Stjarnan - 01.02.1948, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.02.1948, Blaðsíða 6
14 STJAKNAN “Hann mun vegsama mig, því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður,” sagði Jesús. Vér getum ekki endunýjast í anda vors hugskots nema fyrir áhrif heilags anda. Guðs andi endurfæðir oss og veitir oss þá frelsun sem Jesús með dauða sínum ákrossinum ávann oss. Heilagur andi leit- ast altaf við að leiða athygli manna að hinni dýrmætu fórn, sem færð var á Gol- gata, sýna þeim kærleika Guðs til mann- anna, og minna hinn iðrandi syndara á Guðs óbrigðulu fyrirheit. Margir misskilja áhrif Guðs anda á manns hjartað. Þeir halda að hrifning og ákafar gleðitilfinningar, séu óræk merki um starf andans í lífi þeirra, og álíta að þetta eigi að vera stöðug reynsla hins trú aða. En Guðs orð sýnir oss að helgun mann- sins er stöðug framför í rósömu, guðræki- legu líferni. “Oss kemur ekki til hugar að neita því að Guðs andi geti talað til hjartna manna við ýms tækifæri. En vér viljum taka því fram að það er engin sönnun fyrir því að maðurinn sé umventur, þó hann undir sér- stökum kringumstæðum verði ákaflega hrifinn og hrópi Halelúja. Helgun er ekki augnabliks hrifning, heldur fullkomin und- irgefni undir Guðs vilja líf, sem stvðst við og lifir af sérhverju orði sem fram gengur af Guðs munni, líf í hlýðni við vorn himn- eska föður, í fullkomnu trausti til hans, hvort sem menn mæta gleði eða sorg. Það er líf í trú en ekki skoðun. Það er að reiða sig á Guð og hvíla huga sinn við kærleika hans.” Þeir sem á hvítasunnudaginn meðtóku kraft frá hæðum, voru ekki leystir frá freistingum og erfiðleikum 1 framtíðinni. Þegar þeir báru sannleikanum vitni, réðist óvinur sannleikans að þeim aftur og aftur, og reyndi að ræna þá hinni kristilegu reynslu. Þeir urðu daglega að berjast trú- arinnar góðu baráttu og keppast eftir að ná aldurshæð Krists ’fyllingar. Daglega beiddu þeir um nýja náð og nýjan kraft, svo þeir gætu náð meiri fullkomnun. Fyrir kraft heilags anda og traust til'Guðs gátu jafnvel hinir lítilmótlegustu vaxið í náð og krafti Krists helgaðir og ummyndaðir eftir hans mynd.” A. P. Týnda Biblían Gatan var mjó, grýtt og brött á fjalli einu í Guatemala. Trúboðinn sem var þreyttur mjög hraðaði ferð sinni sem mest hann mátti, en þetta var seinfarinn vegur. Hann staðnæmdist á einum stað þar sem stígurinn var ekki alveg eins slæmur. “Þú þarft hvíld og eg líka.” sagði hann við hestinn sinn. Hann opnaði þverpokann bag við hnakkinn til að ná í Biblíuna sína, en hún var þar ekki. “Hún er farin, hlýtur að hafa runnið út úr pokanum fyrir löngu síðan, og eg get ekki snúið aftur, stígurinn er alt of hættulegur í myrkri.” Trúböðinn hallaði sér upp að hestinum lokaði augum sínum og bað Guð að ef hann skyldi ekki sjá Biblíuna sína aftur að ein- hver mætti þá finna hana sem gæti lært af henni um kærleika Guðs til syndara. Svo steig hann á bak hestí sínum og sagði: “Komdu Pedro, við megum ekki bíða'hér’ lengur því fólkið í þorpinu væntir okkar áður en dimmir.” Hann fylgdi hinum krókótta stíg niður fjallið og komst loks ofan í þorpið þar sem hann ætlaði að segja frá frelsaranum. Hann saknaði Biblíunnar sinnar, en hann hafði lært mörg vers og jafnvel heila kapítula utanbókar, svo hann kendi fólkinu dag eft- ir dag um Jesúm og kærleika hans til mannanna. Mörgum vikum seinna sneri hann aftur upp yfir fjallið í hverjum bæ á leiðinni spurði hann um Biblíuna sem hann hafði týnt, en enginn hafði séð hana, og enginn hafði nokkurn tíma heyrt um Biblíu. ' Trúboðinn vissi að Guð mundi h a 1 d a hendi sinni yfir Biblíunni, svo enn einu sinni þegar hann kom að síðasta, þorpinu, sem líka var hið minsta og fátækasta af þeim öllum, þá spurði hann um týndu Biblíuna. Indíána bóndi einn bjó í þessu þorpi og hann hafði verið á ferð á sömu slóðum eftir að Biblían týndist og fann hana, en hann gat ekki lesið, svo hann fór með bókina til hins eina manns í þorpinu sem kunni að lesa. Fólkið flyktist saman til að heyra manninn lesa og voru svo hrifnir af því sem þeir heyrðu að þeir komu saman á hverju kvöldi til að hlusta á lesturinn.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.