Stjarnan - 01.03.1944, Síða 6

Stjarnan - 01.03.1944, Síða 6
22 STJARNAN Viðreisn heimsins Enginn mótmælir því að ástand heims- ins þarfnast endurbótar. En menn hafa mjög mismunandi skoðun á því hvernig best sé að koma þeim í framkvæmd. Fjöldi manna gjörir sér góðar vonir um endur- bætta stjórn og félagslíf gegn um mentun og vísindi. En getur mentun og vísindi læknað meinsemdir þjóðfélagsins, og kom- ið til leiðar þeim umbótum sem vér æskj- um og þörfnumst svo mjög? Geta vísindin til dæmis, glætt andlegt trúarlíf og endurfætt hjörtu manna? Satt er það að vísindin hafa veitt mannkyninu margfalda blessun og þægindi. En þau hafa líka orsakað eyðileggingu í stórum stíl. Vísindin hafa kent mönnum að byggja sér indæl heimili, með als konar þægind- um en því miður hafa þau líka fengið mönnum vopn í hendur til að sópa burt stórum borgum á svipstundu. Maðurinn er ekki rétt að byrja sögu sína. Vér lifum á tuttugustu öld hins kristna tímabils. Menn hafa í langan tíma haft tækifæri til að byggja upp friðsam- legt skipulag meðal þjóðanna. Þeir geta ekki kvartað um að Guð hafi ekki gefið þeim lægan tíma til að koma áformum sínum í framkvæmd. Nei. Guð hefir gef- ið nægan tíma til að sýna að maðurinn er alveg ófær til að ráða fram úr vanda- málum sínum, svo ef hjálp á að koma þá verður hún að koma utanað, ekki frá hon- um sjálfum. Það ætti að vera orðið öllum Ijóst nú, að engin hjálp er til fyrir þennan eyðilagða spilta heim, nema Jesús Kristur sjálfur og endurkoma hans. Hann, sem dó á krossinum, en reis upp aftur og lifir um aldir alda, hann einn getur ummyndað þennan heim syndar og sorgar, svo hann verði paradís, heimkynni hamingjusamra heilagra manna. Drottinn segir: “Sjá eg skapa nýjan him- inn og nýja jörð.” Es. 65:17. “Guð mun þerra hvert tár af augum þeirra. Dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur vein né mæða mun framar til vera því hið fyrra er farið.” Op. 21:4. Guð hefir annað betra fyrir mannkynið heldur en umbætur félagslífsins gegn um áhrif vísindanna. Það mun verða nýsköpun, svo fullkomin, endurnýjun að alt hið gamia hverfur. Alt verður nýtt. Partur af áformi Guðs er að hreinsa og endurskapa alla jörð- ina, eins og hann hefir sagt: “Sjá, eg gjöri alt nýtt.” Hið skemtilegasta rannsóknarefni sem menn geta haft, er að lesa í Heilagri Ritn- ingu hið upphaflega áform Guðs með sköpun heimsins og mannkynsms, og rekja þessa rannsókn til þess tíma að áform hans verða öll til fullnustu framkvæmd. Áform Guðs með mannkynið er það sem öll Bibl- ían snýst um. Að skilja þetta áform hans er eins og lykillinn að öllum opinberun- um Guðs til mannanna 'barna. J. L. Shuier. Notaðu ímyndunaraflið Kennarinn sagði mér að gera teikningu af stiga með mörgum tröppum og koma með á skólann daginn eftir. Rétt þegar eg' hafði lokið við teikninguna og var að setja blekið til hliðar kom blek klessa á miðjan uppdráttinn. Eg hafði ekki tíma til að teikna annan, svo eg fór að gráta. Þegar faðir minn heyrði um vandræðin sagði hann: “Vertu ekki að gráta af þessu. Það er alveg eins og svartur blettur á hiið- inni á hundi. Teiknaðu hund í kringum blettinn. Þú mátt ekki láta hugfallast af slíku lítilræði. Maður þarf aðeins að hafa svolítið ímyndunarafl til að gjöra gott úr því sem slæmt er. Fáir erfiðleikar eru svo óviðráðanlegir sem þeir sýnast í fyrstu.” Eg teiknaði hund í kring um blekkless- una. Daginn eftir var minn uppdráttur álitinn sá besti í bekknum. “Þið sjáið hvað dálítið ímyndunarafl getur hjálpað,” sagði kennarinn. “Litli hundurinn gjörir teikn- inguna bæði fallegri og fullkomnari.” Þegar eitthvað gengur illa hjá mér minn- ist eg í huganum á hundinn sem eg teikn- aði utan um blekklessuna, og mér er sem eg heyri á ný orð föður míns: “Maður þarf aðeins að hafa svolítið af ímyndunarafli til að gjöra gott úr því sem slæmt er.” S. C. + ♦ ♦ Árið 1943 dóu nálægt 93 þúsundir manna af slysum í Bandaríkjunum, og 9 miljónir meiddust.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.