Stjarnan - 01.07.1947, Page 8
64
STJARNAN
STJARNAN Authorized as aecond clasa
mail, Poat Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjórn og afgreiðslu annast:
MISS' S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can.
Jóhannes postuli segir: „Haldið yður stöð-
uglega við það, sem þér hafið heyrt frá
upphafi, en ef þér haldið yður stöðugt
við það . . . þá munuð þér einnig við son-
inn og föðurinn halda yður stöðuglega“.
I Jóh. 2:24.
„Það sem þér íhafið heyrt frá upphafi“,
verður að haldast við. Hvað var það í byrj-
un vors kristilega lífs, sem leiddi oss til
að meðtaka Jesúm og orð hans? Var það
ekkii loforðið: „Ef vér viðurkennum vorar
syndir þá er hann trúr og r.éttlátur, svo
hann fyrirgefur syndirnar og hreinsar oss
af öllu ranglæti.“ I Jóh. 1:9.
Þegar vór heyrðum þet-ta tilboð þáð-
um vér það, viðurkendum syndir vorar,
feng'um þær fyrirgefnar og komumst í
samfélag við Krist. Postulinn er að sýna
oss fram á að þetta verður að vera stöðug
reynsla vor, ef vér eigum að lifa í honum
og hann >í oss. Synd er það eina, sem get-
ur hindrað oss frá að vera stöðug í honum.
Aftur segir sami postuli: „En hver sá
sem heldur hans iboðorð, hann er Guði
staðfastlega sameinaður og Guð honum“.
I Jóh. 3:24. Það verður bæði að vera innra
samfélag hjartans við Krist og einnig hið
ytra í lífinu, fullkomin hlýðni við vilja
faans, ef vér eigum að vera stöðugir í hon-
um. Vér megum í engu stríða móti vilja
hans eins og hann er opinberaður í orðinu.
Dyrnar verða að standa alveg opnar, svo
syndin geti farið út, en hans guðdómlegi
vilji komið inn. „Sjáðu, ég stend við dyrn-
ar og kný á, sá er heyrir raust mína og
lýkur upp fyrir mér, til hans mun ég inn
ganga og neyta kvöldverðar“. Op. 3:20.
Ef synd ekki lokar dymar fyrir honum
í lífi voru þá mun Jesús koma inn og taka
sér bústað hjá oss. Bænheyrsla er komin
undir þessari reynslu, að Kristur hafi bú-
stað hjá oss og vér séum stöðugir í honum.
Hversu einfalt það er að mæta þessu skil-
yrði og njóta þeinrar reynslu að fá bænum
vorum svarað.
L. K. Dickson
-f -f
Gjör þitt besta
Vér þurfum aldrei að vera 1 vandræðum
með að vita hvaða stöðu Guð vill vér höf-
um í lífinu. Skylda vor er að gjöra vort
besta þar sem vér erum og við það sem
vér vinnum. Ef þér er það áhugamál að
vita áform Guðs með framtíð þína, þá
gjörðu Guðs vilja á hverjum degi. Það er
áform Guðs þér viðvíkjandi í dag. Ef hann
hefir annað og betra pláss fyrir þig, þá mun
hann sjá um að koma þér þangað á hentug-
asta tíma, og þá verður það Guðs áform fyr
ir þig að fullnægja því starfi.
. M.M.
-f -f -f
Árið 1945 voru framlög Ameríkumanna
til kristindómsmála, ein biljón og 35 milj.
dollara, að því er lífsábyrgðarfélag eitt
skýrir frá. En “Tíminn”, segir að samtímis
hafi þjóðin borgað sjö biljónir og átta
miljónir fyrir áfenga drykki og þrjár
biljónir fyrir tóbak.
-f -f -f
Það eru líkindi til að Argentína missi
af sölu hálfri milljón punda af línolíu, sem
hún áður hefur selt til Norður-Ameríku,
af því að nú hefir mönnum reynst að soy-
baunaolía er alveg eins nothæf bæði í
málningu og við tilbúning gólfdúka.
-f -f +
Fjármálaráðgjafi Frakklands segir að
250 þúsund útlendir ferðamenn hafi heim-
sótt Frakkland árið 1946.
-f ♦ -f
Á Nýja-Sjálandi eru 20 kindur og þrjár
kýr að meðaltali fyrir hvert mannsbarn
í landinu.
-f -f -f
Japanskir vísindamenn hafa fundið upp
meðal sem nefnist Köha, og flýtir fyrir
græðslu brunasára og annara sára og einn-
ig frostbólgu, ef meðalinu er sprautað inn
í æðar sjúklingsins.
Amerískir jarðfræðingar álíta að Cuba
hafi einhverntíma verið hluti af Norður-
Ameríku. Þeir byggja skoðun sína á því,
að sams konar forndýrabein hafa fund-
ist þar, eins og fundust í Florida á 18. öld.