Stjarnan - 01.09.1949, Page 7

Stjarnan - 01.09.1949, Page 7
STJARNAN 71 og ekki trúa sannleikanum, heldur hlýðn- ast ranglætinu, reiði og bræði, þjáning og þrenging (mun koma) yfir sérhvers mann^ sál, er illt fremur“. „Jesús er vegurinn, sannleikurinn og lífið“. Jóh. 14:16. Sá, sem ekki trúir á hann, ekki fylgir dæmi hans og ekki hlýðir kenn ingu hans, slíkur maður getur ekki kallað sig kristinn, og þó hann gangi undir nafni kristindómsins þá dregur hann sjálfan sig á tálar, því Jesús segir sjálfur: „Ekki munu allir þeir, sem til mín segja herra, herra, koma í himnaríki, heldur þeir einir, sem gjöra vilja míns himneska föður“. Matt. 7:21. Þetta fer að verða alvarlegt mál, því Guð hefir gefið oss tíu boðorðin, í þeim lætur hann í ljósi vilja sinn, og Jesús sýndi með lífi sínu, að það er mögulegt að hlýða þeim. Hann gaf okkur „fyrirmynd til að breyta eftir, svo vér skyldum feta í hans fótspor“. lPét. 2:21. „Án Krists megnum við ekkert.“ Jóh. 15:5. En við getum líka tekið undir með Páli postula: „Allt megna ég fyrir hann, sem mig styrkan gjörir“. Jesús er vor eina sáluhjálparvon. „Af engum öðrum er hjálp ræðis að vænta, því meðal manna gefst ekki nokkur annar undir himninum, fyrir hvers fulltyngi oss sé ætlað hólpnum að verða“. Post. 4:12. S. Johnson ______________*______________ Lífsábyrðarfélag eitt bendir á að í Nebraskaríkinu nái menn hæstum aldri í Bandaríkjunum. Þar lifa menn að meðal- tali 66 og einn fjórða úr ári, en konur rúm 70 ár. En aldur manna í öllum ríkj- unum að meðaltali er 62 og rúmlega fjórir fimmtu úr ári, en aldur kvenna 67 og nærri einn þriðji úr ári. 4- 4- 4- Amerískar fjölskyldur, svo miljónum skiptir, hafa neyðst til að eyða sparifé sínu síðan hætt var að ákveða með lög- um hámark á vöruverði. Nærri 6 miljón fjölskyldur hafa fengið útborguð öll sín Bandaríkj averðbréf. 4- 4- -f Einn þumlungur af regnvatni á einni ekru af landi er meir en jafnvægi eitt hundrað skippunda af vatni. Leiðir þú aðra á réttan veg, eða afvega? Ung stúlka, sem var í samkvæmi, varð öðrum til hjálpar án þess að vita um það sjálf. Ungur maður einn var þar, sem þótti gott í staupinu. Hann hafði skrifað undir bindindisloforð og átti nú í harðri bar- áttu við sjálfan sig. Hann sagði svo sjálf- ur frá: „Vín var á borðum og ég var rétt að því kominn að brjóta bindindisloforð mitt. Lyktin af víninu var svo góð, að ég gat varla staðið af mér freistinguna, en þegar ég var að því kominn að gefa eftir, þá heyrði ég unga stúlku, sem boðið var vín, segja: „Nei, þökk fyrir“. Þetta veitti mér hugrekki. Ég veitti stúlkunni eftir- tekt allt kvöldið og sagði við sjálfan mig: „Ef hún drekkur þá gjöri ég það líka“. Ég var að vona og hálf hræddur um að hún mundi gjöra það. En hún afþakkaði í hvert skipti, sem henni var boðið vín, svo án þess hún vissi frelsaði hún mig frá að falla fyrir freistingunni“. Athugaðu líf þitt. Er það öðrum til hjálpar eða hindrunar? C. O. G. _____________*______________ Hvað er óhrein fæða? „Hvað á þetta að þýða?“ spurði Jósa- teke konu sína. „Hvert ætlar þú með þess- ar matarkörfur?“ Jósateke var nú fyrst að taka eftir því að kona hans hafði mist áhuga fyrir kirkju sinni, slíkt mátti ekki eiga sér stað. Jósateke var kaþólskur leik- prédikari. Konan hans hafði hlustað á ræður Aðventista í næsta þorpi og geðj- aðist vel að þeim. Nú ætlaði hún að taka þessar körfur, sem hún kallaði tíund, þang að yfir. „Settu þessar körfur niður“, skip- aði maður hennar, „við erum kaþólsk og verðum ætíð kaþólsk“. Konan hlýddi með auðmýkt, setti nið- ur körfurnar og fór að kveikja upp eld í horninu á eldhúsinu. „Jóe“, sagði hún feimnislega. „Má vera að þú einhvern tíma hlustir á og lærir hvað Guð vill að við gjörum“. Jóe hafði litla hugmynd um hve fljótt Guð mundi kalla hann frá myrkrinu til síns aðdáanlega ljóss. Þetta kvöld fór hann í rúmið og svaf vært eftir erfiði dagsins. Alt í einu sá hann við hlið sér

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.