Stjarnan - 01.08.1942, Síða 7

Stjarnan - 01.08.1942, Síða 7
STJARNAN 71 eins og hún blasti við frá LeConte fjalls- hæðinni. að var hjartans ósk lians að fólkið hans mætti vera kyrt ú fjalllendinu þar sem það hafði fæðst og alist upp, svo það gæti notið ánægjunnar í heimkynni feðra sinna alla ókomna tíma. Höfðinginn leit á elzta son sinn sem stóð tignarlegur hjá stóru grenitré. Hann leit annan son sinn, sem stóð hreyfingar- laus skamt þaðan en reiðubúinn að koma föður sínum til vornar ef á þurfti að halda. Svo leit hann á þriðja son sinn, sem var of ungur til að skilja hvað stundin var alvar- leg. Loks svaraði Tsali: “Við skulurn fara.” Höfðinginn Tsali og synir hans lögðu líf sitt fram til að kaupa þessum tvö þús- und og þrjú hundruð afkomendum Chero- kee-kynkvíslarinnar leyfi til að búa áfrarn á stöðvum forfeðra sinna, rétt hjá Great Smoky Mountain skemtigarðinum. Þeir geta flutt þaðan ef þeir vilja, en þeir hafa rétt til að vera þar um ókomnar aldir. Fyrir tvö þúsund áruim síðan var það annar konungssonur, sem keypti fólki sínu frelsi með sínu eigin lífi. Margar kynslóð- ir hver eftir aðra höfðu glatað eignarrétti sínum og' arfleifð sinni með því að hafna sendiboðum konungsins og neita að hlýða boðum hans. Svo gekk einkasonur konungsins fram og bauðst til að borga þjóðarskuldina, og leggja lif sitt fram mörgum til frelsunar, Yður er kunnugt um svar föðursins: “Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf sinn ein- getinn son, til þess að hver sem á hann trúir ekki glatist, heldur hafi eilíft líf.” Jóh. 3:16. Jesús borgaði lausnargjaldið fyrir þig og mig. Þú hefir frjálsræði til að meðtaka eða hafna tilboði hans um hina eilífu arfleifð, alveg eins og Indíán- arnir eru til að vera, eða fara af eign sinni. Hvað ræður þú af að gjöra? Þigðu til- i)oð hins guðdómlega kærleika, trygðu þér fullvissuna um að nafn þitt sé ritað á himnum. Gakk í félag með þeim, sem meðtekið hafa tilhoð Drottins um hlutdeild í hans dýrðlega íáki og ásettu þér að njóta þess um eilífar aldir. fí. M. Charland. Hann elskaði móður sína Þetta var á stríðstíma á herskipinu Boston. Einn af drengjunum smeygði sér úr jakkanum sínum, en hann var svo ó- heppinn að jakkinn féll út fyrir borðstokk- inn. Drengurinn sneri sér að yfirmanni sínum sem nærstaddur var og bað um leyfi til að kasta sér útbyrðis og ná í jakk- ann, sem flaut á vatninu. Hann fékk ekki leyfi til þess, svo hann fór yfir að hinni skipshliðinni, kastaði sér útbyrðis, synti kringum skipið og náði jakkanum. Svo synti hann til baka og klifraðist upp skips- hliðina. Yfirmaðurinn sá til hans og' lét setja hann í fangelsi. Þegar striðið var á enda var pilturinn ákærður fyrir óhlýðni á stríðstímanum. Hann var sekur, en dómur herréttarins varð að koma fyrir yfirmann flotans, Dewey. Hann sendi eftir drengn- um og spurði hann vingjarnleg'a hvers vegna hann hefði átt á hættu að líða þunga hegningu fyrir að ná í jakkann. Dreng- urinn svaraði að mynd móður sinnar hefði verið í einum vasanum, og hann hefði ekki getað hugsað til að tapa henni. Hinn hrausti flotaforingi tók drenginn og faðm- aði hann að sér. Hann skipaði að láta kæruna falla niður og sagði: “Menn, sem elska móður sína svo mikið að þeir leggja líf sitt í hættu fyrir mynd hennar mega ekki vera settir í fangelsi á skipum, sem eru undir minni stjórn.” X. X. Til íhugunar. Hér fer á eftir partur af bréfi fná presti í Bournemouth á Englandi til fólksins á Bretlandi: “Vér höfum ekki skeytt kirkjuklukk- unurn þegar hringt var til guðsþjónustu. Nú mega þær ekki hringja nema til aö vara við árásum óvinanna. “Peningar, sem vér ekki vildum gefa lil eflingar Guðs ríki eru nú teknir frá oss í sköttum og hækkuðu vöruverði. “Fæða, sem vér gleymdum að þakka Guði fyrir fæst nú ekki lengur. “Þjónusta, sem vér neituðum að gefa Guði er nú heiintuð til landvarnar. —Sunday School Times.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.