Stjarnan - 01.01.1950, Page 8

Stjarnan - 01.01.1950, Page 8
8 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a vear. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritst.iórn og afgreiðslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man., Can. anda í hverjum „vér erum innsiglaðir til endurlausnardagsins.“ Efes. 4:30. Guð sagði fyrir flóðið: „Andi minn skal ekki eilíflega óvirðast í manninum.“Guðs andi yfirgaf þá að lokum. Flóðið kom og tók þá alla. Viljum vér gefa gaum að þess- ari aðvörun? Guðs andi er ennþá í heimin- um til að knýja, laða og leiða menn til að snúa sér og iðrast synda sinna. Hvers vegna ekki taka boði hans nú. Einhvern daginn verður það of seint. Vor himneski faðir þráir að gefa sinn heilaga anda þeim sem biðja hann. Því þá ekki biðja um hann? Hvers vegna biðj- um vér ekki um þessa himnesku gjöf? U.S. Signs _____________*______________ Frístundirnar Það er sagt frá tveimur mönnum sem unnu saman að sömu iðn í stórri verk- smiðju. Þeir höfðu báðir frían einn klukku tíma um hádegið fyrir miðdagsverð. Báð- ir notuðu frítíma sína til að keppa að vissu takmarki. Annar vann að því að finna upp og útbúa vél, sem gæti sagað við- arbút með hvaða lagi sem menn óskuðu eftir. Þegar hann lauk við uppfyndingu sína seldi hann hana fyrir stórfé. Félagi hans notaði tíma sinn á hverjum degi í nærri heilt ár til að kenna litlum hundi að standa á afturfótunum og stíga vissan dans. Seinast þegar fréttist af hon- um vann hann í sörnu veirksmiðjunni, sömu vinnu og með sama kaupi, sem hann hafði áður haft. Hann möglaði yfir for- lögunum, sem höfðu gjört félaga hans rík- an en hann sjálfan fátækan. Frístundir geta auðgað anda manns engu síður en peningabudduna, ef þær eru notaðar til þess sem gagnlegt er. Margir hafa unnið sér frægð og heiður með því sem þeir hafa framkvæmt í frístundum sínum. C. O. G. Tungumál í New York Engin önnur borg jafnast við New York í því tilliti að 7 af hverjum 10 innbyggj- endum hennar eru annaðhvort innflytj- endur frá öðrum löndum eða foreldrar hans voru innflytjendur. Það er haft fyrir satt að fleiri írar búi í New York heldur en í Dublin, fleiri ítalir heldur en í Naples eða Genoa, fleira fólk af rússneskum ætt- um heldur en í nokkurri rússneskri borg að undanteknum borgunum Moskva og Leningrad. I New York býr fólk af öllum þjóðum heimsins. Það er eflaust satt að fulltrúar sambandsþjóðanna eða þjónar þeirra, geta fljótar fundið einhvern sem talar mál þeirra á strætum New York borgar heldur en í nokkurri annari stór- borg heimsins. ____________*____________ , Smávegis Rússar hafa ennþá 86 af verslunarskip- um þeim, sem þeim voru lánuð meðan stríðið stóð yfir. 4- > 4- Fulltrúar Biblíufélaga frá 25 löndum héldu nýlega fund með sér í New York. Þeir skýrðu frá því þar, að árið 1948 hefðu þeir sent út 17,500,000 eintök af Biblíunni á 1,108 tungumálum. 4-4-4- Læknum kemur nú saman um að sá sem er hætt við mæði, getur fengið kast ef hann hefir of mikla vinnu og áhyggjur, erfið- leika í heimilislífinu eða snöggar geðs- breytingar. 4-4-4- Skýrslur verslunardeildar Bandaríkj- anna sýna að um 2200 smáverslanir hafa verið stofnaðar á dag síðan stríðnu linti. 4-4-4- Yfir 2,000 Sjöunda dags Aðventista læknar hafa útskrifast frá „College of Medical Evangelists“, Lóma Linda, Cali- fornia síðan þessi skóli var stofnaður. 4- 4- Tírnaritið „Time“, segir að Bretland hafi sem stendur 49,000,000 íbúa. 4-4 4- Stjórnin í Assam á Indlandi hefir ákveðið að innan 10 ára skuli allir íbúar landsins kunna að lesa.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.