Stjarnan - 01.09.1942, Síða 5

Stjarnan - 01.09.1942, Síða 5
STJARNAN 77 kominn til að taka þig sér fyrir konu.” Hún svaraði: “Faðir minn, eg er kristin, og get ekki gift mig heiðingja.” “Þú verður að giftast honum, það er siður þjóðar vorrar. Hann hefir borgað mér alla gripina; þú verður að fara með hon- um og vera kona hans.” Þrátt fyrir fortölur föðursins og á- minningar frænda og vina þá sat stúlkan við sinn keip. Nú talaði afi hennar við hana. Hinir gráhærðu eru heiðraðir í Afríku, en í þetta skifti höfðu tillögur afa hennar engin áhrif. “Eg er kristin, afi minn,” sagði hún, “og kristnir eiga ekki að giftast heið- ingjum.” “Hver hefir heyrt annað eins? Hvers konar stúlka ert þú, að óhlýðnast föður þínum og hafna þjóðarsiðum vorum. Þú verður að giftast honum.” “En eg get það ekki, afi minn. Eg er kristin.” Nú var hin seinasta tilraun gjörð. Það var farið með stúlkuna til höfðingjans. Hann spurði hana mjög alvarlega: “Er því svona varið að stúlkan óhlýðnast föður sínum. Skil eg það rétt að þú vilt ekki giftast manninum, sem hefir borgað fyrir þig?” “Höfðingi,” svaraði hún, “þú ert krist,- inn (hann var katólskur) er það rétt fyrir þann, sem er kristinn að giftast heið- ingja?” “Eg er höfðingi. Eg get gifst hverjum sem eg vil. Þú ert bændastúlka. Faðir þinn er bóndi. Þú verður að gjöra það, sem þér er sagt. Gripirnir hafa þegar verið étnir, svo hvað getur þú gjört?” Alt, sem vesalings stúlkan gat sagt var þetta: Eg er kristin. Eg hefi gefið Jesú hjarta mitt. Eg get ekki, eg vil ekki giftast heiðnum manni.” Hér var staðfesta og sannfæring, sem þeir höfðu aldrei áður séð, svo þeir sögðu við stúlkuna: “Far þú þína leið, vér viljum ekkert með þig hafa.” Hún fór, en ekki sína leið. Hún gekk á Guðs vegi, og hann annaðist þetta trúfasta barn sitt. Hann bregst aldrei þeim, sem reynast honum trúir og hlýðnast boðum hans í smáu og stóru. Ungur innlendur starfsmaður vor heyrði um staðfestu þessarar stúlku og leitaði hana uppi, og eftir að hann hafði borgað til baka nautgripina, sem faðir hennar hafði tekið á móti, þá tók hann hana sér fyrir konu og þau unnu saman til eflingar Guðs ríki. Slík trúmenska og staðfesta ætti að vera oss til uppörfunar, sem höfum betri lifskjör. Hvort sem er að tala um félags- skap, skemtanir, eða nokkuð annað, þá ættum vér fúslega að fylgja áminning- um Guðs, hlýða orði hans, og standa stöð- ugir, óbifanlegir hvaða reynslu sem vér höfum að mæta. S. S. W. Er Guð smámunasamur? Hverjir verða frelsaðir í Guðs ríki? Það er sagt um Jesúm að hann væri “eftir sína upphafningu orðinn öllum þeim er honum hlýðnast undirrót til ævarandi farsældar.” Hebr. 5:9. Þessi texti segir ekki að allir muni frelsast, sem kalla sig kristna, eða allir, sem eru skírðir og fermdir, heldur allir, sem hlýða honum. Ef vér viljum frelsast, þá verðum vér hér í þessum heimi að kjósa að hlýða hans boðorðum. Hlýðir þú, hlýði eg öllum Guðs boðorðum? Er það nauðsynlegt að halda öll Guðs boðorð til þess að öðlast eilíft líf? Maður nokkur kom til Jesú og spurði: “Góði meistari, hvað gott á eg að gjöra til þess að eg öðlist eilíft líf?” Jesús mælti . . . ef þú vilt innganga til lífsins þá haltu boðorðin.” Matt. 19:16.17. Jesús á hér við'10 boðorðin. (Matt. 19:18). Eilíft líf er náðargjöf Guðs. Enginn getur á- unnið sér það því að halda Guðs boðorð, eða með nokkru öðru sem hann getur gjört, en gjöf eilífs lífs er bundin því skil- yrði að menn hlýði Guði. Hver sem vís- vitandi og viljandi fótumtreður nokkurt af Guðs boðorðum, kemst ekki inn í Guðs ríki. Ungi maðurinn hélt hann hefði haldið öll Guðs boðorð, en hann hélt ekki fyrsta boðorðið, því eignirnar voru hans guð. Margir, sem nú halda sunnudaginn heilagan, ímynda sér að þeir haldi öll Guðs boðorð, en þeir fótumtroða hvíldar- dagsboðorðið. Það er aðeins einn dagur

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.