Stjarnan - 01.11.1944, Síða 2
82
STJARNAN
byrjar á sama hátt. Sæðið er Guðs orð.
(Lúk. 8:11). Vér erum endurfæjldir, “ekki
af forgengilegu sæði, heldur óforgengilegu,
með Guðs lifandi og ævarandi orði.” IPét.
1:23. Vér getum ekki öðlast andlegt líf
nema fyrir Guðs orð. Þetta er mjög ein-
falt. Heilagur andi gróðursetur orðið í
hjörtum vorum. Ef vér meðtökum það orð
og geymum það í hjartanu þá byrjar hiö
nýja líf hjá oss, eins og fræið sáð í mold-
ina framleiðir nýtt líf. Hefir þú meðtekið
sannleika Guðs orðs og elskar hann? Þegar
Guðs andi minnir þig á hvað Guð hefir
talað, gefur þú þá gaum að því? Ef þú
gjörir það þá mun líf þitt í heiminum bera
vott um að þú ert að deyja frá syndinni
og ert byrjaður að lifa nýju lífi.
Páll postuli gefur oss óbrigðult merki af
hverju vér getum séð hvort vér erum Guðs
börn og þá um leið erfingjar hans. “Allir
þeir sem leiðast af Guðs anda, þeir eru
Guðs börn.” Róm. 8:14. Þetta er einfalt og
alvarlegt próf. Ef vér leyfum Guðs anda að
stjórna oss í öllu sem vér tölum og gjörum
þá erum vér Guðs börn. Ef vér höfnum rödd
Guðs anda og viljum ekki láta hann leiða
oss til að meðtaka Guðs orð og hlýða því
þá erum vér ekki Guðs börn, hversu há-
fleyg sem trúarjátning vor kann að vera.
Sumir segjast vera Guðs börn og heilagir
menn, en séu þeir reyndir með Guðs orði
standanst þeir ekki prófið. Þeir byggja á
tilfinningum sínum en gefa lítinn gaum að
því hvað Biblían segir, ef það er ekki í
samræmi við þeirra eigin lifnaðarhætti.
Höfum það hugfast að Guðs andi leiðir
oss aldrei til að lítilsvirða það orð, sem
Guð sjálfur hefir til vor talað. Ef vér neit-
um leiðsögn Guðs orðs og anda þá sýnir
það að vér erum ekki Guðs börn. “En hafi
einhver ekki Krists anda þá er sá ekki
hans.” Róm. 8:9.
Nú ef vér höfum gengið undir prófið og
séð að vér erum Guðs börn þá er vel þess
vert að íhuga þá blessun og einkaréttindi
sem eru vor gegn um skyldleika vorn við
Guð. Páll postuli segir: “Ef vér erum börn
þá erum vér erfingjar, og það erfingjar
Guðs og samarfar Krists.” Róm. 8:17. Hví-
lík dýrð. Samarfar Guðs sonar, samarfar
með honum að allri dýrð og auðlegð föðurs-
ins. Vér höfum fengið sonarlegan útvaln-
ingaranda og höfum rétt til að ákalla Guð
sem föður vorn.
Það eru þeir auðmjúku, sem öðlast hafa
guðlega náttúru, eins og stendur í Sálm.
7:11. “Þeir hógværu skulu landið erfa og
njóta unaðsemda af þeim mikla friði”.
Kæri vin, ert þú erfingi? Hefir þú fuli
skýrteini fyrir þinni himnesku arfleifð?
Ert þú undirbúinn til að innganga í Guðs
ríki?
I. A. Craine.
Til hinna niðurbeygðu
Hættu að hugsa um sjálfan þig, erfið-
leika þína, vonbrigði og yfirsjónir. Þetta
er ekki þess vert að hugsa um það. Því
rneir sem þú hugsar um slíkt, því ver
líður þér. Það gagnar ekkert. Þegar þú
grípur sjálfan þig í því að aumkva sjálfan
þig, þá vertu nógu skynsamur til að hrista
slíkt af þér og losa þig við þessháttar hugs-
anir. Sorg og áhyggjur framleiða eitur í
líkama þínum, þetta hefir áhrif á blóðið,
og þú bindur sjálfum þér þyngri byrði en
þú hafðir áður.
Hættu að hugsa um vonbrigði þín, yfir-
sjónir og sorgir. Gjör þitt besta á hverjum
degi og hugsaðu um Jesúm. Hann er þess
verður að hugsa um hann. Hann er ást-
vinur þinn. Hann elskar þig innilega. Hann
hefir sýnt það á liðnum tíma, lestu oftar
um það. Nú sem stendur gjörir hann alt
fyrir þig sem hægt er að gjöra. Hann hefu
í hyggju að gjöra dásamlega hluti fyrir þig
þegar hann kemur. Hann þráir að vera
stöðugt með þér. Hann lengist eftir meira
af kærleika þínum. Særðu ekki hjarta hans
með því að gefa honum svo lítið af tíma
þínum. Hugsaðu oftar um hann. Talaðu
oftar við hann, ekki aðeins um erfiðleika
þína. Láttu oftar í ljósi þakklæti þitt til
hans fyrir kærleika hans, miskun og ást-
ríka umhyggju, og segðu honum að þú
elskir hann. Kynstu honum betur dag eft-
ir dag fyrir að lesa Guðspjöllin, og alla
Biblíuna. Þetta er vegurinn til að öðlast
frið í hjarta þitt. “Vingast við hann, þá
muntu vera í friði.” Job. 22:21.
S. Borgen.