Stjarnan - 01.02.1948, Qupperneq 1

Stjarnan - 01.02.1948, Qupperneq 1
STJARNAN t FEBRÚAR, 1948 LUNDAR, MANITOBA Jesús — sigri hrósandi frelsari En þá hann hafði fært eina einustu syndafórn, situr hann að eilífu til Guðs hægri handar, og bíður framvegis þangað til óvinir hans verða gjörðir að hans fóta- skör.” Hebr. 10:12.13. Hér er oss berglega sýnt að Jesús er guð- dómlegur og situr til hægri handar Guði. Hann er þar sem vinur vor og talsmaður. Hann stendur fyrir máli voru, maðurinn Jesús Kristur. Þótt hann sé á hástætinu til hægri handar Guði, þá er hahfi þó maður sama eðlis og vér. Hann sampínist vorum veikleika . . . þó án syndar. Hebr. 4:15. En þótt hann sé maður þá er hann líka Guðs sonur, og vor himneski faðir svarar bænum vorum um fyrirgefning syndanna í nafni Krists og hans vegna. Fyrir nokkrum árum síðan var dómari einn sem átti ástkæran son sinn í hernum. Einn dag þegar hann var upptekinn við að athuga vandasamt mál sem bráðum átti að koma fyrir réttinn, þá ásetti hann sér að láta engan og ekkert trufla sig. Þá kom hermaður inn á skrifstofu hans, sem var fölur, grannleitur og auðsjáanlega veikur. Dómarinn hélt áfram starfi sínu og lét sem hann sæi hann ekki. Þegar hermaðurinn sá að hann var ekki velkominn sagði hann: “Eg er með bréf til þín herra minn.” Dómarinn svaraði ekki, en nú lagði her- maðurinn bréfmiða á borðið fyrir framan hann. Dómarinn leit upp og var rétt að því kominn að segja að hann hefði ekki tíma til að sinna því nú, en honum varð litið á skriftina og hann þekti strax handskrift sonar síns. Hann las miðann: “Kæri faðir, þessi piltur er vinur minn. Hann hefir verið hugrakkur hermaður, en nú er hann að yfirgefa sjúkrahúsið og fer heim til að deyja. Eg bið þig mín vegna hjálpaðu hon- um, Charlie”. Þetta dugði. Pilturinn fékk bestu viðtökur og alla þá hjálp sem, hægt var að veita. Sömuleiðis þegar vér komum til vors himneska föður og biðjum hann um eitthvað í Jesú nafni þá mun hann vissulega veita oss það ef hann sér það er oss til góðs. Eftir að oss er sagt að Jesús situr til Guðs hægri handar, þá erum vér fullviss- aðir um að: “Með einni fórn hefir hann að eilífu fullkomna gjört þá sem helgaðir verða.” Hebr. 10:12. Þetta sýnir ljóslega fullkomleika og ævarandi gildi fórnar Krists . Prestarnir í musterinu fórnuðu aftur og aftur samskonar fórnum. Lömb og önn- ur fórnardýr voru daglega ár eftir ár leidd upp að fórnaraltarinu, þau fyrirmynduðu frelsarann sem menn alt frá dögum Adams höfðu verið að vænta eftir. En þegar Jesús hið sanna Guðs Lamb fórnaði sjálfum sér á krossinum, þá var engin þörf lengur fyrir fórnir í musterinu. Fórn Krists fyrir synd- ina var fullkomin eitt skifti fyrir öll. Þegar hann hneigði sitt þyrnum krýnda höfuð á krossinum hrópaði hann: “Það er fullkomn- að”. Jóh. 19:30. Fórn hans ákrossinum var fullnægjandi, hún var “Eitt skifti fyrir öll.” Vér lesum í 1. Jóh. 2:2 “Hann var forlíkun .. fyrir allrar veraldarinnar syndir”. í Hebr. 9:28 stendur: “Þannig er Kristur eitt sinn fórnfærður til þess að burttaka margra syndir.” Og hjá Jes. 53:6 lesum vér spádóm sem ritaður var 700 árum áður en Jesús dó: “Vér fórum allir villir vega sem sauðir, stefndum hver sína leið, en Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður á honum.”

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.