Stjarnan - 01.11.1949, Blaðsíða 3

Stjarnan - 01.11.1949, Blaðsíða 3
83 STJARNAN fjötrum efans og syndavani þinn drottn- ar yfir þér. Loforð þín og áform eru álíka traust og reipi úr sandi fléttuð. Þú getur ekki drottnað yfir hugsunum þínum, fýsn- um og tilfinningum. Meðvitundin um heit þau er þú hefur rofið og þau áform, er þú hefur aldrei framkvæmt, veikir traust þitt á einlægni sjálfs þín og leiðir þig til að ætla, að guð geti eigi veitt þér móttöku. En þú þarft eigi að örvænta. Þú verður að láta þér skiljast hið sanna afl viljans. Hæfileikinn til þess að velja um gott og illt er sá kraftur, sem stjórnar eðli manns- ins. Allt er undir því komið, að viljanum sé beitt í rétta stefnu. Guð hefur gefið mönnunum hæfileika til þess að velja fyr- ir sig. Þú getur ekki breytt hjartalagi þínu. Þú getur ekki elskað guð af eigin ramleik, en þú getur kosið að þjóna honum. Þú getur falið honum vilja þinn; þá mun hann eftir sinni velþóknun koma því til vegar í þér, bæði að þú viljir og fram- kvæmir. Á þann hátt mun allt þitt eðli komast undir áhrif Krists anda. Þrá þín mun beinast til hans; hugsanir þínar munu verða samkvæmar hans vilja. Óskir þínar eftir góðu líferni og heilag- leika eru réttmætar svo langt sem þær ná, en ef þú lætur þar staðar numið, fær þú engu til vegar komið. Margir munu glat- ast, er vona og óska að verða kristnir. Þeir komast ekki svo langt að fela vilja sinn guði. Þeir kjósa ekki nú þegar að vera kristnir. Ef þú notar viljann rétt, getur orðið gagngjör breyting á líferni þínu. Ef þú felur Kristi vilja þinn, þá sameinar þú þig því valdi, sem, öllum yfirráðum og veldi er æðra. Þú munt öðlast kraft af hæðum, sem getur varðveitt þig, og muntu þannig, með því að gefa þig fyllilega guði á hönd, verða fær um að lifa nýju lífi, lífi trúarinnar. E. G. W. ____________*------------ Manntal verður haldið í Bandaríkjun- um komandi ár, 1950. Áætlað er að fólks- fjöldinn, 1. Janúar 1949 hafi verið 147,946,- 000, eða tveim og hálfri miljón fleiri en fyrir 10 árum síðan. 4-4-4- Járnbrautirnar í Bandaríkjunum gefa út hér um bil 80 miljón tímatöflur á ári. VII. Harmageddon 1. Hvað er Harmageddon? Það er pláss í Gyðingalandi þar sem Biblían bendir á að muni verða háð hið síðasta mikla stríð í sögu þessa heims. 2. Hver stendur bak við þann bardaga? Hvar verður hann háður? „Þeir eru djöflaandar, sem gjöra tákn og ganga út til konunga allrar heimsbygð- arinnar, til að safna þeim saman til stríðs- ins á hinum mikla degi Guðs hins al- valda Og þeir söfnuðu þeim saman á þann stað, sem á hebresku kallast Harma- geddon“. Op. 16:14.—16. 3. Hvar er þessi orustuvöllur? Hér um bil 40 mílur norður af Jerú- salem. Landafræðislega er Gyðingaland miðpunktur hins gamla heims. 4. Hvað er sagt um heiðingjana í þessu sambandi? Boðið þetta meðal heiðingjanna. Búið yður í heilagt stríð. Kveðjið upp kappana. Allir herfærir menn komi fram og fari í leiðangur. Hreyfing skal koma á þjóð- irnar og þær skulu halda upp í Jósafats- dal; því þar mun ég sitja til að dæma allar þjóðirnar, sem umhverfis eru. Flokkarnir þyrpast saman í dómsdaln- um, því að dagur Drottins er nálægur í dómsdalnum“. Jóel 3;14. 17. 19. 5. Hvenœr mun allt þetta eiga sér stað? Þegar uppskerutíminn nálgast. „Bregð- ið sigðinni því kornið er fullþroskað; kom- ið og troðið, því vínlagarþróin er full, það flóir út af lagarkerunum, því illska þeirra er mikil“. Jóel 3:18. „Kornskurðartíminn er endir heims- ins; kornskurðarmennirnir eru englarnir". Matt. 3:39. „Flokkarnir þyrpast saman í dómsdalnum, því dagur Drottins er ná- lægur í dómsdalnum“. Jóel 3:19. 6. Hvaða boðskap sendir Guð til heims- ins um og jyrir þennan tíma? „Ég sá annan engil fljúga um miðhim- ininn, og hélt hann á eilífum fagnaðar- boðskap, til að boða þeim sem á jörðinni búa, sérhverri þjóð og kynkvísl, tungu og lýð, og sagði hárri röddu; „Óttist Guð og gefið honum dýrð, því að komin er stund dóms hans, og tilbiðjið þann sem gjört hefir himininn, jörðina, hafið og upp- sprettur vatnana“.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.