Stjarnan - 01.09.1949, Síða 2

Stjarnan - 01.09.1949, Síða 2
66 STJARNAN eru fáir, sem hirða þá um að laga sig eptir Jesú mynd. Þótt ekki sé nema einn brestur, ein syndsamleg ósk, sem menn halda áfram að ala í huga sínum, þá mun hún að síð- ustu ónýta krapt fagnaðarboðskaparins. Sérhver holdleg nautn styrkir mótþróa sálarinnar gegn guði. Sá maður, sem sýn- ir þrjózkufulla vantrú eða sljóft kæruleysi gagnvart sannleika guðs, sker það eitt upp, er hann hefur niðursáð. Engin óttalegri viðvörun er til í allri ritningunni gegn því að leika sér að hinu illa en þau orð spek- ingsins, að hinn óguðlegi „mun bundinn verða með reipum synda sinna“. Kristur er reiðubúinn til þess að frelsa oss frá syndinni, en hann neyðir engan; og ef vér höldum áfram að brjóta boð guðs og látum ekki af hinu illa, ef vér óskum ekki að verða frelsaðir og viljum ekki þiggja náð hans, hvað getur hann þá frekar gjört? Vér höfum sjálfir stofnað oss í glötunina, er vér höfum hafnað kær- leika hans af ásettu ráði. „Sjá, nú er sú æskilega tíð; sjá nú er dagur hjálpræðis- ins“. „í dag, er þér heyrið hans raust, forherðið þá ekki hjörtu yðar“. „Menn líta á augun, en drottinn lítur á hjartað“. Hann lítur á hið mannlega hjarta og gleðina og harminn, sem í því býr, hið órósama vilta hjarta, sem hefur svo mik- inn saurugleik og tál að geyma. Hann þekk ir hvatir þess, innstu fyrirætlanir þess og áform. Farðu til hans með sálu þína, þótt saurguð sé. Opna þú fylgsni hennar fyrir auganu alltsjáanda, eins og sálmaskáldið hebreska, og segðu eins og það: „Rann- saka mig guð! og þekktu mitt hjarta, prófa mig og þekktu mínar hugsanir. Sjá þú, hvort ég er á ógæfunnar vegi og leiddu mig á eilífðarinnar veg“. Margir játa nokkurs konar skynsemis- trú og hafa á sér nokkurs konar guðsótta- blæ án þess að hjartað sé hreint. Þessi sé bæn þín: „Skapa í mér hreint hjarta, ó guð, og endurnýja í mér stöðugan anda“. Vertu hreinskilinn við þína eigin sál. Vertu svo alvörugefinn og þrautseigur sem þú mundir vera, ef hið tímanlega líf þitt væri í hættu. Þetta er mál, sem guð og sál þín verða að útkljá sín á milli, og það verður að vera til lykta leitt áður en eilífðin rennur upp. Táldrægar vonir verða þér til glötunar. Rannsaka þú guðs orð með bæn. Þetta orð sýnir þér í lögmáli guðs og lífi Krists hin mikilsvarðandi grundvallaratriði hei- lagleikans, „án hvers enginn kann drott- inn að sjá“. Það sannfærir um syndina og leiðir hjálpræðisveginn greinilega í Ijós. Gef gaum að því; því að í því talar rödd guðs til sálar þinnar. Eigi skalt þú gefa þig örvæntingunni á vald er þú sérð, hve voðaleg syndin er og hvernig þú ert í raun og veru. Kristur kom einmitt til að frelsa syndara. Vér þurfum ekki að friðþægja oss við guð en — hvílíkur undraverður kærleikur! — guð friðþægði í Kristi heiminn við sjálfan sig. Hann býður af sínum viðkvæma kærleika hinum villuráfandi börnum sínum að koma til sín. Enginn jarðneskur faðir get- ur umborið bresti barna sinna með svo mikilli þolinmæði, sem guð sýnir þeim, er hann leitast við að frelsa. Enginn getur áminnt þá, sem brotlegir eru, með meiri kærleika. Engar mannlegar verur hafa flutt þeim, sem eru villtir vegar, innilegri og meir knýjandi heimboð en hann. Öll hans fyrirheit og allar hans áminningar eru eingöngu gagnteknar af og bera vott um óumræðilegan kærleika. Þegar satan kemur og segir, að þú sért stórsyndari, þá líttu til frelsara þíns og minnstu verðskuldunar hans. Þú munt öðlast hjálp er þú horfir upp til ljóssins, er stafar frá honum. Kannastu við að þú hafir syndgað, en segðu óvininum, að „Kristur sé kominn í heiminn til að frelsa synduga menn“, og að þú getir orðið hólp- inn vegna hins óviðjafnanlega kærleika hans. Jesús lagði fyrir Símon spurningu um tvo skuldunauta. Annar var í skuld við lánardrottinn sinn um lítið fé, og hinn um mikið, en hann gaf báðum upp skuld- ina; og Kristur spurði Símon, hvor þeirra hann héldi að mundi elska lánardrottinn sinn meira. Símon svaraði: „Sá, sem hann gaf upp stærri skuldina“. Vér höfum ver- ið stórsyndarar, en Kristur dó til þess að vér mættum öðlast fyrirgefningu. Verð- skuldun fórnar hans er í augum föðursins nægileg oss til gagns. Þeir, sem hann hefur gefið mest eptir munu elska hann mest og standa næstir hásæti hans, til þess

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.