Stjarnan - 01.03.1944, Side 7

Stjarnan - 01.03.1944, Side 7
23 STJARNAN Einsetumaðurinn og fé hans Fyrir nokkru síðan lásum vér um gamlan einsetumann sem dó og lét eftir sig auðfjár. Yfir 40 ár hafði hann staðið 1 hiutaveltu- félögum og græddist fé á þann hátt. Hann bjó í stórborg í austurhluta Bandaríkjanna, °g lifði vesaldar lífi, neitaði sér um flest þægindi og hugsaði ekki um annað en ná í svolítið meiri peninga. Þegar hann dó átti hann nær hálfa miljón dollara. “Hvílíkur heimskingi,” segja menn, “Hugsið yður að ,lifa eins og hundur í 40 ár, og svo þegar dauðinn sótti hann var hann neyddur til að skilja sparifé sitt eftir í höndum ókunnugra.” En margir gjöra sig seka í svipaðri heimsku, þeir hafa gjört eignir og peninga að hjáguði sínum. Guð er sá sem gefur manni kraft og hæfileika til að afla fjár. Alt gull og silfur og öll dýrin á mörkinni tilheyra honum. Vér erum aðeins ráðs- menn hans. Ef vér notum þau efni sem Guð gefur oss til blessunar mönnunum, til að fæða hungraða, leita sjúkum lækninga, hýsa ekkjur og annast föðurleysingja, þá er fé og auður til mikillar blessunar. Guðs orð varar oss við “táldrægni auð- æfanna”, og segir auðurinn fái vængi og fljúgi burt. Auður er hverfull. Sá er miklu vitrari sem forðast veg nirfilsins, en leitar í þess stað hinna sönnu auðæfa, sem er auðmýkt hjartans, og stöðug lifandi trú á Guð. í Guðs augliti er þetta margfalt meira virði heldur en fjársjóðir gulis og silfurs sem þessi heimur hefir að bjóða. N. Krum. Mikilmenni Þegar Ralph kom á nýja skólann eignað- ist hann marga vini, en það voru tveir drengir sem honum geðjaðist bezt að. Hann var heldur en ekki glaður þegar annar þeirra, Gene, bauð honum heim með sér til miðdegisverðar. Gene var einhver hinn skemtilegasti piltur sem Ralph hafði nokk- urntíma kynst. Hann var líka altaf vel klæddur og hafði nóga vasapeninga. Gene tók Ralph heim að fallegu, stóru húsi í besta hluta borgarinnar. Borðstof- an var ljómandi falleg og tvær stúlkur báru á borðið, en drengirnir settust ein- samlir að borðinu. Þeir höfðu nær því lokið við máltíðina þegar húsbóndinn, Mr. Adams, kom inn. Hann, eins og Gene sonur hans var elskulegur í viðmóti. Hann heilsaði Ralph vingjarnlega og afsakaði að hann hefði komið svo seint. “Eg hafði útréttingar í öðrum hluta bæjarins”, sagði hann, “og keyrði heldur hart, um 65 mílur á klukkutíma, á leiðinni heim aftur, þegar lögregluþjónn á reiðhjóli stóðvaði mig. Hann hefir víst ekki vitað hver eg er. Eg kallaði upp tvo vini mína........ Næstu viku missir hann stöðu sína.” * • “Vel gjört pabbi”, sagði Gene með að- dáun. “Það var ágætt.” Ralph misti matarlystina. Hann gat ekki séð neitt aðdáanlegt í því að láta • mann þurfa að missa stöðu sína fvrir það að hann hefði gjört skyldu sína. Hinn drengurinn sem Ralph var mest saman með var Georg Evans. Hann stóð hæst í skólanum við íþróttirnar og gekk einnig vel með bóknámið. Einn eftirmið- dag gekk Ralph með Gearg út fyrir borg- ina til heimilis hans. Það var lítil bújörð með gömlum byggingum, en alt var svo vel umgengið, hreint og þokkalegt oæði úti og inni. Maður í slitnum fötum var á gangi fyrir utan húsið. Hann var haltur vegna meiðslis sem hann hafði orðið fyrir mörgum árum áður. Hendur hans voru grófar og harðar eftir mikla vinnu, en and- lit hans ljómaði af gleði er hann sá Georg. Hann heilsaði Ralph glaðlega og sagði: “Vinir sonar míns er líka vinir mínir.” Ralph var alveg hissa að heyra hvað Mr. Evans var kunnugur skólalífinu. Hann hafði áhuga fyrir námsgreinum þeim sem sonur hans lærði, og hvatti hann til að gjöra sitt bezta. Það var auðsjáanlegt að þessi maður lifði fyrir son sinn, varði lífi sínu og kröftum til þess hann gæti fengið sem besta mentun. Fullkomin samhygð og kærleikur lýsti sér bæði hjá föður og syni. “Pabbi minn hafði aldrei tækifæri til að fá neina mentun”, sagði Georg við Ralph áður en hann kvaddi. “En pabbi minn er góður og mikill maður, reglulegt mikil- menni.” Ralph hneigði sig og sagði: “Vissulega er hann það. Og þú ert reglulegur láns- maður.” Gil. Rogers.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.