Stjarnan - 01.09.1949, Blaðsíða 4

Stjarnan - 01.09.1949, Blaðsíða 4
68 STJARNAN um þaðan á augabragði öll ríki veraldar- innar og sagði: „Allt þetta veldi mun ég gefa þér og vegsemd þess, því allt er mér það í vald gefið, svo ég geti gefið það hverjum sem ég vil“. Lúk. 4:5.—6. „Sér- hver verður ánauðugur þræll þess er hann sigrast af“. 2 Pét. 2:19. Jesús kallar satan höfðingja þessa heims. „Því að höfðingi þessa heims kem- ur, og í mér hefir hann ekkert“. Jóh. 14:30. 4. Jesús endurkeypti með blóði sínu það sem maðurinn missti. „Þér vitið að þér eigi eruð endurleystir með forgengi- legu silfri eða gulli, frá yðar hégómlega athæfi, er þér numið höfðuð af feðrum yðar, heldur með dýrmætu blóði þess ó- flekkaða og lýtalausa lambsins, Krists“. IPét. 1:18.-19. Hann gefur eilíft líf. „Náðargjöf Guðs er eilíft líf í Jesú Kristi Drottni vorum“. Róm. 6:23. En gjöfin er skilyrði bundin: „Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf sinn eingetinn Son, til þess að hver sem á hann trúir ekki glatist, heldur hafi eilíft líf“. Hann ummyndar þá sem á hann trúa. „Hver sem er í Kristi hann er ný skepna. hið gamla er afmáð: sjá allt er orðið nýtt“. 2 Kor. 5:17. „En vér allir, er skoðum eins og í spegli, með beru andliti dýrð Drott- ins, ummyndumst eins og af Drottins Anda, eftir þessari sömu mynd til meiri og meiri dýrðar“. 2 Kor. 3:18. Guð mun endurreisa heimilið, skapa nýja jörð. „Takið því sinnaskiptum og snúið yður, svo að syndir yðar verði fyrir- gefnar svo að endurlífgunartímar komi frá augliti Drottins, og hann sendi þann yður fyrirhugaða Jesúm Krist, sem á að halda himninum allt til þess tíma að allt endur- skapast, sem Guð hefir talað um fyrir munn allra sinna heilögu spámanna frá öndverðu“. Post. 3:19.—21. „En eftir hans fyrirheiti væntum vér nýs himins og nýrr- ar jarðar þar sem réttlætið mun búa“. 2Pét. 3:13. Maðurinn fœr aftur yfirráð yfir jörð- inni. „Þann sem sigrar, skal ég láta sitja hjá mér í mínu hásæti, eins og ég sjálfur að unnum sigri settist hjá mínum Föður í hans hásæti“. Op. 3:21. „Engin bölvun skal framar til vera, og hásæti Guðs og Lambsins skal í henni vera, og hans þjón- ar skulu honum þjóna, þeir skulu sjá hans auglit og bera hans nafn á ennum sér“. Op. 22:3.—4. 5. Lýsing nýju jarðarinnar. Núverandi jörð verður hreinsuð með eldi. „Dagur Drottins mun koma sem þjófur á nóttu, þá munu himnarnir með miklum gný líða undir lok, frumefnin af eldi sundurleys- ast, og jörðin og þau verk sem á henni eru upp brenna“. 2 Pét. 3:10. Hin nýja Jerúsalem verður höfuðborg- in. Lesið 21. og 22. kap. Opinberunarbók- arinnar. Guð mun dvelja hjá mönnunum. „Ég heyrði mikla rödd af himni segjandi: Þetta er tjaldbúð Guðs meðal mannanna, hjá þeim mun hann bústað hafa, og þeir skulu vera hans fólk, og Guð sjálfur mun vera hjá þeim og vera þeirra Guð“. Op. 21:3. Menn munu búa út um landið. „Sjá, ég skapa nýjan himin og nýja jörð, hins fyrrveranda skal ekki framar minnst verða, og það skal engum í hug koma .... þeir skulu byggja hús og búa í þeim, planta víngarða og eta þeirra ávöxtu“. Jes. 65:17.-21. Menn munu koma til borgarinnar reglubundið til Guðsþjónustu. „Því að eins og hinn nýi himinn og hin nýja jörð, sem ég skapa, munu standa stöðug fyrir mínu augliti, segir Drottinn, eins munu afsprengi yðar og nafn standa stöðugt. Og á mánuði hverjum tunglkomudaginn, og á viku hverri hvíldardaginn, skal allt hold koma, til þess að falla fram fyrir mér, segir Drottinn“. Jes. 66:22. —23. (Nýja þýðingin). Enginn sjúkdómur, sorg eða þjáning verður framar til. „Enginn af innbyggj- endum borgarinnar skal segja: Ég er sjúk- ur. Fólkinu sem í borginni býr eru synd- ir þess fyrirgefnar“. Jes 33:24. „Hann mun þerra hvert tár af augum þeirra, og dauð- inn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né mæða mun framar til vera, því hið fyrra er farið“. Op. 21:4. Öll dýrin verða friðsöm. „Þá mun úlf- urinn búa hjá lambinu og pardusdýrið liggja hjá kiðlingnum, kálfar, ljónskálf- ar og alifé ganga saman, og smásveinn leiða þau. Kýrin og bjarndýrið munu vera á beit saman, og kálfar og húnar liggja

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.