Stjarnan - 01.11.1944, Side 1
STJARNAN
NÖVEMBER 1944
LUNDAR, MAN.
Fœr þú arfinn?
Arfur sem menn vænta í þessu lífi
er óviss og óáreiðanlegur. Stundum fær
sá sem arfieiddur var als ekki að njóta
arfsins. Líka kemur það fyrir að hinn
væntanlegi erfingi breytir svo illa að sá,
sem arfleiddi hann, breytir arfleiðslu •
skránni og þannig sviftir hann arfinum.
Frændi minn, sem ól mig upp arfleiddi
mig að öllum eignum sínum, tveimur góð-
um búgörðum, húsum í þorpinu og nokkru
lausafé. Það voru olíubrunnar skamt frá
heimili mínu. Þrátt fyrir arfleiðsluskrána
sem var skýr og löglega samin, þá var eg
sviftur arfinum og .eignirnar voru fengnar
öðrum í hendur. Hefði eg verið sonur eða
löglega ættleiddur þá hefði ekki verið svo
auðvelt að svifta mig rétti mínum.
í þetta sinn varð arfurinn als ekki til
nota hinn fyrirhugaða erfingja. Hefir þú
nokkurn tíma athugað það að skeð getui
þú aldrei njótir arfsins, sem Guð hefir
ætlað til þú eignaðist? Hann vill þú öðlist
dýrðlegan arf. Vilt þú meðtaka hann?
í IPét. 1:3,4. versi er oss sagt að “Guð
faðir Drottins vors Jesú Krists, fyrir upp-
risu Jesú Krists frá dauðum hefir eftir
mikilli miskun sinni endurfætt oss tii
lifandi vonar, til hluttekningar í þeirri arf-
leifð sem yður er geymd á himni, og ó-
forgengileg er flekklaus og aldrei fölnar.”
Hin himneska arfleifð er bundin því skil-
yrði, eða undir því komin að vér séum
“endurfæddir.” Fyrir endurfæðinguna verð
um vér meðlimir Guðs fjölskyldu, verðum
synir og dætur lifandi Guðs, og höfum
þannig tryggingu fyrir arfinum. Guð vill
vér hljótum arfinn, en vér getum öðlast
hann einungis með því að verða synir hans
og erfingjar gegnum endurfæðinguna.
Þetta kemur í ljós 1 orðum Krists til Nikó-
demusar: “Sannlega segi eg þér, maðurinn
getur ekki séð Guðs ríki nema hann endur-
fæðist.” Endurfæðingin er því nauðsynleg
til þess að geta öðlast arfinn.
Nú verður oss fyrir að spyrja eins og
Nikódemus: “Hvernig getur maður fæðst
þá hann er orðinn gamall, getur hann aftur
komist í kvið móður sinnar og fæðst?”
Nei. Því ef slík fæðing væri möguleg, þá
mundi hún ekki breyta eðli mannsins og
gjöra hann hæfan fyrir Guðs ríki. Vér
verðum að endurfæðast af Guðs heilögum
anda og verða hluttakandi guðlegrar riátt-
úru til þess að geta orðið erfingjar Guðs og
inngengið í hans heilaga ríki.
Hversu ómögulegt sem þetta sýnist, þá
hefir guð af náð sinni gjört það mögulegt
fyrir alla sem vilja trúa. “Svo mörgum sem
hann meðtóku gaf hann kost á að verða
Guðs börn, þeim sem trúa á hans nafn,
sem ekki eru fæddir af blóðinu, né holds-
ins vild, né mannsins vilja heldur af Guði.”
Jóh. 1:12.13. Á hvern hátt hefir Guð gefið
oss kraft til að verða börn hans? Hvernig
getum vér vitað að þessi breyting hefir átt
sér stað hjá oss? Vér öðlumst kraft til að
verða Guðs börn þegar vér meðtökum heil-
agan anda, og heilagan anda öðlumst vér
þegar vér trúum Guðs orði og hlýðum því.
“En þér skuluð öðlast kraft heilags anda
sem yfir yður kemur.” Post. 1:8. Hvernig
þessi kraftur kemur í Ijós hvernig hið nýja
líf byrjar og þroskast sjáum vér skýrt í
Guðs orði.
Nýtt líf kemur einungis frá fræi eða
sæði. Hinar ýmsu tegundir dýra og jurta-
lífs mundu líða undir lok ef það væri ekki
endurnýjað með sæði. Hið andlega líf