Stjarnan - 01.12.1946, Blaðsíða 2

Stjarnan - 01.12.1946, Blaðsíða 2
90 STJARNAN hjarta konunnar. “Hún er dáin,” sagði hann svo í hálfum hljóðum. Konan hrökk við eins og hún hefði ver- ið barán. Hún huldi andlit sitt með höndun- um og grét. Drengurinn varð hræddur og stóð grafkyr. Hann vissi ekki hvað hann átti að gjöra. Bráðum varð hún rólegri, rétti drengnum hönidina og dró hann að sér. “Það hryggir mig, drengur minn,” sagði hún vingj arnlega. Kom þú inn og segðu mér alt um það- En við skulum fyrst láta vatn á blómin mín. Hvað heitir þú?” “Dirk Greyson.” Svo sagði hann henni alt frá högum sínum og hún spurði og spurði. - “Viltu koma og sjá leikföngin litla drengsins míns?” spurði hún litlu s'einna. “Ó, átt þú lítinn dreng?” spurði hann undrandi. “Eg hefi hann ekki lengur. Hann var ekki eins stór og þú og hafði ljósgult hár, en—” svo strauk hún hárið á Dirk, “aug- un Tians voru brún eins og þín.” “Eór hann í burtu, eins og mamma mín?” “Já, barnið mitt.” Nú lyfti drengurinn handleggnum, feimnislega þó, og faðmaði konuna. Hún vafði hann líka að sér og grét. Hann var nú ekki lengur hræddur. Hún þerraði tárin, tók í hönd drengs- ins og sagði: “Við skulum nú koma og líta á leikföngin hans.” Hún lauk nú upp dyrum, sem ekki höfðu verið opnaðar í tvö ár. Alt var ryk- ugt, en Dirk tók ekki eftir því. Þarna voru alskonar leikföng, sem nokkur drengur gæti óskað eftir- Hann stóð' þegjandi um stund og sagði svo: Hann hlýtur að hafa skemt sér vel við alt þetta.” “Já,’ ’sagði hún með grátstaf í hálsin- um, “hann hefði viljað þú ihefðir gaman af þeim líka, ef hann væri hér.” Syo sett- ist hún niður og sýndi honum hvernig ætti að festa saman brautateinunum og koma rafmagnsvögnunum áf staði. Svo spurði hún alt í einu: “Getur þú ekki haft kvöLd- mat með Ðkkur, maðurinn minn kemur rétt strax heim?” “Eg veit ekki hvort Rut frænka vill að eg sé svo lengi.” “Eg skal fóna henni.” Þegar Mr. Temple kom heim var kona hans í dyrunum til að heilsa honum, og ha'fði Dirk við hlið sér. “Marian,” sagði hann með gleði og undrun í málrónum, “Ihvað —?” “Ilugsaðu ekki um það rétt núna, James, “þessi litli idrengur er Dirk Greyson, sem kom aði heimsækja imig í dag, og færa mér þessi Iblóm.” Og hún benti á blómin á borð- inu. “Guð blessi þig, litli maður,” sagði Mr. Temple sjáanliega hrærður um leið og hann beygðli sig niður að drengnum og kysti hann á ennið. “Guð blessi þig fyrir heimsóknina.” Dirk varð daglegur gestur í hvíta hús- inu og frændur Ihans komu oft þangað líka til að leika sér. Eftir nokkurn tíma kom Mr- Ternple til að heimsækja Rut frænku og John mann ihennar. “Eg kom til að tala um Dirk. Þið getið ekki límyndað ykkur hvílíka hamingju litli fræn-di ykkar hefir veitt heimili mínu. Stuttu áður en við komum hingað mistum við eina barnið okkar. Konan mín var svo niður brotin að hún vildi helst engan sjá allra síst börn. Einu sinni stakk eg upp á að við ættleiddum barn en hún svaraði með gremju: “Nei, fyrst eg gat ekki haft mitt eigið Ibarn þá vil eg ekkert hafa. En heimsókn Dirks og sorg hans opnaði hjarta hennar.Síðan hefir alt verið öðruvísi. Hún vill fá drenginn. Viljið þið gefa okkur hann eftir? Við mundum löglega ættleiða hann og alt vort yrði hans.” “Konan mín verður að svara því. hann er bróðursonur hennar.” Mrs. Mason sat þegjandi um stund og sagði síðan: “Já, Mr. Temple, þið getið gjört meira fyrir hann en okkur væri mögulegt. Ef Dirk vill fara þá held eg það sé best- Við skulum láta hann ráða.” Dirk var fús að fara. “Eg get komið og séð þig frænka á hverjum degi. Þú hefir svo marga drengi og stúlkur, en James og Marion eiga engan svo eg vil vera þeirra drengur.” Svo leiddust þeir James og Dirk upp að hvíta Ibúsinu. (Mrs. R. A. Peabody)

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.