Stjarnan - 01.12.1946, Qupperneq 1

Stjarnan - 01.12.1946, Qupperneq 1
4 STJARNAN DES. 1946 LUNDAR, MAN. Mæðradagurinn hjá Dirk “Þið þurfið ekki að hafa peninga til að kaupa gjafir til að gleðja móð'ur ykkar. Hún gleðst mest af því að þið séuð góð 'börn,” sagði Miss Wlhite- Hún var að senda börnin heim úr skól- anum rétt fyrir mæðradaginn. Hún sá á íhinuim glaðlegu andlitum barnanna, að þau ásettu sér að gléðja móður sína. Hún hrygðist yfir að sjá raunasvipinn á Dirk Greyson er hann reyndi að verjast gráti. Um leið og Dirk gekk út, hvíslaði hún að hónum: “Reyndu að finna og gleðja ein- hverja móður, sem á hvorki dreng né stúlku til að gleðja hana.” Dirk hneygði höfuðið en talaði ekki orð. Dirk var hj á föðursystur sinni og manni hennar. Móðir hans var dáin fyrir nokkr- um mánuðum síðan, og þó þau ættu 7 börn, þá buðu þau móðurlausa drenginn vel- komdnn, og þessi mánuður síðan hann kom til frænku sinnar var sá skemtilegasti, sem hann átti síðan móðir hans dó. Hann fór nú að hugsa um hvort það væri nokkur, sem hann gæti glatt, svo spurði hann Rut frænku sína hvort nokkur kona væri þar í þorpinu, sem ætti engin börn. “Eg veit ekki af neinum,” svaraði hún, nema Mrs. Temple, sem býr í stóra, hvíta ■húsinu í útjaðri bæjarins. Hún flutti þang- að fyrdr tveimur árum og hefir ekki haft kynni af neinum. Hvers vegna spyr þú að því?” “Eg var bara að hugsa um eitthvað, sem kennarinn sagði,” svaraði Dirk og hljóp út til hinna barnanna. Mæðradaginn fóru börnin út í skóg til að tína blóm fyrir mæður sínar. Þau gengu fram hjá húsi Mrs. Temple- “Þekkið þið Mrs. Temple?” spurði Dirk. “Nei, við komum aldrei þangað, henni geðjast ekki að börnum.” Dirk tíndi blómin og var að hugsa um Mrs. Temple hvers vegna hún vildi ekkert hafa með börn; vera má að einhverjir drengir hafi verið hrekkjóttir við hana. Og hann ásetti sér nú að gefa henni blómin. Á heimleiðinni, þegar börnin gengu fram hjá húsi Mrs. Temple, stakk Dirk upp á að þau gæfu henni blóm. “Eg held nú ekki,” svaraði Joe. “Þú þekkir hana ekki, hún kærir sig víst ekki um blóm.” Joe hafði einu sinni verið sendur þangað og fann það út, að hún vildi ekki hafa börn í heimsókn. Dirk staðnæmdist, hikaði við og sagði: “Eg held eg fari samt.” “Far þú ef þér sýnist, þú kemur ekki til að standa lengi við,” sagði Joe, og börnin héldu áfram heimleiðis. Dirk gekk með hægð upp að húsinu og barði að dyrum, það var ekki laust við að hann hefði hjartslátt- Myndarleg kona lauk upp, leit á Dirk og spurði alt annað en vingjarnlega: “Hvað vilt þú hér?” Dirk hélt upp blómunum og sagði: “Eg týndi"þessi blóm handa þér.” “Hvers vegna hefir þú týnt blóm fyrir mig?” spurði hún hryssingslega. “Mig langaði til að gleðja einhvern í dag. Rut frænka mín hefir svo mörg börn til að gjöra eittbvað fyrir hana, svo hún þarf mín ekki.” “Þvlí gjörir þú ekki eitthvað fyrir mömmu þína, heldur en að troða þér upp á annað fólk?” spurði hún jafn hvefsin í málrómi. Varir dxengsins titruðu og augun fylt- ugt tárum er hann leit upp. Sorgarsvip- urinn á hinu þögula andliti hans snerti

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.