Stjarnan - 01.11.1949, Qupperneq 8

Stjarnan - 01.11.1949, Qupperneq 8
88 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjórn og afgreiSslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man„ Can. Besta ráðið J. Edgar Hoover lögreglustjóri talaði í útvarpið fyrir nokkru síðan og hvatti menn alvarlega til að taka upp aftur þann sið að halda guðsþjónustu á heimilunum í Ameríku. Hann minti feður og mæður á hve sigðæði væri orðið á lágu stígi, og hversu honum lá á hjarta að foreldrarnir sneru sér rétt gagnvart þessu viðfangsefni þjóðarinnar. Mr. Hoover tók því skýrt fram að for- eldrarnir yrðu að taka alvarlega skyldu sína í því að leiðbeina börnunum og gefa þeim kristilega fræðslu til þess að vinna móti hinni siðferðislegu rotnun og afturför í Bandaríkjunum. Hann sagði að framtíð- arvon Ameríku væri komin undir trú á Guði. Ef vér sleppum þeirri trú þá mun „þjóð vor farast með skömm og niður- lægingu.“ Hann lagði mesta áherslu á áhrif heimilisins og sagði: „Vér verðum að snúa aftur til Guðs, stofna heimilis guðs- þjónustu á hverju einasta heimili í land- inu til að byggja upp trú vora.“ Öll heimili hafa þörf fyrir bæn. Vér þurfum að vera í sambandi við uppsprettu kraftarins, friðarins og gleðinnar. Stund- um losnar rafmagnslampi og árangurinn er sá að ekkert ljós kemur. Þegar vér skrúfum lampan fastan þá kemur ljósið strax. Þannig er það með bænina, hún kemur oss í samband við Guð og vér njótum blessunar hans. Það er mjög hætt við í annríki lífsins að menn missi sam- bandið við Guð. Vér þurfum að staldra við og falla á kné í bæn til að komast í samband við uppsprettu kraftarins. Sælt er það heimili, sem hefir stofnað stöðugar guðsþjónustur fyrir heimili sitt. Bæna- stundir á heimilinu gjöra heimilislífið ánægjulegra og koma í veg fyrir misskiln- ing og sundurlyndi. Bænastundin á morgnana eykur gleði vora svo vér verðum styrkari til að mæta vonbrigðum eða öðrum erfiðleikum sem vér kunnum að mæta, svo vér getum tekið þeim þannig að alt verði Guði til dýrðar. Bænastundin veitir oss fullvissu um nálægð Guðs og hann gefur oss sigur yfir öllum freistingum. Bænarækni á heimilinu hefir frelsandi áhrif á börnin sem vaxa þar upp, og mun halda þeim á réttlætisins vegi þegar þau þurfa að fara út í heiminn. Ó hversu bless- unarríkt það er að safna börnunum og unglingunum saman í fáeinar mínútur á hverjum morgni til að þakka vorum himn- eska föður fyrir vernd hans yfir nóttina og biðja hann um varðveislu og leiðbein- ingu fyrir hinn nýbyrjaða dag. Heimilis guðþjónusta styrkir trúna á Guði og hefir góð áhrif á þá er koma sem gestir á heimilið. Það er fyrirmynd og upp- örfun fyrir önnur heimili að gjöra hið sama. Vér heiðrum gjafarann allra góðra hluta með því að hafa heimilis guðsþjón- ustu, og felum sjálfa oss í hans voldugu hönd til varðveislu gegn allri hættu. Ernest LloycL -----------+----------- Flettu upp í Biblíunni Á sorgarstundum les Jóh. 14. kapítula. Þegar vinir bregðast les 27. sálm Davíðs. Þegar þú hefir fallið fyrir freistingu les 51. sálm Davíðs. Þegar þú ert kvíðafullur les Matt. 6:19-34. Ef þú ert í hættu staddur les sálm 91. Þegar þú ert áhyggjufullur les sálm 34. Ef þér finst Guð vera þér fjarlægur les sálm 139. Þegar kjarkur þinn og hugrekki bilar les Jesaja 40. Þegar efasemdir ásækja þig þá les Jóh. 7:17. Ef þú finnur til ótta og einstæðingskap- ar les sálm 23. Þegar þú gleymir hve mikillar blessun- ar þú nýtur les sálm 103. Þegar þú þarfnast trúarstyrks les Hebr. 11. Ef þér finst þú einmana og yfirgefinn les Róm. 8:31-39. Ameríska Biblíufélagið

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.