því manns-
ins sonur inun koma þegar þér sízt ætlið.”
Þessar skipanir frelsarans ættu að knýja
og hvetja hvern einasta kristinn mann til
að hugsa alvarlega um þennan atburð,
sem nú er rétt í nánd.
óvinur alls hins góða er ætíð reiðubú-
inn að leiða menn afvega og burt frá sann-
leikanum. Hann hefir gegnum aldirnar
reynt að blinda hugskot manna með því
að taka nokkuð af sannleika og setja mili-
ið af lýgi saman við. Gyðingaþjóðin vænti
Messíasar um það tímabil, sem Jesús kom
i heiminn, en Satan hafði umsnúið sann-
leikanum um það hvernig hann kæmi svo
mikið, að þjóðin kannaðist ekki við hann
þegar hann kom. Svipuð sjónhverfing á
sér slað í heiminum nú á tímum. Endur-
koma Krists er nálæg, fleatir kristnir menn
játa það. Flestir spádómarnir sem benda
á komu hans eru þegar uppfyltir, eða eru
að uppfyllast. En aftur er fólkið leitt af-
vega því viðvíkjandi hvernig hann muni
koma. Flóðalda falskenninga fer yfir
heiminn á þessum síðustu dögum, sem
heldur þvi fram að hann komi ineð “hrifn-
ingu” þegar þeir, sem tilbúnir eru verða
teknir frá heimili og vinum inn í dýrðina.
Aðrir kenna að hann muni koma í kyrþey
sem andi, ennþá aðrir að hann muni birt-
ast á einhverjum stað sem andi til að
lækna þá sjúku og reisa upp dauða, en
annars láti hann fjöldann halda áfram svo
öldum skiftir á sama hátt og verið hefir.
Þessar kenning'ar eru alveg gagnstæðar
Heilagri Ritningu og því sem Jesús sjálfur
vitnar um tilkomu sína.
Bilblían kennir að Jesús kemur per-
sónulega, sýnilegur, með valdi og mikilli
dýrð. Hvert auga mun sjá hann. Hvernig
eru þá alilar þessar inismunandi kenning-
ar um komu hans tilorðnar? Allar fals-
kenningar koma frá óvin sannleikans.
Jesús gefur oss þessa aðvörun, sem einmitt
tilheyrir tímanum þegar koma hans nálæg-
ist. “Þó einhver segi yður þá að Kristur
sé hér eður þar, þá skuluð þér ekki trúa,
því falskristar og falskennendur munu þá
upp koma og gjöra stór undur og tákn, svo
að í villu munu leiðast ef unt væri jafnvei
útvaidir, gætið nú þess að eg hefi sagt yður
þetta fyrir. Þegar þeir nú segja að hann
sé í eyðimörku, þá farið ekki út þangað,
og þegar þeir segja að hann sé í launkof-
um, þá trúið því ekki. Því eins og elding-
in útgengur frá austri og skín alt til vest-
urs, eins mun verða tilkoma mannsins
sonar.” Matt. 24:23-27. Þetta er svo skýrt
sem orð geta lýst þeim mikla viðburði.
Hver er iilgangurinn með komu hans?
Jesús kemur ekki nú til að umvenda
heiminum. Þegar hann kom hið fyrra
skifti, kom hanni til að leiða í ljós “líf og
ódauðleika með fagnaðarerindinu.” Þá
kom hann til að frelsa sitt fólk frá þess
syndum. Hann kom sem “ljós heimsins.”
Þessar aldir síðan hefir gleðiboðskapurinn
verið fluttur til allra þjóða, kynkvísla og
tungumála, svo allar þjóðir vita eitthvað
um hinn krossfesta og upprisna Krist.
Spádómur hans skömmu áður en hann var
krossfestur hefir ihaft undraverða uppfyll-
ingu: “Kenningin um Guðs ríki mun uiri
gjörvalian heim boðuð verða til vitnisburð-
ar öllum þjóðum og þá mun endirinn
koma.” Matt. 24:14.
Þegar Jesús kemur aftur kemur hann
sem konungur konunganna og Drottinn