Stjarnan - 01.07.1946, Qupperneq 2

Stjarnan - 01.07.1946, Qupperneq 2
50 STJARNAN öll mín boðorð og breyti rétt og ráðvand- lega, iþá skal hann lifa og ekki deyja.” Hið sama á sér stað þegar um þjóðir er að ræða: “Eitt sinn tala eg um þjóð og konungsríki, er eg ætla mér að upp- ræta, sundurmola og eyða, en snúi það fólk sem eg hef umtalað sér frá vonsku sinni, þá iðrast eg hins illa, sem eg hef ætlað því að gjöra.” Jer. 18: 7, 8. Guð gaf aðvörun á dögum Jóhannesar skírara. Spádómur um hann var gefinn 700 árum áður en hann fæddist. (Jes.. 40: 3-5). Jóhannes var rödd sem hrópaði á eyðimörku. Hann áminti og aðvaraði menn. Hann kom í tíma til að mæta Jesú við Jórdan og vitna: “Sjá það Guðs lamb sem ber heimsins synd.” 1 Daníel 2: 31-45 er vekjandi spádóm- ur, sem bendir á aðaldrættina í sögu ver- aldarríkjanna yfir 2500 ára tímabil, eða frá því Daníel var uppi og alt til tímans enda. Það var líkneski sem konungi var sýnt í draumi, höfuðið af gulli, brjóst og handleggir af silfri, kviður og lendar af eiri, leggirnir af járni og fæturnir af járni og leir. Járnið og leirinn eru táknmynd uppá ríkin í Evrópu, næsta heimsríki verður Guðs eilífa ríki. Gefa menn alment gaum að aðvörun þeirri sem felst í þessum spá- dómi, Nei. En samt sem áður verður hann bókstaflega uppfyltur. Jerúsalem hafnaði boðskap frelsarans; þér munið hann sagði fyrir að borgin yrði eyðilögð: “Nær þér sjáið viðurstygð eyðileggingarinnar standandi á helgum stað, sem Daníel hefir spáð um, þá flýi hver sá sem í Júdea er til fjalla. Hver sá sem er á húsþaki, varist hann að fara ofan í hús sitt til að taka nokkuð þaðan. Hver sem er á akri, snúi hann ekki til baka til að taka klæði sín ” Hinir kristnu hlýddu þessum aðvörunum, og að því er sagan segir fórst enginn þeirra í umsátrinu þar sem meir en miljón manna annaðhvort fórust eða voru teknir í þrældóm. Nú má spyrja: Hvernig gátu hinir kristnu flúið þegar rómverski herinn um- kringdi borgina? Þegar Cestíus yfirmað- ur rómverska hersins umkringdi borgina, og þeir inni í borginni voru rétt að því komnir að gefast upp, þá segir söguritarinn að Cestíus hafi farið með herinn burt frá borginni, án þess menn viti nokkra ástæðu til þess. Þetta var tækifærið fyrir hina kristnu að flýja. Þeir gjörðu svo, og fóru til borgarinnar Pella fyrir austan Jórdan. Rétt á eftir snéru rómversku herdeild- irnar við aftur og settust um borgina þar til þeir unnu og eyðilögðu hana. Það borgar sig að gefa gaum að aðvörunum Guðs. Guð gefur aðvaranir í spádómum. “Eg talaði fyrir munn spámannanna. Eg fjölg- aði sýnum. Eg lét spámennina tala í eftirlíkingum.” Hós. 12: 10. Fyrst nú Guð hefir gefið oss aðvörun í spádómunum þá ættum vér nákvæmlega að gefa gaum að þeim. Þessi aðvörun nær til manna á öllum tímum. “Drottinn al- valdur gjörir ekkert nema hann kunn- gjöri sinn leyndardóm fyrir sínum þjón- um, spámönnunum.” Amos 3: 7. Það sem Guð segir stendur stöðugt: “Hann talaði og það varð. Hann bauð, þá stóð það þar.” Sálm. 33: 9. “Eg kann- aðist við að alt það sem Guð gjörir varir eilíflega, menn geta engu við bætt, og ekkert tekið frá. Guð gjörir það svo, til þess að menn óttist fyrir hans augliti.” Préd. 3: 14. Aðvörun Guðs bregst ekki, heldur framkvæmir það sem orðið segir. Það er ætíð einhver sem gefur henni gaum, og hún kemur því til leiðar sem Guð hefir til ætlast. “Eins er mitt. orð það er út gengur af munni mínum, það hverfur ekki tómt aftur til mín, heldur framkvæmir það sem mér vel líkar og kemur því greiðlega til vegar, sem eg hef tilætlast.” í Opinberunarbókinni 14: 6 .og 7. versi gefur Guð alvarlega aðvörun um að rétt- arhaldið er byrjað: “Eg sá annan engil fljúga um miðhimininn, hann hélt á eilíf- um fagnaðarboðskap, sem hann kunn- gjörði innbúum jarðarinnar, allri þjóð kynkvísl, tungumáli og fólki. Hann sagði hárri röddu: Óttist Guð og vegsamið hann, því tími hans dóms er kominn, til- biðjið hann, sem gjört hefir himininn, jörðina og sjóinn og uppsprettur vatn- anna.” Hve alvarlegur og hrífandi boðskapur.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.