Stjarnan - 01.09.1943, Page 6

Stjarnan - 01.09.1943, Page 6
78 STJARNAN hjálpar fyrir feður sína. En miklu fleiri voru þau börn sem vér urðum að neita um inngöngu og ekki lifðu til að verða mánaðargömul. Þau dóu fyrir vanþekk- ingu og skort á hreinlæti í kofum hinna innfæddu. Hvað lengi verða þessir munaðarlausu vesalingar að bíða þess að vér fáum nógu stórt heimili til að annast þau öll. Margar mæður deyja í þorpunum af því hinar heiðnu tengdamæður þeirra vilja ekki heyra að þær hafi aðra hjúkrun við barnsburðinn heldur en þær sjálfar höfðu. í þessari nýlendu með miljónum íbúa er Lögleysið Glæpir meðal æskulýðsins virðast fara meir og meir í vöxt. Stríðið sýnist hafa greitt veg hinum illu tilhneigingum hjá unglingunum í stórborgum vorum. Fyrir nokkru síðan heyrðum vér um óaldarflokk meðal unglinganna í Harlem, í borginni New York. Hundruð lögregluþjóna voru kallaðir til að stöðva glæpaverk og eyði- leggingu sem börnin gjörðu. Nokkru seinna fréttist frá borginni Los Angeles að í einu áhlaupi voru 300 unglingar hand- teknir á aldrinum milli 14 og 22. ára. Drengir og stúlkur með alskonar vopn- um, bareflum og skammbyssum gengu um í nágrenninu og hótuðu skemd og meiðsl- um hverjum sem yrði á vegi þeirra. f einum stað var ráðist á fólk sem hafði afmælisveizlu, og ungur maður um 22. ára gamall var barinn til dauða. Fleiri borgir líða fyrir glæpaverk unglinganna. Börn og unglingar hneigð til glæpa koma helst frá heimilum þar sem mikil fátækt er og ákaflega þröngbýlt, þaðan sem börnin hafa lítil eða engin eftirlit frá foreldrunum, líka frá heimilum þar sem slæmt samkomul'ag er milli hjón- anna, svo rifrildið milli þeirra sviftir þau tíma og áhuga fyrir að líta eftir börnum sínum. Þeir koma einnig frá hærri og lægri skólum þar sem trú og siðferði er lítilsvirt og vantrúarkensla bolar Guði í burtu. Þar sem er alt of þröngbýlt í borg- unum þar magnast ósamlyndi og hjóna- skilnaður, og almenn kensla hallast meir og meir að guðleysinu, er þá nokkur furða þó margur unglingurinn alveg áttaviltur aðeins eitt heimili fyrir móðurlaus börn. Það er undir stjórn Rómversku kaþólsku kirkjunnar. Hví skyidum vér sýna minni umhyggju fyrir þessum munaðarleysingj- um? Er nokkuð nauðsynlegra fyrirtæki til, sem börn vor og unglingar geta stutt, heldur en það að stofna barnaheimili fyrir munaðarlaus börn? Vér erum fús til að gefa líf vort til að vinna við þetta starf, hver vill leggja fram fé til að gjöra það mögulegt? Minn- ist orða Krists: “Það sem þú gjörir ein- um af þessum minstu bræðrum mínum, það hafið þér gjört mér.” magnaát sleppi sér út á glæpabrautina? Jesús sagði um hina síðustu daga: “Af því ranglætið vex mun kærleiki margra kólna.” Þegar þeir sem ofar standa sýna lítils- virðingu fyrir lögum, hvernig getum vér þá vænt betra af unglingunum? Þegar þeir sem eiga að vera máttarstólpar mann- félagsins fyrirlíta Guð og lögmál hans, hvers getum vér þá vænst frá hinum yngri? Þar sem kærleikurinn er kaldur orðinn eða horfinn með öllu á heimilinu, í nágrenninu, meðal þjóðanna, hvernig getum vér þá vænt þess að menn jafnvel börn beri nokkra virðingu fyrir mann- legum lögum? Það er satt að af því rang- lætið vex kólnar kærleikurinn, en hitt er einnig áreiðanlegt að kuldi mannshjartans leiðir til lögleysis. Þetta er erfitt við- fangsefni. Til er aðeins ein lækning ein úrlausn vandamálsins, hún finst í boð- skap þeim, er vér flytjum heiminum. Vér verðum að leiða menn og konur, já, drengi og stúlkur líka, til að “Óttast Guð og gefa honum dýrðina”, kenna þeim að hlýða lögmáli Guðs. Kærleikurinn er upp- fylling lögmálsins,” segir Guðs orð. Ef allir hefðu þann kærleika sem leiddi þá til að halda 10 boðorðin þá mundi hverfa alt það lögleysi og glæpir, sem menn nú hafa að berjast við í heiminum- F. L. Amerískar _ járnbrautir hafa flutt 10 miljónir hermanna í svefnklefavögnum síðan í byrjun stríðsins

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.