Stjarnan - 01.01.1950, Blaðsíða 3

Stjarnan - 01.01.1950, Blaðsíða 3
STJARNAN 3 efla hans dýrð. Kærleikurinn prýddi og göfgaði öll hans verk. Kærleikurinn er frá guði. Hið óendurfædda hjarta getur eigi skapað hann né vakið hjá sér. Hann er hvergi nema í því hjarta, sem Jesús býr í. „Elskum hann af því, að hann elskaði oss að fyrra bragði“. í því hjarta, sem guðs náð heíir endurnýjað, er kærleikurinn sá kraftur, sem stjórnar öllum athöfnum. Hann myndar skapferlið, stjórnar hvöt- unum, drottnar yfir ástríðunum, yfirvinn- ur óvináttuna og göfgar hjartað. Þegar þessi kærleikur býr í sálunni, þá gjörir hann lífið ljúft og kastar sínum göfgandi geislum á alla þá, sem hafa saman við oss að sælda. Tvær villur eru það, sem guðs börn, einkum þau, er nýlega eru farin að fela sig náð hans, verða að gæta sín fyrir. Aðra þeirra höfum vér þegar talað um; hún er sú, að treysta því að vér fyrir eigin verk getum komizt í samræmi við guð. Sá, sem reynir að helgast af sínum eigin verkum, með því að halda lögmálið, freistar þess, sem ómögulegt er. Allt það, sem maður- inn getur gjört án Krists,' er saurgað af eigingirni og synd. Náð Krists ein getur helgað oss fyrir trúna. Hin villan er þessari gagnstæð og eigi síður hættuleg, að ætla að Kristur losi mennina við þá skyldu að hlýða lögmáli guðs; að álykta svo, að úr því að trúin ein getur veitt oss hlutdeild í náð Krists, þá séu verk vor þýðingarlaus að því er snertir endurlausn vora. En gættu þess vel, að hlýðnin er ekki að eins ytri samkvæmni við kröfur guðs, heldur kærleiks þjónusta. í lögmáli guðs birtist innsta eðli hans; í því er fólgin hin mikla grundvallarsetning kærleikans, og þess vegna er það grundvöllur stjórnar hans á himni og jörðu. Skyldi lögmál guðs ekki lýsa sér í líferninu, ef hjörtu vor eru endurnýjuð eftir hans mynd og kærleik- ur guðs gróðursettur í sálunni? Þegar grundvallarsetnig kærleikans er gróður- sett í hjartanu og maðurinn endurnýjaður eftir mynd skapara síns, þá uppfyllist þetta fyrirheit hins nýja sáttmála: „Mitt lögmál vil ég innræta í hjörtu þeirra, og skrifa það í þeirra hugskot“. Og mun eigi lögmálið stjórna líferninu þegar það er ritað í hjartanu? Hlýðnin — trúmennska og þjónusta kærleikans — er hið rétta ein- kenni á lærisveini Krists. Fyrir því segir ritningin: „í því sýnir sig elskan til guðs, að vér höldum hans boðorð“. „Hver, sem segir: Ég þekki hann, og varðveitir ekki hans boðorð, er lygari, og í slíkum er ekki sannleikur“. Það er svo langt frá því að trú in leysi mennina frá hlýðnisskyldunni, að hún ein veitir oss hluttöku í Krists náð og gjörir oss með því færa um að vera hlýðnir. E. G. W. ------------*-------------. !X. Lykillinn að forðabúri himinsins Bæn 1. Bæn er að opna hjartað fyrir Guði eins og fyrir vini. „Drottinn vertu mér miskunsamur, því ég er í angist“. Sálm. 31:9. „Guð er vort athvarf og styrkur, hjálp í þrenging- um margreynd“. Sálm. 46:1. Guð býður oss að kalla sig föður. „Faðir vor .... helgist þitt nafn“. Lúk. 11:2. Jesús er vinur syndara. „Sjáið .... vin tollheimtumanna og bersyndugra.“ Matt. 11:19. í návist hans er fylling fagnaðar og gleði. „Gnótt fagnaðar er fyrir þínu aug- liti, og sæla við þína hægri hönd eilíflega“. Sálm. 61:11. 2. Tilgangur bœnarinnar er að komast í nánara samfélag við Guð. Hann þekkir ástand vort og þarfir. „Drottinn þú rannsakar og þekkir mig. Hvort sem ég sit eða stend upp þá veiztu það, þú skynjar mínar hugrenningar á- lengdar . . . og alla mína vegi þekkir þú nákvæmlega“. Sálm. 139:1.—3. Er Guð fús til að svara bænum vorum? „Ef nú þér sem vondir eruð, tímið að gefa börnum yðar góðar gjafir, hvað miklu framar mun þá ekki Faðir yðar á himnum gefa þeim heilagan anda sem hann biðja“. Lúk. 11:13. 3. Hver eru skilyrðin fyrir bænheyrslu? Vér verðum að finna þörf vora. „Sælir eru þeir sem hungrar og þyrstir eftir rétt- lætinu, þeir munu saddir verða“. Matt. 5:6. Vér verðum að þekkja Guðs orð og lifa í hlýðni við það. „Ef þér eruð stöðugir í

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.