Stjarnan - 01.12.1942, Page 1
STJARNAN
DESEMBER, 1942 LUNDAR. MAN.
Gleðileg jól
Drottinn er nálægur. Verið ekki hug-
sjúkir um nokkurn hlut, heldur látið í öll-
uin hlutum yðar óskir koma fyrir Guð x
bænaákalli með þakkargjörð. Þá mun
friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi
halda yða hjörtum og hugsunum stöðug-
lgea við Jesúm Krist.” Fil. 4:6.7.
Einungis á þennan hátt geta menn
notið verulegrar, stöðugrar og sannrar
hamingju í þessum heimi, já, og það þrátt
fyrir sorg og alls konar erfiðleika, sem
eru náttúrleg afleiðing af ástandi því, sem
nú er umhverfis. Jesús sagði fyrir að
það yrði hörmungatímar rétt áður en
hann kæmi aftur, en hann sagði læri-
sveinum sínum líka: “Þegar þetta tekur að
koma fram, þá lítið upp og upphefjið yðar
höfuð því að lausn yðar er í nánd." Lúk.
21:28. Loforð Jesú um að koma aftur
hefir verið vonarstjarna Guðs barna alt
í gegnum aldirnar.
Meðan vér erum að bíða hinna sælu-
ríku samfunda við frelsara vorn þá getum
vér notið forsmekks himneskrar gleði, er
vér rifjum upp fyrir oss hans dýrmætu
fyrirheit og notum oss náðargjafir hans.
Vér erum útvalin í Kristi áður en veröld-
in var grundvölluð (Efes. 1:4). “Með
þekkingu þess, sem oss hefir kallað hefir
hann veitt oss alt það, sem með þarf til
sannarlegs lífs og guðrækni. Vinir mín-
ir, blessun Guðs, fögnuður og friður í
heilögum anda stendur yður til boða. Með-
takið blessun Drottins. Takið upp þann
sið að lesa kafla úr Guðs heilaga orði og
biðja til Drottins frá djúpi hjartna yðar
meðan þér eruð öll saman við kveldverðar
eða morgunborðið, svo allir geti hlustað á
og notið blessunar af, sem á heimilinu
eru, og haldið þeim sama sið þótt einhver
utanheimilis sé viðstaddur, hann þarf þess
eins vel og þér sjálfir. Ef þér nú vissuð
að yfirstandandi tími væri seinasta vikan
eða seinasti mánuðurinn, sem þér gætuð
notið þessa jarðneska lífs, hvernig mund-
uð þér þá vilja verja tímanum? Vér
mundum án efa trúlega vilja rækja
skyldustörf vor, en um fram alt mundum
vér vilja hafa hugann á því himneska en
ekki því jarðneska. Látum oss því sem
Guðs börn byrja á þessu nú strax, lesa
Guðs orð reglubundið á hverjum degi,
biðja án afláts og hafa umgengni hjart-
ans á himni með Guði, þá munu allir
vorir ókomnu dagar verða blessunarríkir
gleðidagar. Aftur bið eg, ástvinir Guðs
og mínir: Guð gefi ykkur öllum gleðileg
jól!
S. Johnson.