Stjarnan - 01.01.1947, Qupperneq 1

Stjarnan - 01.01.1947, Qupperneq 1
STJARNAN Konungur konunganna og Drottinn drotnanna elskar okk- ur eins og faðir börn sín. Hann segir: “Með eilífri elsku elska eg þig, því hefi eg þér náð varðveitta.” Jer. 31:3. Hvílíkt fagnaðar- efni. “Sjáið hvílíkan kærleika Faðirinn hefir oss auðsýnt að vér skulum Guðs börn kallast.” I. Jóh. 3:1. Svo mörgum sem með- taka Jesúm gefur hann “kost á að verða Guðs börn, þeim, sem trúa á hans nafn.” Jóh. 1:12. “Bn ef vér erum börn, þá erum vér líka erfingjar, og það erfingjar Guðs og samarfar Krists.” Róm. 8:17. Hugsið yður slíka tign. Samarfar Krists og hann er erfingi allra hluta, og hefir alt vald á himni og jörðu, og hann segir til yðar, sem elskið hann og fylgið honum: “Vertu ekki hrædd litla hjörð. Föður yðar hefir þóknast að gefa yður ríkið.” Lúk. 12:32. Alt umhverfis oss sjáum vér augljós merki þess aö vér lif- um á síðustu tímum, allar stéttir skynberandi, hugsandi manna halda því nú fram að skamt sé eftir af sögu þessa heims, og að búast megi við skelfingar og eyðileggingar tímum í náinni fram- tíð, en þetta skelfir ekki né hræðir Jesú lærisveina, því Jesús lofaði að vera með þeim alla daga, alt til veraldarinnar enda.” “Ef Guð er með oss, hver er þá á móti oss?” Enginn megnar neitt á móti honum. Guðs börn fagna þeirri fullvissu a<5 endir alls hins jarðneska sé fyrir höndum, því þau vita að þá kemur Jesús til að “ummynda líkama vorrar lægingar svo hann verði líkur hans dýrðarlíkama.” Fil. 3:20, 21. Guðs börn eru ávalt vakandi og biðjandi eins og Jesús áminnir þau um, og þá gefur hann þeim von um að þau geti umflúið alt þetta sem fram mun koma, það er: skelfingar og eyðileggingar þær, sem ganga munu yfir heiminn, en í þess stað munu þau með óútmálanleg- um fögnuði mæta frammi fyrir mannsins syni og síðan um eilíf- ar aldir vera með Jesú og öllum skara hinna útvöldu og heilagra engla, Þau munu sjá auglit Föðursins og hafa hans nafn á ennum sér. Lúk. 21:36. Op. 22:4. Bráðum fáum við, öll Guðs börn, að mæta frammi fyrir Jesú í skýjunum. Þessi dýrðlega himneska von er nóg til að gjöra oss í sannleika hamingjusöm alla daga þessa nýbyrjaða árs. Guði sé lof og dýrð fyrir sína ómetanlegu náðargjöf, sinn eingetinn, elskulega son. LANDSBOKASAFN S. JOHNSON 170076 ÍSLANUS

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.