Stjarnan - 01.08.1942, Qupperneq 8
72
STJARNAN
Lítil svensk stúlka virtist alveg niður-
sokkin í hugsanir vetrarkvöld eitt í heið-
skíru veðri. Himininn var alsettur skín-
andi stjörnum. Faðir hennar spurði hvað
hún væri að hugsa um. Hún svaraði:
“Eg var einmitt að hugsa um að fyrst út-
hverfa hliðin á himninum er svona yndis-
lega falleg, hvað dæmalaust fögur hlýtur
þá rétta hliðin að vera.”
“Gætið varúðar í hegðun yðar, ekki
sem fávísir heldur vísir. Hagnýtið tímann
því nú eru hættulegir tímar. Verið ekki
fávisir, heldur skynjið hver að er Drott-
ins vilji. Og drekkið yður ekki drukna
af víni því að í því er andvaraleysi, heldur
fyllist andagift. Og hafið yfir með yður
sálma, lofkvæði og andlega söngva; syngið
og leikið Drotni lof í yðrum hjörtum.
“Þalckið jafnan Guði fyrir alla hluti i
nafni Drottins vors Jiesú Krists.” Efes.
5:15-20.
Smávegis
Mörg vagnhlöss af hvítum úrgangs
karötflum, sem bændur áður voru vanir að
fleygja, verða nú sendar í tvær stífelsis
verksmiðjur, sem nýlega voru settar upp í
Idaho. Menn vænta þess að þær framleiði
um 20 skippund af stífelsi á dag. Verk-
smiðjurnar eru í Blackfoot og Twin Falls.
f -f f
Það sem safnað var saman nýlega í
Bandaríkjunum af brúkuðu aluminum var
um 14 milj. pund. Það er nóg i 2800
flugvélar.
f f f
Engin lyftivél má stöðvast fyrir neðan
5. loft í París. Þessi skipun var gefin til
að spara rafmagn.
f f f
Pípur 236 mílur á lengd hafa verið
lagðar milli Montreal, Canada og Portland,
Maine, til að flytja óhrieinsaða oliu. Kostn-
aðurinn við þetta fyrirtæki var 81/2 miljón
dollara. Áður varð að flytja olíuna kring-
um Nova Scotia og eftir St. Lawrence fljót-
inu. Sú ferð tók 12 daga til að fara fram
og aftur.
f f f
Sérfræðingar á Galiforníu “University”
staðhæfa að ein kýr spari fjölskyldunni
100 dollara á ári með mjólkurafurðum.
STJARNAN kemur út einn sinni á mán-
uði. Verð: $i.oo á ári. Borgist fyrirfram.
Publishers: The Canadian Union Con-
ference of S. D. A., Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can.
Sviss er hið elzta lýðveldi heimsins.
f f f
Það tekur 32 pund af nýjum eggjum
lil að framleiða eitt pund af þurkuðum
eggjum. Þetta mætir þörfum vorum nú,
til þess að geta flutt mikil matvæli sem
hvorki séu þung eða fyrirferðarmikil að
flytja yfir Atlantshafið.
f f f
Mr. Bernard Kellmurray, útskrifaður
frá Yale “University,” varð blindur árið
1936, af því sjónartaugin bilaði. Eftir 5
ára blindu fékk hann sjónina aftur án
þess hægt sé að skýra frá þvi vísindalega
hvernig það atvikaðist. Þegar hann mint-
ist á þetta sagði hann að ‘breytingin á
kvenfatnaði og hvernig þær settu upp hár-
ið hefðu mest vakið athygli hans af öllum
þeim breytingum, sem gjörst 'hefðu þessi
5 ár. Hundurinn sem i þessi 5 ár leið-
beindi honum ier nú aðeins félagi hans.
Og virðist svo sem héppi skilji ekki hvern-
ig á því stendur.
f f f
Þorpið Canterbury í Connecticut hefir
ákveðið að heimta enga skatta fyrir fjár-
hagsárið 1941—1942 vegna þeiss nóg fé er
í fjárhirzlu þorpsins. Skattheimtumaður-
inn, sem þessvegna er atvinnulaus, segist
hafa nokkra smásnúninga við að heimta
gamla skatta, o. fl.
f f f
Þeir, sem vinna í skrifstofum New
York ríkis eru ámintir um að spara sem
mest pappír, títuprjóna og papþírsklemm-
ur. Þeir sem nota ritvélar eiga að skila
spólunum sem ritvélaborðarnir eru undnir
á. Umslög, sem send eru frá einni skrif-
stofu til annarar eiga ekki að vera límd
aftur, svo hægt sé að nota þau oftar. Það
er stungið upp á að ef utanáskrift er rituð
efst til vinstri handar, svo strykuð yfir og
skrifuð aftur, þá megi nota sama umslag-
ið 12 sinnum.