Stjarnan - 01.08.1942, Síða 4

Stjarnan - 01.08.1942, Síða 4
68 STJARNAN er svo sterk að himin og jörð skjálfa; þungur jarðskjálfti kemur næst; “Svo að slíkur hefir eigi komið frá því menn urðu til á jörðunni, jafn ákaflega mikill jarð- skjálfti.” Op. 16:18. Það er eins og fest- ingin opnist og lokist. Það er sem dýrð Guðs ljómi yfir alt. Fjöllin hreyfast eins og reyr í vindi og steinar og björg kastast í allar áttir. Dynur heyrist eins og heljar- stormur sé í nánd; sjórinn rótast upp með ógnandi öldugangi hávær fellibylur heyrist eins og raddir þúsund djöfla, sem komið hafi til þess að tortíma. öll jörðin gengur upp og niður í bylgjum eins og hafið sjálft. Jarðskorpan springur. Það er sem sjálfar undirstöður jarðarinnar hafi raskast, fjall- garðar lækka og sökkva; heilar eyjar hverfa með fólki og öllu saman; hinar ægi- legu bylgjur hafsins svelgja heilar sjó- borgir, sem orðnar voru álíka spiltar og Sódóma. Babýlon hinni miklu hefir ekki verið gleymt, hún birtist nú frammi fyrir Guði “og hann gaf henni vínbikar heiftar- reiði sinnar.” (Op. 16:19). Mikil haglél munu dynja yfir og munu höglin, sem hvert um sig er “vættarþungt” eyðileggja alt, sem fyrir verður. Skrautlegustu borg- ir munu hrynja til grunna; konunglegar hallir, sem auðmenn heimisins hafa lagt fé sitt í af hégómagirni, munu molast i sund- ur í agnir í augsýn þeirra.” Eyðilegging jarðarinnar, sem hér er lýst ryður veginn fyrir stofnun Krists ríkis. Spádómur Daníels kemur fram með sömu hugsun. Hið mikla líkneski í öðrum kapítula Daníels fyrirmyndar þjóðirnar frá tíma Babýlonar alt til hinna náverandi ríkja Evrópu. Þegar þessi isiíðarnefndu ganga til grunna, mun Guð himnanna hefja eitt ríki, sem aldrei skal til grunna ganga, og það ríki skal engu öðru fólki í hendur fengið verða, það mun knosa og að engu gjöra öll þessi ríki, en sjálft skal það standa að eilífu.” Dan. 2:44. Ert þú reiðubúinn að mæta Guði? Það verður fólk á jörðunni sem verður reiðu- búið að mæta honum; um það segir spá- maðurinn: “Á þeim degi mun sagt verða: Sjá, þessi er vor Guð, vér vonuðum á hann að hann fretsaði oss. Þessi er Drottinn, sem vér vonuðum á. Látum oss fagna og gleðjast af hans hjálpræði.” Jes. 25:9. Þetta fólk verður lýtalaust. Það hefir á- kallað Guð, vakað og beðið hins dýrðlega endurkomudags frelsarans. Það hefir ekki látið hrekjast af hverjum kenningarþyt falskra kenninga. Það hefir haldið sér við kenningar Heilagrar Ritningar og búið sig undir endurkomu Ivrists. Á vakningasamkomu, sem haldiu var í einni af stórborgum Suðurríkjanna stóð gamall prestur upp eftir að menn höfðu aftur og aftur verið hvattir til að gefa Guði hjarta sitt, og bað um Ueyfi til að segja sögu. Þetta var innihald hennar. Þegar hann var drengur bjó hann ná- lægt Atlantshafinu. Ströndin var sendin og mjög var þar vindasamt. Einn morgun þegar hann fór snemma á fætur, sá hann skip, sem hafði rekist á grunn þar rétt fyrir framan. öll segl voru uppi. Hann vonaði þegar flóðið kæmi þá mundi það lyfta skipinu svo það gæti haldið leiðar sinnar. Flóðið kom og lyfti skipinu og vindurinn þandi seglin. Þeir, sem á horfðu hrópuðu: “Sigldu út, sigldu út.” En skipið hreyfðist ekki. Þegar fjaraði aftur sökk skipið dýpra en fyr ofan í sandinn. Nú hugsaði hann að með næsta flóði, sem yrði enn hærra, þá mundi skipið ef- laust geta losnað og siglt þangað sem fierð- inni var heitið. Flóðið kom, skipið hækk- aði lítið eitt, og vindurinn þandi seglin. En það var eins og eitthvað héldi skips- skrokknum niðri, þegar fjaraði sökk skip- ið enn dýpra en fyr. Nóttina eftir kom ofvið^i frá hafi og næsta flóð braut upp skipið og kastaði flekum þess upp á ströndina. Þannig er það með margan manninn, þegar hann er hvattur að snúa sér til Guðs. Guðs andi snertir hjarta hans. Náð Guðs leitast við að lyfta þér svo þú getir komist inn í höfn friðarins hjá Guði. Heyrir þú kall hans? Viltu gefa Guði hjarta þitt, eða lætur þú hinn sökkvandi sand heimsins halda þér föstum? Ætlar þú að eiga á hættu að missa hið eilífa lífið, meðan þú slær á frest að isnúa þér? Jesús býður þér að koma til sín nú, eins og þú iert. Viltu koma til hans? E. L. Cardey. Hinn fyrsti hviti innflytjandi, sem menn vita til að hafi búið til maple-sykur var skipsjtóri, Samuel Robison af Benning- ton, árið 1752.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.