Stjarnan - 01.11.1949, Page 7

Stjarnan - 01.11.1949, Page 7
STJ ARNAN 87 Mér kom strax til hugar loforð Guðs í hinni heilögu bók: „Eins og móðir hugg- ar son sinn, eins mun ég hugga yður“. Jes. 66:13. Ó hvað vér þráum hönd og huggun móðurinar í sorg vorri og erfiðleikum. En huggun vors himneska föður er ennþá ná- kvæmari. Ó hversu djúp og innileg eru huggunarorð hans: „Ekki mun ég skilja yður eftir munaðarlausa. Ég kem til yðar“. Jóh. 14:18. „Guð vill ekki að vér séum niðurbeygð- ir af sorg með brotið hjarta og brostnar vonir. Hann vill vér lítum upp til hans og virðum fyrir oss hans kærleiksríku á- sjónu. Okkar elskandi frelsari stendur oft við hlið þeirra harmþrungnu, hverra augu eru svo blinduð af tárum að þeir sjá hann ekki. Jesús þráir að taka í hönd vora, láta oss horfa á sig og að vér leyfum honum að leiða oss. Hjarta hans er snortið af með- aumkvun með oss þegar vér líðum sorg og erfiðleika. Vér megum öruggir treysta honum og íhuga daglega hans eilífa kær- leika. Hann lyftir sál vorri upp yfir dag- lega sorg og erfiðleika og veitir hjarta voru frið“. Syrgjandi hjarta, fyrirheit vors him- neska föður eru fyrir þig, minstu þeirra og tileinkaðu þér þau. Inez Brasier ______________*______________ „Ekki með valdi né krafti" Nýlega var blaðið „Ghristían Patriot“, að mæla með því grundvallarlög landsins veittu kristindóminum löglega viðurkenn- ingu. Þetta blað ámælir hæsta rétti fyrir að banna trúarbragðakenslu í barnaskólun- um. Blaðið er gefið út af nokkrum mótmæl- enda prestum, og þeir fengu Mr. Capper, sem er í öldúngaráðinu fyrir Kansas ríkið til að koma með tillögu um að sambands- lögin viðurkenni yfirráð og lögmál Krists, frelsara og konungs þjóðanna, sem grund- völl undir lög til að styðja kristnu trúar- brögðin. Hvaða úrskurð mundu þessir áhuga- sömu prestar hafa gefið, ef þeir hefðu verið hæstaréttar dómarar? Ameriska þjóð- veldið er lánsamt að hafa hæstaréttar dóm- ara, sem ekki reyna að lögleiða kristnu trúarbrögðin. Allar hinar blóðugu ofsókn- ir, sem áttu sér stað á miðöldunum, þegar miljónir manna innsigluðu trú sína með blóði sínu, voru framdar í nafni Guðs og undir yfirskini kristnu trúarbragðanna, sem að undirlagi kirkjunnar höfðu verið löggilt, og var framfylgt af ríkinu. Kristindómur löggiltur af landstjórn- inni var sú mesta bölvun sem menn hafa liðið undir. Fyrsta sporið, að löggilda trúarbrögð, leiðir með sér síðasta sporið, trúarbragða ofsóknir. „Sú stund kemur að hver sem líflætur yður, mun þykjast vinna Guði þægt verk, og þetta munu þeir gjöra af því þeir hafa hvorki þekt Föðurinn né mig.“ Jóh. 16:23. Það er svo heimskulegt fyrir kristna menn að ímynda sér að kristna trúin þurfi veraldleg lög til að styðja sig við. Jesús meðan hann var á jörðunni leitaði ekki stuðnings hjá veraldlegri stjórn. Kristna trúin útbreiddist mest þegar hin voldugasta stjórn í heimi stóð á móti henni ákveðin í að útrýma henni. Er nú kristindómurinn orðinn svo vesæll og kraftlaus að hann geti ekki hald- ist uppi, nema hann fái stuðning hjá ver- aldlegri stjórn? Það er skömm fyrir þá sem játa kristið nafn að hafa svo lítið álit á krafti kristin- dómsins. Hefir kristna trúin fallið svo djúpt að ímnyda sér að vér þurfum að leita hjálpar heimsins? Hafa kristnir menn gleymt því sem Drottinn segir í Jes. 31:1. „Vei þeim sem fara suður til Egyptalands í liðsbón, sem reiða sig á hesta og treysta á vagna, af því þeir séu margir, og á ridd- ara af því fjöldinn sé mikill, en líta ekki til hins heilaga í Israel, og leita ekki Drott- ins.“ Það væri gott fyrir kristna menn að muna orð Drottins til Serubabels: „Ekki með valdi né krafii, heldur fyrir Anda minn, segir Drottinn hersveitanna.“ Sak. 4:6. C. S. Longacre ______________ Sambandstjórn Bandaríkjanna tekur manntal einu sinni á 10 ára fresti. Nú er verið að undirbúa fyrir þetta manntal, sem áætlað er að kosti 70 miljón dollara. 150 þúsund manns verða sendir út til að heimsækja hvert einasta heimili og safna skýrslum um fólkið og eignir þess.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.