Stjarnan - 01.11.1949, Qupperneq 4

Stjarnan - 01.11.1949, Qupperneq 4
84 STJARNAN „Og ég sá, og sjá hvítt ský, og ein- hvern sá ég sitja á skýinu, líkan manns- syni, og hafði hann gullkórónu á höfð- inu, og í hendi sér bitra sigð. Og annar engill kom út úr musterinu, hann kallaði hárri röddu til þess, sem á skýinu sat: Ber þú út sigð þína og sker upp, því að komin er stundin til að uppskera, því sáðland jarðarinnar er fullþroskað.“ Op. 14 ;6. 7. 14. 15. 7. Hverjir verða viðbúnir á þeim degi? „Hér reynir á þolgæði hinna heilögu, þeir er varðveita boð Guðs og trúna á Jesúm“. Op. 14:12. „Því að hvorki er um- skurn neitt, né yfirhúð, heldur ný skepna“. Gal. 6:15. „Því að í samfélaginu við Krist Jesúm er ekkert komið undir umskurn né yfir- húð, heldur undir trú, sem stafar af kær- leika“. Gal. 5:6. „Umskurnin er ekkert og yfirhúðin ekkert, heldur það að varðveita boðorð Guðs“. I Kor. 7:19. 8. Hvenær munu þjóðirnar safnast til Harmageddon? Meðan sjötta og sjöunda plágan geysa yfir. Rétt áður en Jesús kemur. Sjá Op. 16. kap. 1.—16. vers. „Og eftir þetta sá ég, og upp var lokið musteri vitnisburðar tjaldbúðarinnar á himni. Og út gengu úr musterinu englarnir sjö, sem höfðu plág- urnar sjö, klæddir hreinu skínandi líni og gyrtir gullbeltum um brjóst. Og englunum sjö fékk ein af verunum fjórum sjö gull- skálar, fullar reiði Guðs, hans er lifir um aldir alda. Og musterið fyltist af reykn- um af dýrð Guðs og mætti hans, og eng- inn mátti inn ganga í musterið, unz fulln- aðar væru þær sjö plágur englanna sjö“. „Sjá, ég kem eins og þjófur, sæll er sá, sem vakir og varðveitir klæði sín, til þess hann gangi ekki nakinn um kring og menn sjái blygðun hans“. Op. 16;15. --------------------*---------- Andrew Carnegie gaf í burtu níu tíundu af auð sínum. Meðal annars sem hann gaf voru 8000 hljóðfæri í kirkjur, 3000 bóka- söfn og 500 háskólar. ♦ 4- + Stokkhólmur í Svíþjóð er eina stór- borgin í heiminum sem hefir ekkert fátækra hverfi. Föður kærleikur Hversu sterkur, sannur og stöðugur er kærleiki föðursins til barna sinna. Hann er endurskin af kærleika vors himneska Föður, sem vér lesum um í Heilagri Ritn- ingu. „Eins og faðirinn sýnir miskun börn- um sínum, eins hefir Drottinn sýnt misk- un þeim sem óttast hann“. Sálm. 103:13. Einkasonur bónda nokkurs lenti í vond- um félagsskap þar sem hann gekk á há- skólann. Hann komst í skuldir gegn um lukkuspil. Til að komast úr skuldum fals- aði hann ávísun. Hann var tekinn fastur og dæmdur 1 fangelsisvist, en á leiðinni í fangelsið slapp hann og strauk langt vest- ur í land. Faðirinn elskaði son sinn þrátt fyrir alt, og vann og stritaði þangað til hann gat borgað að fullu hina fölsuðu ávísun. Svo bað hann landstjórann um fyrirgefning fyrir son sinn, og fékk hana. Nú vann hann áfram þar til hann hafði safnað nokkurri peningaupphæð. Hann af- henti þessa peninga lögregluþjóninum sem sonur hans slapp frá og bað hann leita uppi son sinn og koma heim með hann. Lögregluþjónninn fór af stað með fyrir gefningarskjal landstjórans og kærleiks- ríkt bréf frá föður drengsins í vasa sínum. Loks fann hann piltinn á spilahúsi í San Francisco. Ungi maðurinn þekti hann strax og hélt hann væri kominn til að handtaka sig, svo hann sló hann niður. En lögregluþjónninn greip til hans og sagði: „Vertu rólegur, John. Ég kom ekki til að handtaka þig heldur til að færa þér fyrirgefningu landstjórans, og fylgja þér heim til föður þíns, sem sendi mig til að leita þín“. Ungi maðurinn trúði honum og tók á móti fyrirgefningarskjalinu, las það, reif það svo í sundur og kastaði því á gólfið og sagði með gremju: „Fyrirgefning er mér einkis virði, að vísu veitir hún mér frelsi, en hún breytir ekki mannorði mínu. Ég vil ekki fara heim til föður míns, mæta reiði hans og búa eins og útlagi í héraðinu þar sem ég ólst upp“. „En John“, sagði sendiboðinn, „þetta eru ekki allar fréttirnar. Ég hef hér bréf

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.