Stjarnan - 01.09.1943, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.09.1943, Blaðsíða 8
80 STJARNAN sem ekki hefir breyst síðan Mary kom þangað. Klefarnir eru horfnir, en í þeirra stað komin sérsfök heimili fyrir menn og önnur heimili fyrir konur. Þar er komið sjúkrahús, lyfjabúð og kirkja. Auk þess sem hún stjórnaði fjölda verkamanna, þá vakti hún líka áhuga hjá sjúklingunum fyrir jarðrækt. Hún keypti kýr handa þeim og smám saman urðu þessar tvær nýlendur færar um að bera sig sjálfar. Þar voru raðir af snotrum húsum með grænum grasblettum í kring. Girðing var bygð í kring um jurtagarðana til að hindra villidýr frá að eyðileggja þá. Mary Reed leið miklar þjáningar. Hun hlynti að og hjálpaði öðrum sjúklingum en gleymdi sjálfri sér. Einu sinni skrifaði hún heim: “Guðs kærleiki, kraftur og viska eru bersýnilega starfandi hér. Dauð- inn getur ef til vill komið á morgun, þegar Guð hefir náð tilgangi sínum með mig.” En dauðinn kom ekki. Mary hafði hundruð vina sinna að biðja fyrir sér að hún yrði læknuð. Nú er hún alveg heil- brigð. En Mary Reed sneri ekki aftur heim til Ameríku eftir að hún fékk heils- una. Hún hélt áfram að búa í litla hús- inu sínu upp á hæðinni í Chandag. Hún eflir von og gleði hjá öllum sem umhverfis er.u. Hún hefir starfað á tímum hungursneyð- ar og sóttveiki, gegn um stríðið mikla og það sem nú stendur yfir. Hún er 88 ára gömul. Guð blessi Mary Reed. Selocted. Vanræksla foreldranna Eg hélt einu sinni nokkrar kristilegar samkomur í Paris, Illinois. Eg var á gangi með eirium af aðstoðairmönnum mínum og heyrði hann tala við ungan mann og kvetja hann til að verða kristinn, án þess það virtist hafa nokkur áhrif á ungling- inn. Eg heyrði félaga minn segja: “Móðir þín óskar að þú meðtakir frelsarann, mundi það ekki gleðja hana?” Pilturinn fór að gráta, en hinn hélt áfram: “Faðir þinn óskar að þú verðir kristinn maður, er ekki svo?” Pilturinn svaraði engu. Litlu seinna heyrði eg hann gjöra þessa STJARNAN kemur út einu sinni á mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Publishers: The Canadian Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ont. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can. athugasemd: “Faðir minn er embættis- maður í söfnuðinum og móðir mín stendur fyrir kvenfélagi safnaðarins. En hvorugt þeirra hefir nokkurn tíma talað við mig um velferð sálar minnar.” J. Wilbur Chapman. Smávegis Onslow Lass 17 ára gömul kýr sem Mary Hopper í Nova Scotía átti, hlaut þann heiður að standa framar öllum Ayrshire kúm í smjörframleiðslu þegar hún dó nýlega. í ellefu ár, sem skýrsla er til yfir framleiddi hún 195.565 pund af mjólk og 8.367 pund af smjörfitu. + ♦ -f Brezkir sjómenn sem lenda á herskipa- stöðinni við Ashbury Park í New Jersey hjálpa bændum í nágrenninu að vinna a meðan skip þeirra liggja í höfn. Hópar af sjálfboðaliðum fara með for- manni sem settur er yðir þá, til að vinna vikutíma fyrir bændurnar. Þeir sem njóta hjálpar þeirra við vinnuna eiga að borga ferðakostnaðinn og fæði starfsmanna sinna, en þeim er ekki leyft að borga sjómönnunum neitt kaup. ♦ + ♦ Ef nagli er látinn liggja nokkrar mín- útur í heitu vatni, eða ef honum er difið ofan í heitt “paraffin”, þá er hægt að reka hann inn í steinsteypuvegg án þess að sprengja úr veggnum ♦ -f -f Meir en einn þriðji allra Indiána 1 Bandaríkjunum búa í Oklahomaríkinu. Þar eru 27 afmæld svæði handa þeim 32 Indiána kynkvíslum sem búa í ríkinU- ♦ ♦ ♦ Ameríska Biblíufélagið útbýtir nú yfi? 8 miljón Biblíum og Nýja Testamentuin á ári.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.