Stjarnan - 01.08.1942, Side 5

Stjarnan - 01.08.1942, Side 5
STJARNAN 69 Vitur móðir Á heimili Mrs. Herhert voru tveir clreng- ir, Tom og Rob að fara í leik. Móðir þeirra sneri sér við og við frá gesti sínuni til að líta á klukkuna og sjá hvernig þeim gengi með leikinn. “Drengir, nú er tíu mínútur til átta,” sagði hún ósköp rólega, “hafið þið lokið við leik?” “Já, og eg vann,” svaraði sá yngri, heldur hróðugur. “Þið hafið nógan tíma fyrir einn leik enn, held eg, en svo er háttatími.” Það var þrem mínútum eftir 8 þegar leiknum var lokið. Það leit út eins og Mrs. Herbert hefði ekki gefið neinn gaum að klukkunni, og hún hafði ekkert rekið eftir drengjunum. Þegar leiknum var lokið, tóku þeir saman leikföng sín, settu stólana á sinn stað, buðu góða nótt og voru að tala um leikinn meðan þeir fóru út á ganginn. Þeg'ar Mrs. Herbert kom inn aftur, eftir að hafa fylgt þeim upp í svefnhei'bergið, þá spurði vinkona hennar hvort drengirnir væri altaf svona góðir að fara í rúmið. “Já, ef eg gæti þess að gjöra skyldu mína. Eg skipa þeim aldrei snögglega að fara í rúmið. Hvort sem þeir fara í leik eða hafa sögu að lesa, eða eitthvað annað sem þeir skemta sér við. Börn hugsa ekk- ert um tíma og biðja um fáeinar mínútur, svo eg hefi fundið upp á að hafa gætur á klukkunni, þegar eg segi þeim eftir næsta leik sé háttatími þá venjulega eru þeir á- nægðir og fara að hátta eins og í kvöld. Þeir eru farnir að læra lexíuna, því Tom, eldri drengurinn >er farinn að athuga hvaö klukkan sé. Einstöku sinnum hefi eg heyrt hann segja við Rob: Við höfum tíma aðeins fyrir einn leik enn, svo þú verður að flýta þér. Það ætti ekki að líða á löngu þar til þeir sjálfir geta haft ábyrgð á því að fara í rúmið á réttum tíma.” —National Kindergarten Association. Pearl Harbour Vér vöknuðum sem við vondan draurn sjöunda desember 1941. Nú var fengiö svar við því sem svo oft hafði verið slegið fram: “Það kemur aldrei fyrir hér.” Hversu voðalega höfum vér dregið sjálfa oss á tálar. Það sýndi sig í skýrslunni um skelfingarnar á Perlu-höfninni. Það sýnir ljóslega ásigkomulag vor Ameríkumanna, um leið og það bendir ásakandi til tveggja manna, foringja sjóliðsins og hershöfð- ingja landhersins á Hawaii. Dagblað eitt i New York segii-: “Skýrs!- an bendir á fyrirhyggjuleysi bæði hjá yfir- mönnum hersins og flotans á Hawaii, þög- ular mannlausar byssur, engin trú á þvi að hætta gæti verið á ferðum, jafnvel þó maður, sem óbeðinn stóð á verði varaði við því að óvinaflugher væri að nálgast klukkan rúmlega 7 þennan sunnudags- inorgun sem áhlaupið byrjaði, ónógar byrgðir af skotfærum, og skortur á sam- vinnu milli hersins og flotans. Sú ímyndun að vér yrðum aldrei fyrir áhlaupi, algjör vöntun á samvinnu milli hersins og flotans voru aðalorsakirnar til niðurlægingar vorrar á Hawaii. Þetta þurfum vér að taka oss til aðvörunar. Hversu lengi höfum vér ekki verið varaðir við því, að Jesús kæmi skyndilega og hví- líkar skelfingar þá munu eiga sér stað. Oss hafa verið gefin ótvíræð merki þess að endir allra hluta er í nánd. Margir hafa veitt þessum táknum eftirtekt. Hvernig snúum vér oss gagnvart því er vér sjáum þessi tákn alt umhverfis oss? Segjum vér með sjálfum oss: “Það getur ekki orðið svo fljótt, og ef til vill aldrei.” Leyfum vér trúleysi og alvöruleysi voru að svæfa oss svo að vér ekki gefum gaum að að- vörun Krists um að vera sífelt vakandi og biðjandi, þegar koma hans er í nánd"? Höfum vér meðal vor þá einingu andans, og þá samhygð og samvinnu, sem tryggir oss vissan sigur? Lexían frá Pearl Harbour er þörfin á einingu og að -standa á verði. Vér getum náð oss eftir skaðan, sem þar gjörðist. En Guðs börn verða að standa á verði, vera

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.