Stjarnan - 01.07.1947, Page 7

Stjarnan - 01.07.1947, Page 7
STJARNAN 63 föstu munu fagna komu hans. Þau hafa öag hvern lifað í samfélagi við hann, og nú upprennur dýrð Drottins yfir þeim. — Þeir hafa endurspeglað dýrð Guðs og hug- arfar Jesú Krists. Nú fagna þeir yfir að sjá augliti til auglitis konunginn' í dýrð sinni. Þeir eru tilbúnir að fara til himins, því þeir hafa haft himinn 1 hjörtum sínum. Guðs börn lyfta höfðum sínum fagnandi yfir að lausn þeirra er nálæg. Sól réttlætis ins lýsir þeim er þau fara út að mæta brúð- gumanum. Þau segja: „Þessi er vor Guð. Vér ihöfum beðið hans og hann mun frelsa oss. Vinur minn, þráir þú komu Krists meir en alt annað í heiminum? Bíður þú með fögnuði eftir Drottni þínum og frelsara Jesú Kristi I. Brasier. + ♦ + Trygging fyrir bænheyrslu Þegar maður biður einhvern bónar, þá er mikið undir því komið hver maðurinn er sem biður, hvort erindið fær áheyrn eða ekki. Manngildi hans getur haft áhxif á svarið. Hið sama á sér stað þegar vér biðjum Guð. Ef líf vort er í samræmi við vilja hans, þá getum vér beðið og fengið svar. Þetta er andlegt lögmál. Jesús kenai oss: »Ef þér eruð stöðugir í mér og mín orð hafa stað hjá yður, þá megið þér biðja hvers þér viljið og það mun yður veitast“. Jóh. 15:7. Vér lesum einnig: „Kröftug bæn hins réttláta megnar mikið.“ Ennfremur: „Elsikanlegir, ef vort hjarta fordæmir oss ekki, þá höfurn við djörfung til Guðs og það sem vér biðjum hann um það mun hann veita oss, af því vér höldum hans boðorð og gjörum það sem er þókn- anlegt fyrir hans augliti.“ I. Jóh. 3:21. 22. Alt kraftleysi í bæn bendir þess vegna á, að eitthvað sé öðru vdsi en það á að vera í líferni þess sem biður, Satt er það, að Guð frestar stunduhi bænheyrslunni, þeim til góðs sem biður eða af öðrum ástæðum. Vér þurfum að muna það. En gleymum því ekki heldur að ef vér mæt- um skilyrðum þeim, sem Guð setur, þá naunum vér fá svar upp á bænir vorar fyrr eða síðar. Undirbúningur undir bæn er eins nauðsynlegur eins og bænin sjálf. Ef Ííf vort er Guði þóknanlegt, þá mun hann veita það sem vér alvarlega biðjum um. Aðalatriðið er að vér séum I honum. Eitt með Guði. Vér megum ekki gleyma dæmisögunni um vínviðinn og samband greinanna við hann, til þess að ávöxtur gæti þroskast. Ef vér óskum að meðtaka hvað sem vér biðjum um þá verðum vér í ö-llu að vera undirgefnir Guði, til að gjöra hans vilja í öllu. Ef vér eigum að geta staðist flóðbylgjur hins illa á yfirstandandi tíma, þá verðum vér að læra að biðja þannig, að vér fáum svar. Þá höfum vér ekkert að óttast, ann- ars lendum vér í vandræðum, missum kjarkinn og bíðum ósigur. Fyrst líf í Kristi, það að vera stöðugur í honum, er skilyrði fyrir bænheyrslu, þá virðum fyrir oss leyndardóminn um stöð- ugt líf í Kristi. Fyrsta sporið er að gefa sig Guði, það er ihægt að gjöra ákveðið og einu sinni. Næst er að vera stöðugur í honum, það er lífstíðarstarf. Vér þurfum að lifa í stöðugu samfélagi við hann, endurnýja daglega undirgefni vora til hans, læra vilja hans gegn um orð hans og eftirdæmi og hlýða honum í öllu. Sjaldan vita menn alt, sem Guð krefsit af þeim, þegar þeir gefa honum hjarta sitt. Ef Guð sýndi oss það alt í einu, þá er hætt við að vér yrðum freistaðir að halda oss til baka, svo ha-nn af náð sinni tekur tillit til veikleika vors, og sýnir oss aðeins smátt og smiátt eitt og annað sem vér þurf- um að hafna eða lagfæra í lífi voru. Hann leiðir oss fet fyrir fet og sýnir oss, hvað oss ber að gjöra svo fljótt sem vér erum færir um að mæta því. Margir verða fyrir vonbrigðum af því þeir hafa ekki séð nauðsyn á því áð end- urnýja stöðugt samfélag sitt við Guð og undirgefni sína til hans. Vér verðum að halda áfram stöðugt að drekka af „lífsins vatni“, svo samfélag vort við Jesúm sé óslitið, og þá munum vér reyna að Guð svarar bænum vorum. Þetta samfélag við Krist og stöðuga líf í honum er einfalt mjög, en það er skilyrðið fyrir bænheyrslu.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.