Stjarnan - 01.09.1949, Side 5
STJARNAN
69
hvorir hjá öðrum; ljónið mun hey éta sem
naut. Brjóstmylkingurinn mun leika sér
við holudyr nöðrunnar, og það barn sem
nývanið er af brjósti, mun stinga hendi
sinni inn í bæli höggormsins“. Jes. 2:6.—9.
„Hvergi á mínu heilaga fjalli munu þau
nokkurt mein eða skaða gjöra, því jörðin
er full af kynningu Drottins eins og sjávar-
djúpið er vötnum hulið“.
Jörðin verður öll fögur og frjósöm.
Lesið Jesajas 35. kapítula.
Vér munum þekkja hver annan. „Nú
sjáum vér í gegnum gler í ráðgátu en á
síðan augliti til auglitis, nú þekki ég að
nokkru leyti, en þá mun ég sjálfur þekkja-
■ eins og ég er sjálfur þekktur". IKor. 13:12.
Vér skiljum ekki til fulls þá dýrð, sem
í vændum er. „Auga hefir ekki séð, ekki
eyra heyrt, og í einkis huga komið, það
sem Guð hefir þeim fyrirbúið sem hann
elska“. IKor. 2:9.
_______________*_______________
Davíð Brainerd var trúboði meðal Indí
ána í Ameríku. Hann var bænarinnar
maður. Um hann var sagt að hann fram-
kvæmdi mest af starfi sínu gegnum bæn.
Hann var einsamall lengst inni í skógin-
um og gat ekki talað mál Indíánanna, svo
hann varði heilum dögum til að biðja Guð
að úthella yfir sig krafti heilags anda svo
ríkulega að fólkið gæti ekki staðið á móti
honum.
Þessi maður baðst fyrir í einveru skóg-
arins. Seinna þegar William Carey las
æfisögu hans varð hann svo hrifinn að
hann gaf líf sitt til kristniboðsstarfs.
Henry Martin las lífsögu hans, það leiddi
hann til að fara til Indlands. Payson las
hana og sagðist aldrei hafa orðið eins hrif-
inn af neinu sem hann las.
Hið hulda líf sem lifað er í sambandi
við Guð til þess að komast að uppsprettu
kraftarins, það er líf, sem hefir áhrif í
heiminum. C. O. G.
+ + +
Evrópa snýr sér til Guðs. Fjögur þús-
únd manns voru skírðir í Rúmeníu og sam
einuðust söfnuðum Sjöunda dags Aðvent-
ista árið 1946. í Þýzkalandi voru 5000
skírðir árið sem leið. Skyldi Guð neyðast
til að senda oss sömu hörmungar og þeir
liðu, til að vekja oss Vesturheimsbúa?
S. J.
í FÉLAGI MEÐ GUÐI
Páll og Georg voru tvíburar, en svo
ólíkir hver öðrum sem mest mátti vera.
Annar var fljótfærinn og eigingjarn, hinn
var stiltur og rólyndur.
Páll kom einu sinni inn á skrifstofu
bróður síns og sagði mjög vingjarnlega:
„Georg, þú veist mér er mjög annt um
framtíð þína, ekki einungis af því þú ert
bróðir minn, heldur af því ég veit að þú
hlýtur að hafa þá eiginleika sem við höf-
um báðir tekið í arf frá foreldrum okkar.
Ég tala hreinskilnislega. Ég hef aldrei
heyrt þig tala um trúarbrögð".
„En Páll, þú veist að ég ætla ekki að
verða prestur. Áhugamál mitt er að verða
ríkur verzlunarmaður. Hví skyldi ég
brjóta heilann um trúarbrögð“.
„Ég veit það Georg, en þú þarft að
styðjast við grundvallaratriði kristindóms-
ins viðvíkjandi verzlun þinni engu síður
en í hverri annari stöðu. Ef þú tekur ekki
Guð fyrir verzlunarfélaga þinn, þá mun
verzlun þín standa á völtum fótum, og
að líkindum enda í gjaldþroti“.
Georg þagði um stund og hugsaði,
síðan spurði hann: „Hvað meinar þú
Páll?“
„Álítur þú ekki að réttlæti, góðvilji og
ráðvendni ættu að vera grundvallaratriði
hugsana vorra og framkvæmda?“ spurði
Páll.
„Jú, með vissum skilyrðum“, svaraði
Georg. „En verzlun nú á dögum er nokk-
urs konar samkeppni, þar sem sá skarp-
asti vinnur. Stundum virðist sem maður
sé neyddur til að leggja samvizkuna til
hliðar svo að maður geti unnið í sam-
keppninni“.
„Ég er alveg sannfærður um hið gagn-
stæða“, sagði Páll. „Ég get nefnt fleiri vel
fjáða verzlunarmenn sem eru almennt við
urkenndir fyrir að fylgja grundvallarat-
riðum kristindómsins. Áreiðanlegir menn,
sem njóta trausts og hylli allra sem þekkja
þá. Við þurfum ekki að vera stefnulausir
eða áhugalausir, en áhugi vor ætti að
stefna að hinu bezta og æðsta takmarki:
Peningar eru ekki takmarkið, sem vert er
að keppa eftir. Hamingja verður ekki
keypt fyrir peninga. Það er ekki peninga
upphæðin, sem mest er um vert, heldur
hitt hvernig þeim er varið“.