Stjarnan - 01.05.1949, Page 6

Stjarnan - 01.05.1949, Page 6
38 STJAfíNAW Horfist í augu við erfiðleikana Hefir þú nokkurn tíma að loknu dags- verk sagt við sjálfan þig: “þessum degi var vel varið í samfélagi við Guð.” Ef þú hefir aldrei haft slíka reynslu þá hefir þú mist mikið. í bók sinni “ Hvernig að hrinda frá sér áhyggjum og byrja að lifa,” segir höfund- urinn, Dale Carnegie frá því að foreldrar hans hafi fundið frið og öruggleika í krist- indóminum. Hann segir að móðir sín hafi haft þá “óbifanlegu sannfæringu, að ef vér elskuðum Guð og héldum hans boðorð þá mundi greiðast úr öllum erfiðleikum.” Fjöldskyldan bjó á bændabýli í Miss- ouri þar sem bæði flóð og uppskerubrestur kom fyrir ár eftir ár. “f öll þess ár var móð- ir mín alveg kvíðalaus. Hún lagði það alt fram fyrir Guð í bæn. Á hverju kvöldi áð- ur en vér gengum til hvílu var móðir mín vön að lesa kafla í Biblíunni. Foreldrar mínir lásu oft þessi huggunarorð Krists: “í húsi föður míns eru mörg híbýli . . . ég fer að tilbúa yður stað . . . svo þér séuð þar sem ég er.” Svo féllum vér öll á kné þar sem vér bjuggum á afskekta sveita- heimilinu í Missouri og báðum til Guðs um hans kærleiksríku varðveislu.” Þetta var aðferðin sem menn og konur notuðu síðast liðna öld til að sigrast á kvíða og áhyggjum. William James háskólakenn ari sagði einu sinni: “Besta meðalið móti áhyggjum er lifandi trú.” En það þarf nú ekki háskólakennara til að uppgötva þetta. Feður vorir og mæður sem fluttu í nýtt, óbygt land höfðu Guð fyrir sinn styrk og athvarf, þegar þau mættu einveru og erfðileikum. Kvíði er andlegur sjúkdómur, og flest- ir meðal vor hafa þjáðst af honum eins og mislingunum einhvern tíma á æfinni. Sum- ir fara til sálarfræðinga að leita sér hjálpar Þeir geta fundið ráð til að leiðrétta hugs- unarháttinn, en ótti og kvíði er sérstak- lega vöntun á öruggleika, sem orsakast af því að menn hafa ekki lifandi trú á almátt- ugum Guði. “í vilja hans er vor friður fólginn,” segir Dante. Þegar vér höfum gjört alt sem í voru valdi stendur, þá skulum vér sleppa öllum kvíða og treysta vorum himneska föður til að greiða úr öllu eins og best er. Guð talar til vor alveg eins og til fyrri tíðar manna þessi hughreystingarorð: “Ótt- ist ekki.” Látum oss gefa gaum að raust hans. Meðal hinna þrjátíu og tveggja frásagna um menn og konur, í bók Carnegies, sem sigruðust á kvíða er ein eftir prest sem segir: “Fyrir mörgum árum síðan, þegar óvissa og vonbrigði skygði á og alt virtist ganga mér á móti, sem ég gat ekkert við ráðið, þá opnaði ég einn morgun Nýja Testamentið og mér varð litið á þessa setningu: “Hann sem sendi mig er með mér. Faðirinn hefir ekki látið mig einan.” Þessi orð breyttu öllu lífi mínu. Alt hefir litið öðruvísi út síðan. Ég held það hafi aldrei liðið svo nokkur dagur síðan að ég hafi ekki endurtekið þessi orð með sjálfum mér. Margir hafa komið og leitað ráða hjá mér öll þessi ár, og ég hef altaf sent þá í burtu með þá huggunarríku fullvissu sem felst í þessum orðum. Ég hef lifað á þess- um orðum síðann ég las þau. Ég hef geymt þau í hjarta mínu, þau hafa veitt mér frið og styrkleika. Fyrir mig eru þau miðpunkt- ur trúarbragðanna. Þau eru grundvöllur- inn undir öllu sem veitir lífinu verðmæti sitt. Þau eru gullni textinn í mínu lífi.” Sjúkdómur sá er nefnist ótti og kvíði finnur aðeins eitt meðal til lækningar: það er óbifanlegt traust á Guði og fúsleiki til að vera staðfastur í hans elsku. Þegar vér höfum reynt kraft vors himneska föður, þá getum vér tekið undir með Davíð og sagt: “Þegar ég er hræddur treysti ég þér.” Sálm. 56:3. M.L.N. -----------+----------- Tyrkneskir læknar, sem Istanbul há- skóli sendi út til að rannsaka heilbrigðis- ástand fólksins umhverfis svarta hafið segja að 80 hundruðustu af fólkinu sé tær- ingarveikt. ♦ ♦ ♦ Brian McMahon í öldungadeild Banda- ríkja þingsins segir að Amerika hafi eytt 350 biljón dollurum til að vinna seinna stríðið. Sú upphæð hefði nægt til byggja 5 herbergja hús, fyrir hverja einustu fjöl- skyldu í heiminum, og auk þess miljón dollara sjúkrahús fyrir hvert þorp sem hefði 5000, eða fleiri íbúa.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.