Stjarnan - 01.09.1942, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.09.1942, Blaðsíða 8
80 STJARNAN Smávegis Ameríkumenn kasta í burtu 3000 skip- pundum af bezta stáli á ári hverju í brúk- uðum rakblöðum. ♦ + ♦ Churchill lét í ljósi ánægju sína er hann fékk 2 egg með morgunmatnum á heimsókn sinni í Bandaríkjunum. Á Eng- landi sagðist hann fá aðeins eitt egg á viku eins og aðrir. ♦ ♦ ♦ Hvítar kartöflur eru venjulega kall- aðar írskar kartöflur, vegna þess þær eru uppáhalds fæða íra. Sir Walter Raleigh flutti þær inn þangað árið 1586, og 'innan 20 ára voru kartöflur orðinn þjóðarréttur íra. Ætlað er að kartöflur hafi komist í svo mikið afhald hjá þjóðinni af því ó- vinir gátu ekki svo hæglega eyðilagt þær né flutt þær í burtu. Einn maður gat ræktað nóg af þeim til að fæða 40 manns. Þær voru venjulega látnar vera kyrrar í jörðinni og teknar upp aðeins jafnóðum og þær voru notaðar. Hungurs- neyðin á írlandi 1739 kom af því frost var harðara en venjulega svo uppskeran fraus í jörðinni um veturinn. ♦ ♦ ♦ Eitt hundrað manns voru drepnir dag hvern að meðaltali á götum og strætum Bandaríkjanna árið 1941. ♦ ♦ ♦ 2,600,000 manns í Bandaríkjunum eru daglega alvarlega veikir. Hver maður úti á landi missir eina viku frá vinnu yfir árið vegna veikinda, en kvenfólk missir ellefu daga. Alls tapast um 250 miljón dagsverk á ári vegna veikinda. ♦ ♦ ♦ Fyrsti maðurinn, sem lét taka úr sér heilt lunga til að losast við krabbamein er ennþá lifandi eftir 8 ár, og starfar að iðn sinni sem uppskurðarlæknir, eftir því sem Dr. E. Adams frá Chicago University segir frá. ♦ ♦ ♦ Hér um bil 20 manns deyja úr holds- veiki á ári í Bandaríkjunum. STJARNAN kemur út einu sinni á mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Publishers: The Canadian Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ont. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can. Samkvæmt frásögn blaðsins “Times” í New York, þá er íbúafjöldi þeirrar borgar eins mikill eins og íbúafjöldinn samtals í Suður Dakota, Norður Dakota, Montana, Idaho, Wyoming, Colorado, New Mexico, Arizona, Utah, Nevada, Oregon, Wash- ington, og meiri hlutinn af Nebraska. ♦ ♦ ♦ Sykurrófur ræktaðar í Wyoming hafa meira sykurefni heldur en þær, sem rækt- aðar eru í nokkru öðru ríki. ♦ ♦ ♦ Krabbamein hefir drepið fleira fólk í Bandaríkjunum síðastliðin 15 ár heldur en 15 ára stór stríð, sem Bandaríkin hafa orðið að berjast. Stríðin hafa kostað þjóð- ina 244,357 mannslíf, en krabbameinið 2,225,000. ♦ ♦ ♦ Þangað til nýlega hafa niðursuðuhús fyrir súra ávexti orðið að borga fyrir að láta flytja burt skinnið af appelsínum og vínsýru ávöxtum (grapefruit). En nú er farið að þurka þennan úrgang og nota fyrir skepnufóður. Skippundið af því er selt fyrir 30 dollara. ♦ ♦ ♦ June Millard, 13 ára gömul stúlka fékk nýlega 250 dollara verðlaun fyrir ráð- vendni. Hún fann 500 dollara seðil í stórri verzlunarbúð og afhenti hann lög- íeglunni. Daginn eftir sendi greifainna Guilleminot orð til verzlunarinnar, að hún hefði týnt seðlinum. En sú frétt komst ekki til lögreglunnar, svo eftir 6 mánuði var June tilkynt að hún gæti kom- ið eftir peningunum. Hún frétti að greifa- frúin hefði tapað 500 dollara seðli, svo hún skilaði henni peningunum og fékk helminginn af þeim að gjöf fyrir ráð- vendni sína.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.