Stjarnan - 01.05.1949, Side 7

Stjarnan - 01.05.1949, Side 7
STJARNAN 39 Hver eru skilyrðin fyrir bænheyrslu “Ef mitt fólk auðmýkir sig, það sem nefnt er eftir mínu nafrii, og þeir biðja og leita míns auglitis og snúa sér frá sínum vondu vegum, þá vil ég heyra í himninum og fyrirgefa þeirra synd og lækna þeirra land.” 2. Kron. 7:14. Menn spyrja stundum hvort það gagni nokkuð að biðja. Vér getum svarað því bæði já og nei. Margir biðja og fá ekki það sem þeir biðja um. Aðrir biðja og fá hjálp. Bænin er einkaréttindi fremur en skylda. Bæn er góð og sjálfsögð, en það er oft eitthvað að þeim sem biðja. Margir biðja til Guðs, en hafa enga löngun til, eða áform um að gefa Guði líf sitt. Það væri ekki skynsamlegt fyrir neina þjóð að afhenda vopnabúr sitt í óvinahendur. Væri það fremur hugsanlegt að Guð vildi veita sinn andlega kraft, þeim sem mundu nota hann í eigingjörnum tilgangi. Margir óska eftir að öðlast kraft Guðs, en þeir vilja fá hann til að upphefja sjálfa sig. Lát Guð stjórna þér. Sá sem biður til Guðs verður að vera fús til að lifa í hýðni við lögmál Guðs og vilja hans. Sönn bæn leitar Guðs vilja í öllum kringumstæðum lífsins, Guð er ekki eins og vikadrengur er senda má til snúninga fyrir eigingjarnar mannlegar verur. Sumir koma til Guðs eins og menn skreppa í lyfjabúðina til að kaupa pillur, til að lækna höfuðverk. Þeir vilja ekki hætta því sem orsakaði höfuð- verkinn. Þeir vilja gjöra sem þeim sjálfum sýnist, en fá samt að losast við höfuðverk- inn. Reyndu ekki til að segja Guði fyrir, en láttu hann heldur stjórna þér. Til þess að vera viss um svar upp á bæn, verður sá sem biður að vera Guðs barn, gjöra alt í orði og verki Guði til dýrðar. Hann þarf að auðmýkja sig fyrir Guði og snúa sér frá allri synd. Ert þú fús til að fylgja lífsreglum þeim sem Guð hefir gefið oss, hans heilögu boðorðum? Treystir þú honum af öllu hjarta? Það eru lítil lík- indi til að maður auðmýki sig fullkomlega fyrir Guði fyr en hann sér að hann er al- gjörlega upp á hann kominn. Þegar sprengjurnar voru sendar yfir England er sagt að lítil stúlka í Lundúnum hafi beðið: “Guð blessaðu mömmu, pabba, systir og bróðir, og passaðu sjálfan þig vel, því ef eitthvað verður að þér þá sökkvum við öll.” Þessi litla stúlka hefir skilið hjálpar- leysi manna. Margir missa allan kjark nú á dögum af því þeir hafa reitt sig á eigin kraft. Sum- ir setja traust sitt til stjórnmálamanna og annara leiðtoga. Þetta er heimskulegt og gagnslaust. Ef vér viljum að Guð svari bænum vor- um verðum vér að vera fúsir til að gjöra eitthvað fyrir hann. Vér verðum að lifa og starfa eins og sannkristnir, trúaðir menn. Ríkur bóndi einn bað Guð að hjálpa nauð- stadda fátæka fólkinu í héraði sínu. Að lokinni bæn sagði sonur hans: “Pabbi, ég vildi ég hefði kornið þitt til að svara bæn þinni.” Bið Guð að nota þig í, þjónustu sína. Bið hann að gefa þér Jesú kærleiksríka, fórnfúsa hugarfar. Jesús gaf sjálfan sig til líknar nauð stöddum. Gef Guði lif þitt heilt og óskift, og þú munt vissulega fá bænum þínum svarað. “Ef þér eruð stöðugir í mér og mín orð hafa stað hjá yður, þá megið þér biðja hvers þér viljið og það mun yður veitast.” Jóh. 15:7. Adapted. --------'----+------------- Hareem lærir að treysta Guði “Ef við verðum lausir við engisprett- urnar þá verður góð uppskera í haust,” sagði Hareem við föður sinn. Hann var Persneskur drengur sem bjó hjá foreldrum sínum úti á landi. Hann vonaði þeir fengju góða uppskeru. » Þegar lokið var morgunverði fór faðir- inn út á akur en Hareem varð að fara á skólann. Þetta var heitur lognmolludagur, svo hann var latur fætur hans virtust svo þungir alveg eins og þeir væri límdir við jörðina. Hann haíði lítinn áhuga fyrir skólanum í dag. Þó Hareem hefði oft heyrt um Jesúm, þá veitti hann því litla eftirtekt. Það var ekkert hugsað um Guð á heimili hans og það hjálpaði líka til að viðhalda kæruleysi hans.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.