Stjarnan - 01.05.1949, Síða 2

Stjarnan - 01.05.1949, Síða 2
34 STJARNAN hann horfði á þá fullur viðkvSemrar með- aumkunar. Líf hans var fullt sjálfsafneit- unar og óþreytandi umhyggju fyrir öðrum. Hver einasta sál var dýrmæt í hans augum. Jafnframt því sem framkoma hans bar í hvívetna vott um guðdómlega tign, sýndi hann allri guðs skepnu hið ástríkasta hug- arþel. Hann leit svo á sem allir menn væru fallnar sálir, og taldi það sitt hlutverk að frelsa þá. Þetta er Krists lunderni, sem líferni hans hefur opinberað oss; og þetta er guðs lunderni. Frá hjarta föðursins streymir sú guðdómlega miskunsemi, sem opinber- aðist í Kristi, út til mannannna barna. Jesús, hinn ástríki, líknfúsi frelsari, var guð opinberaður í holdinu. 1 Jesús lifði, leið og dó til þess, að endur- leysa oss. Hann var sorgum hlaðinn til þess, að vér gætum fengið hlutdeild í eilífri gleði Guð gaf leyfi til þess, að sonur hans elskulegur, fullur náðar og sannleika, færi frá þeim heimi, sem fullur var óumræði- legrar dýrðar, til þeirrar veraldar, sem syndin hafði saurgað og spillt, bölvunar- innar og dauðans skuggi myrkvað. Hann gaf leyfi til þess, að hann, sem englarnir tilbáðu, yfirgæfi skaut kærleika hans og þyldi svívirðingu, spott, niðurlægingu hat- ur og dauða. “Hegningin lá á honum, svo að vér hefðum frið og fyrir hans benjar urðum vér heibrigðir.” 2 Virð þú guðs son fyrir þér í eyðimörkinni, í Gethsemane, á krossinum. Guðs heilagi sonur tók synda- byrðina á sínar herðar. Hann. sem hafði verið eitt með guði, fann í sálu sinni þann skelfilega aðskilnað, sem syndin kemur til leiðar milli guðs og manna. Þetta knúði af vörum hans kvalaópið: “Guð minn! guð minn! hví hefur þú yfirgefið mig?”3 4 Syndabyrðin, tilfinningin um hinn hræði- lega mikla aðskilnað sálarinnar frá guði, var það, sem orskaði, að hjarta guðs sonar brast. En þessi mikla fórn var ekki færð til þess að vekja kærleika til mannanna í hjarta föðursins eða til þess að gjöra hann fúsan til þess að frelsa þá. Fjarri fer því! “Því svo elskaði guð heiminn, að hann gaf 1) Tím. 3, lfi. 2) Es. 53, 5. 3) Matt, 46. sinn eingetinn son.” 1 Faðirinn elskar oss ekki vegna hinnar miklu fórnar, en hann færði fórnina af því að hann elskaði oss. Kristur var milligöngumaðurinn; fyrir hans milligöngu var föðurnum auðið að úthella kærleika sínum yfir hinn fallna heim. Guð var í Kristi og “friðþægði heim- inn við sjálfan sig.’2 Guð þjáðist með syni sínum. Hinn eilífi kærleikur greiddi end- urlausnargjald vort með dauðaangist hans í Gethsemane og dauða hans á Golgatha. Jesús sagði: “Þess vegna elskar faðir- inn mig, að ég læt líf mitt, svo að ég taki það aptur.”3 Það er með öðrum orðum: “Faðir minn hefur elskað yður svo mjög, að hann jafnvel elskar mig meira af því að ég læt mitt líf til þess að endurleysa yður. Um leið og ég kem í yðar stað og gjörist yðar ábyrgðarmaður, framsel líf mitt og tek sekt yðar og lögmálsbrot á mínar herðar, verð ég föðurnum enn kær- ari; því að vegna fórnar minnar getur guð yerið réttlátur og þó réttlætt þann, sem trúir á mig.” Enginn annar en guðs son gat endur- leyst oss, því að enginn gat opinberað föð- urinn nema sá, sem var í hans skauti. Þeim einum, sem þekkti hæð og dýpt guðs kær- leika, var auðið að opinbera hann. Minna nægði eigi til þess að sýna kærleika föð- ursins til hins glataða mannkyns en sú eilífa fórn, sem Kristur bar fram fyrir hinn fallna heim. “Því svo elskaði guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son.” 4 Hann gaf hann ekki að eins til þess að hann skyldi lifa meðal mannannna, bera syndir þeirra og deyja sem þeirra fórn, heldur gaf hann hinu fallna mannkyni sjálfan hann. Krist- ur átti að sameinast mönnunum, tileinka sér þeirra hugðmál og þarfir. Hann, sem var í föðurnum, hefur tengst mannanna börnum með böndum, sem aldrei eiga að slitna. Jesús fyrirverður sig ekki fyrir að kalla mennina bræður sína.5 Hann er vor fórn, talsmaður vor og bróðir. Hann er íklæddur vorri mannlegu mynd frammi fyrir hásæti föðursins, og hann er um aldir alda sameinaður því kyni, er hann endur- leysti. Hann er mannsins sonur. Og allt 1) Jóh. 3, 16. 2) 2. Kor. 5, 19. 3) .Tóh. 10. 17. 4) Jóh. 3, 16. 5)Hebr. 2, 11.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.