Stjarnan - 01.07.1946, Page 6

Stjarnan - 01.07.1946, Page 6
54 STJARNAN og lifum í samfélagi við hann. Jesús vill lifa sínu lífi í þér, ef þú leyfir honum það þá getur þú losnað við allan ótta og kvíða og fengið nýtt útsýni. Kraftur hans mun fylla sálu þína, fögnuður og gleði fylla hjarta þitt, svo þú líka getur orðið öðrum til blessunar. “Eg skal ekki sleppa þér né yfirgefa þi-g,” segir lausnari þinn. Óttast þú ekki að deyja. “Eg dó, en sjá eg lifi um aldir alda og hef lykla dauð- ans og undirheima.” Ótti fyrir dauðanum og löngun til að lifa er ein af þeim nátt- úrlegu eiginlegleikum sem oss eru gefnir til varðveizlu lífi voru og annara. En það eru svo margir, þegar þeir eru að dauða komnir, sem eru hræddir við að deyja. En Jesús hefir tekið burtu skelfingu dauð- ans frá sínum lærisveinum. Hann hefir gengið sömu leið á undan oss. Hann get- ur huggað og hughreyst þá sem ganga gegn um dauðans skuggadal. Hann er hjá þeirn á dauðastundunni og hefir svift dauðann beiskju sinni. “Hann leggur sína elskuðu til svefns,” og innan skamms uprennur morgun eilífðarinnar og Jesús kallar ástvini sína til lífsins og veitir þeim dýrð og ódauðleika. Það er sagt um Leonardo de Vinci að þegar hann lá á banasænginni kom kon- ungur hans í heimsókn. Hann talaði við konunginn og lét í ljósi hrygð sína yfir að hann hefði ekki stundað list sína nógu vel. Alt í einu fékk hann veikindakast. Konungur tók hann í faðm sér til að létta honum, og hann dó þarna í faðmi kon- ungsins. Þetta er það sem hver sann- kristinn maður getur vonast eftir: að deyja í faðmi konungs síns og Drottins. Hinn almáttugi Guð er hans athvarf, og hans eilífu armleggir umfaðma hann. “Óttastu ekki því eg er með þér.” “Sjá eg er með yður alla daga alt til veraldarinnar enda.” Óttastu ekki það sem kemur eftir dauð- ann. “Sá sem heyrir mitt orð og trúir þeim sem mig sendi, sá hefir eilíft líf og kemur ekki til dóms, heldur hefir hann stigið yfir frá dauðanum til lífsins.” “Eg hef lykla dauðans og undirheima.” Jesús gekk í gegn um dauðann og gröfina og kom út sigri hrósandi. Maðurinn var dauða undirorpinn og þræll syndarinnar. Jesús tók á sig mannlegt hold til þess “hann með dauða sínum gæti svift krafti dauðans yfir ráðanda, djöfulinn, og frelsað þá, sem af ótta fyrir dauðanum lifðu allan sinn aldur undir ánauðaroki.” Jesús hafði lífið í sjálfum sér. Hann braut hlekki dauðans og grafarinnar. “Sjá, eg lifi um aldir alda.” Þetta er tryggingin fyrir dýrðlegri framtíð allra eftirfylgenda hans. Texti vor er vel þess verður að festa hann í minni, það er, læra hann utanbókar. Með Jesú frelsara vorum getum vér ó- hræddir og kvíðalausir horft á framtíð- ina. “Alt megna eg fyrir Krist sem mig styrkan gjörir,” sagði Páll postuli. Jesús styrkir alla sína trúu eftirfylgendur og gefur þeim náð og kraft til að mæta hverju sem að höndum ber. Svo eftir þetta skammvinna jarðneska líf er eilífðin með dýrð og heiðri og hamingju, hlutskifti allra þeirra sem hér hafa lifað í samfélagi við Jesúrn Krist. Með honum getum vér með fögnuði og eftirvæntingu horft á framtíðina með öruggri von og vissu um blessun Guðs yfir störf vor og áform. f samfélagi við Drottinn vorn og frelsara er framtíðin skínandi björt og blessunar- rík, og “Vonin bregzt ekki, því elsku Guðs er úthelt í vorum hjörtum fyrir heilagan anda sem oss er gefinn.” E. Lloyd. Síðan Japanar réðust á Pearl Harbour hafa 150 þúsund Amerískir verkamenn dáið af slysum við starf sitt í sambandi við það. Sextíu og níu þúsundir hafa á sama tímabili dáið af slysum á strætum og þjóðvegum, og 12 þúsundir dáið af slysum á heimilum sínum. Hugsið yður, nærri þriðjungi fleiri dáið af slysum, held- ur en þeir sem drepnir voru af land-, sjó- og lofther vorum í alheimsstríðinu síðara. Bindinisfélag kristinna kvenna (W.C.T.U.) tók inn 36 þúsund nýja meðlimi árið sem leið. + + 4- Sagt er að 600 þúsund ofdrykkjukonur séu í Bandaríkjunum. Það er fjórði hver meðal þræla áfengisins. Það er áætlað að um fimm þúsund ofdrykkjukonur séu í Washington, D.C., höfuðstað Bandaríkj- anna.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.